Bond fær verkefni, Bond fær tæki og tól, Bond hittir óvininn, Bond hittir fallega konu, Bond ræðst gegn óvininum, Bond leysir verkefnið, Bond fær konuna (þó aðeins tímabundið), Endir. Í 50 ár hefur þessi einfalda söguuppbygging, sem er mjög lauslega útskýrð hér (ég viðurkenni það), heillað áhorfendur um allan heim og mun gera það enn og aftur með 23 James Bond myndinni (ef farið er eftir hinni formlegu talningu) Skyfall. Söguuppbyggingin er þó ekki stærsta aðdráttarafl myndanna, heldur að sjálfsögðu sögupersónan James Bond sem er hugarsmíð rithöfundarins og herramannsins Ian Fleming (hugmyndina að nafninu fékk Fleming úr bókinni Birds of…
Author: Nörd Norðursins
Fenrir Films hafa sent frá sér fyrsta þáttinn af þremur í ofurhetju epíkinni Svarti Skafrenningurinn og lýsa þáttunum svona: „Rólegri sveitatilveru Kormáks er snúið á haus þegar hann fær óvænt ofurkrafta. Nú er það undir honum komið að bjarga borginni frá hinum illræmda Fésbókara og öllu hans hyski.“ Svarti Skafrenningurinn er önnur vefsería Fenrir Films, sem stóðu á bak við Ævintýri á Einkamál, og ýmsar stuttmyndir sem má finna á YouTube svæðinu þeirra. 1. þáttur – BÞJ/GLB
LEGO prentari Upprunalega rödd Svarthöfða er ekki svo ógnvekjandi… Lærðu rétt viðbrögð við hjartaáfalli – með aðstoð uppvakninga! Ég hata flash mob… … nema það sé Star Wars í því.
Á næstu dögum mun ríkissjónvarpið taka til sýninga sænska sjónvarpsþætti sem bera nafnið Äkta Människor eða á hinu ylhýra: Alvörufólk. Þessir þættir eru með því áhugaverðasta sem komið hefur frá Svíþjóð í langan tíma þó svo að sænsku vinir okkar geti stært sig af þáttum eins og lögregludramanu Wallander og vinsælum dramaseríum. Äkta Människor var tekið til sýninga í sænska sjónvarpinu í janúar á þessu ári og vöktu mikla athygli hvað varðar efnistök. Þættirnir eru nefnilega hreinræktaður vísindaskáldskapur en lítið hefur borið á slíku sjónvarpsefni frá Norðurlöndunum. Þættirnir gerast í mjög nálægri framtíð og er söguheimurinn lítið þorp úti á…
Mikil gróska hefur verið á markaði fjölspilunarhlutverkjaleikja undanfarið og því ekki úr vegi að taka stöðuna á bæði gömlum og nýjum leikjum. Núna eru FTP (Free to Play) leikir hreinlega að taka völdin og í þeim þarf ekki að borga fast mánaðargjald eins og venjan hefur verið. Þetta sést á mikilli velgengni Guild Wars 2, sem er mest áberandi FTP leikurinn í dag, og einnig þegar litið er á væntanlega leiki sem byggja flestir á þessu verðlíkani. Þó að leikur sé skilgreindur sem FTP leikur í eftirfarandi upptalningu, þýðir það ekki endilega að allt í honum sé ókeypis. Sumir leikir…
Kubbatónlist hefur verið áberandi í sögu og þróun tölvuleikjatónlistar. Fyrir um ári síðan tókum við hjá Nörd Norðursins viðtal við Michelle Sternberger, eða ComputeHer sem er hennar sviðsnafn, sem hefur verið að semja og spila kubbatónlist frá árinu 2005. Hún hefur til þessa spilað á yfir 60 tónleikum og þar á meðal á E3 og tölvuleikjasýningunni á Smithsonian-safninu. eitt af hennar vinsælustu lögum er Sysop sem er að finna á plötunni Modermoiselle (og í EVE Online Fanfest 2011 myndbandinu okkar á YouTube), en hún er auk þess annar helmingur hljómsveitarinnar 8 Bit Weapon sem spilar einnig kubbatónlist. Til eru margar leiðir til að…
BlackBerry 10 Jam World Tour er ráðstefna á vegum BlackBerry fyrirtækisins og er fyrst og fremst fyrir forritara. Föstudaginn 19. október næstkomandi verður slík ráðstefna haldin á Centerhotels Plaza (við Ingólfstorg) í Reykjavík og mun hún standa yfir kl. 8:30 – 18:00. Aðgangur er ókeypis fyrir þá sem skrá sig, en nánari upplýsingar um dagskrá og gesti er að finna hér á Facebook. – BÞJ
Þegar Batman notaði Apple Maps… Nokkrar góðar YouTube athugasemdir Tröllið í LOTR fyrirgefur þetta seint… Lúðrasveit með flotta tölvuleikjasyrpu
„when you hear the camera whirring, you know that money is going through it.“ – Edgar Wright Þú sest í myrkvaðan bíósalinn með popp og kók. Finnur besta sætið og eftir rúllandi stiklur og auglýsingar byrjar kvikmyndin. Í lok myndarinnar gengur þú út og ert annað hvort ánægður með myndina eða hefur gleymt henni jafn óðum. Það sem þú hefur þó eflaust ekki hugleitt þegar þú horfðir á myndina er hvort myndin var tekin upp með stafrænni tækni eða á filmu. Í kvikmyndaheiminum er barátta háð á milli þeirra sem vilja notast við stafrænu tæknina, sem er ódýr, sparar tíma og auðvelt…
Fyrir þá sem misstu af tækifærinu að sjá og heyra í hryllingsmyndaleikstjóranum Dario Argento á RIFF kvikmyndahátíðinni er ég með smá sárabót. Ég náði einungis að vera viðstaddur á tveimur spurt og svarað sýningum, á Dracula 3D og Suspiria, og tók það upp á hljóðrænu formi. Þar sem Dario Argento er ekki sleipur í enskunni var erfitt að sjá heildarmyndina sem hann var að reyna að skýra fyrir okkur. Það var nokkuð um endurtekningar milli atburðanna og mun ég því stikla á því markverðasta sem kom fram á þessum sýningum ásamt öðrum almennum fróðleik um leikstjórann. Hvað varðar Dracula 3D…