Saga eftirlifenda: Heljarþröm eftir Emil Hjörvar Petersen er komin út, en um er að ræða annað bindið í stórbrotnu og spennandi frumkvöðlaverki. Í bókinni er sagt frá ásum sem lifðu af Ragnarök og baráttu þeirra við að ná tökum á heiminum á ný. Í fréttatilkynningu sem útgáfufélagið Nykur sendi frá sér í dag kemur meðal annars fram að: Í Heljarþröm tvinnast saman goðsagnir, mannkynssaga og samtíminn svo að úr verður þétt og stórskemmtileg atburðarás: Vakning Terrakotta-hersins, váleg Eyðilönd árið 2310, íslenskur tröllaættbálkur, loftskipabardagar og margt fleira. Við mótun nýrrar heimsmyndar vakna upp hugleiðingar um fjölmenningu, trúarbrögð, örlög, orsök og afleiðingu og…
Author: Nörd Norðursins
Svartir sunnudagar byrja í Bíó Paradís í kvöld. Á bakvið þennan klassíska hóp standa þeir Hugleikur Dagsson, Sigurjón Kjartansson og Sigurður Sigurðsson (Sjón). Ein besta uppvakningamynd allra tíma, Dawn of the Dead frá árinu 1978, verður sýnd kl. 20:00 í kvöld. Á Facebook-síðu Svörtu sunnudaga segir: Þeir Hugleikur Dagsson og Sigurjónarnir tveir, Kjartansson og Sigurðsson (Sjón) hafa stofnað cult og klassík hópinn Svarta sunnudaga, sem mun standa fyrir vikulegum kvikmyndasýningum í Bíó Paradís á sunnudagskvöldum í vetur. Fyrir þeim félögum vakir að auðga bíómenningu borgarinnar og njóta lífsgæðanna sem felast í því að klassískar cult myndir séu sýndar í reykvískum…
Í liðnum Spurt og spilað forvitnast Nörd Norðursins um tölvuleikjaspilun þjóðþekktra einstaklinga með stuttum spurningum. Okkar fimmti viðmælandi er Ólafur Þór Jóelsson. Ólafur er annar þáttastjórnandi vinsælasta tölvuleikjaþáttar landsins, GameTíví, þar sem hann ásamt Sverri Bergmann gagnrýnir tölvuleiki og skoðar það helsta sem er að gerast í heimi tölvuleikja og leikjatölva að hverju sinni. Það er óhætt að segja að þættirnir hafa styrkt samfélag leikjatölvunotenda og tölvuleikjaspilara á Íslandi, en nýjasta þáttaröðin af GameTíví er sýndur á fimmtudögum á Popptíví og endursýndur á Stöð 2 og hér á Visir.is. Ólafur starfar einnig sem deildastjóri tölvuleikjadeildar og heildsölu í söludeil Senu. Til gamans má…
Það eru eflaust margir sem hugsa sér gott til glóðarinnar nú þegar hausta tekur og vilja losna undan skammdeginu með því að lyfta sér upp og skreppa í borgarferð með einhverju af okkar „samkeppnishæfu“ flugfélögum. Svo eru margir sem hafa ekki tíma eða fjármuni til þess eða þjást af hrikalegri flughræðslu, hvað veit ég. Það er óþarfi að örvænta ef þú kemst ekki af klakanum yfir eina helgi því það er alltaf hægt að láta sig dreyma. Ég hef því sett saman 5 helgarferðir til nokkurra áhugaverðra borga sem eru því miður ekki til og því tilgangslaust að heimsækja þær,…
Doc Brown og Doctor Who í rap battle CubeStormer II Bond í 50 ár Falin myndavél: Uppvakningur pantar sér skyndibita Svarthöfði heimsækir Disneyland Það starfa snillingar hjá Air New Zealand!
Uppvakningamyndir eru einn af áhugaverðustu undirflokkum hryllingsmynda. Á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar, þegar kvikmyndagerðamenn voru að stíga sín fyrstu skref í gerð uppvakningamynda, var mikið af efni sótt í vúdú galdra sem voru (og eru) meðal annars stunduð á Haítí og víðar. Í fyrstu uppvakningamyndunum voru uppvakningarnir mjög fáir, jafnvel bara einn í hverri mynd, og lutu þeir skipunum vúdú galdramanna sem notuðu mátt sinn gjarnan til að framkvæma einhverskonar illverk. Á sjöunda og áttunda áratugnum þróuðust hugmyndir um uppvakninga í kvikmyndum í sjálfstæða átt og nær því sem við þekkjum í dag. Þeir ráfuðu um jörðina líkt…
Satan’s Little Helper er lítil óháð kvikmynd frá árinu 2004 sem er skrifuð og leikstýrð af óháða leikstjóranum Jeff Lieberman sem hefur leikstýrt nokkrum költ myndum frá áttunda og níunda áratugnum á borð við Squirm, Blue Sunshine og Just Before Dawn. Hann hefur ekki verið mjög iðinn við kolann og þegar er komið að þessari mynd þá eru meira en 15 ár frá því að hann leikstýrði seinast kvikmynd. Hann hefur ávallt verið sér á báti en verið með sniðugar hugmyndir og þessi mynd er engin undantekning. Það er Hrekkjavaka og Dougie littli er á leiðinni með mömmu sinni að…
Nörd Norðursins efnir til Star Wars ljósmyndakeppni! Í verðlaun eru miðar á Star Wars tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem verða haldnir í Hörpu miðvikudaginn 28. nóvember og fimmtudaginn 29. nóvember. Nánari upplýsingar um tónleikana má finna – hér – á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Það er einfalt að taka þátt! Sendu okkur ljósmyndina þína ásamt upplýsingum (fullt nafn, aldur og símanúmer) á netfangið nordnordursins(at)gmail.com. Myndirnar geta verið að nánast hverju sem er, svo framarlega sem þær tengjast Star Wars með einhverjum hætti. Gefðu ímyndunaraflinu lausan tauminn! Aldurstakmark er 14 ára og má hver þátttakandi má að hámarki senda inn tvær myndir. Umsóknarfrestur…
Fyrir stuttu skrifaði ég um kvikmynd Pascal Laugier, Martyrs (2008), og því er e.t.v. frekar snemmt að gagnrýna aðra mynd eftir sama leikstjóra. Ég get hins vegar ekki hamið mig og verð einfaldlega að hnipra niður nokkur orð um nýjustu mynd hans, The Tall Man, sem kom út í september. Hún er reyndar einnig þekkt sem The Secret í Frakklandi, ekki að það sé betri titill. En þegar ég heyrði fyrst að Laugier ætlaði að taka upp enskumælandi kvikmynd í Kanada með Jessica Biel í aðalhlutverki þá var ég vægast sagt skeptískur. Það gerist hreinlega allt of oft að frábærir…
Áður en ég held lengra er rétt að skýra afstöðu mína til Bond mynda. Ég er almennt séð ekki mikill spennumyndafíkill. Ég hef alveg gaman af þeim og kann vel að meta góðar spennumyndir, sérstaklega góðar „löggu- og bófamyndir“ eins og maður orðaði það sem krakki. En þegar myndir bjóða upp á lítið annað en allt of löng hasaratriði þá getur mér drepleiðst. Yfirleitt er kryddað töluvert upp á slíkt í Bond myndum og mér hefur oftast fundist þær ágætar, þrátt fyrir allt of mikla áherslu á markaðsherferðir og sölumennsku sem á það til að vera óþægilega augljós. Ég hef…