Fyrir hátt í þremur árum síðan kom út leikurinn Starfield á PC og Xbox leikjavélar Microsoft. Um var að ræða gríðarlega metnaðarfullan leik frá Bethesda Softworks. Fyrirtækið hefur hingað til verið þekktast fyrir Elder Scrolls og síðar Fallout leikina og átti Starfield að vera fyrsta nýja verkefnið þeirra og bæta við öðrum burðarstólpa í leikjaseríur þess.
Við tókum fyrir leikinn á sínum tíma og er hægt að lesa þá gagnrýni hérna.
Ég fór frekar góðum orðum um leikinn og hafði mjög gaman að eyða vel yfir 100 tímum að spila leikinn þegar að hann kom út. Einkunn mín var kannski pínu örlát á þeim tíma, en þetta var samt leikur sem hitti vel í mark hjá mínum innri sci-fi nörda.
Því meira sem ég spilaði leikinn eftir útgáfu hans urðu margir að vanköntum og göllum leiksins meira áberandi og ég eins og margir aðrir vonuðu að framleiðendur leiksins myndu hlusta á þá gagnrýni sem myndaðist og bregðast við henni. Starfield var að mínu mati gríðarlega spennandi grunnur af nýrri seríu sem var oft hömluð af metnaði og tækni sem átti í erfiðleikum að standa undir henni.



Hvernig leikurinn hefur breyst frá útgáfu
Á undanförnum mánuðum fékk leikurinn ýmsar viðbætur sem gerðu hann betri, eins og;
- Betri stuðningur við gervigreindaruppskölunartækni eins og DLSS og FSR.
- Nýtt farartæki til að ferðast um á plánetunum.
- Kort leiksins endurhönnuð og varð auðveldara að fatta hvert maður var að fara í leiknum.
- Aðgengi og erfiðleikastillingar fengu endurbætur.
- Hægt var að velja á milli á spila í 30 eða 60 römmum á sekúndu á Xbox Series leikjavélunum.
- Creation Kit búðin kom og bætti við möguleikum á fríu og keyptu viðbótarefni sem aðrir leikmenn bjuggu til.
- Shattered Space DLC pakkinn kom út ári eftir útgáfu, og kannaði Va-ruun sértrúarsöfnuðinn og heimaplánetu þeirra.

Eftir að stóri aukapakkinn kom út þá varð minna um fréttir af leiknum þó hann hélt áfram að fá smærri viðbætur og lagfæringar. Orðrómar byrjuðu að spretta upp um að Bethesda og Microsoft væru að vinna að stórum endurbætum á leiknum, þó að þeir neituðu fyrir það. Svo fyrr í vor á þessu ári kom í ljós að það væri í raun verið að vinna að stærri breytingum á leiknum sem myndu skila sér í byrjun apríl, þegar að langþráða PlayStation 5 útgáfa leiksins kæmi loksins út.
Stærstu hlutirnir sem komu út á sama tíma og PS5 útgáfa leiksins voru; Free lanes sem er frí viðbót og endurbæting á leiknum fyrir alla þá sem eiga leikinn eða kaupa hann, og síðan Terran Armada sem er næsti DLC pakki fyrir leikinn og er hægt að kaupa á um $10 eða um 1300 íslenskar krónur. Hægt er síðan að kaupa Premium Edition uppfærslu við leikinn sem inniheldur, Terran Armada og Shattered Space DLC pakkana, 1000 Creation Credits til að eyða í Creation Kit búð leiksins, litla pakka sem innihalda ný útlit á vopnum og brynjum leiksins og að lokum aðgang að tónlist leiksins og bók með myndefni úr leiknum. Þetta kostar um $25 eða rétt yfir 3000 krónur.r.
Free Lanes bætir við Cruise mode sem leyfir þér að ferða á milli pláneta í sólkerfi, hægt að setja skiptið á sjálkeyrslu og leyft þér að fara um skiptið og brasa á meðan ferðalaginu stendur. Bætir við nýjum atburðum og stöðum til að kanna. X-tech er ný viðbót sem er hægt að nota til að uppfæra vopn og geimskip leikmanna. Hægt er að deila hlutum á milli hina ýmsu geimstöðva sem leikmenn hafa búið til í vetrarbrautinni.
Terran Armada er nýr sögu niðurhalspakki sem er hægt að kaupa stakan eða sem hluta af „premium Edition“ hluta leiksins. Pakkinn bætir við nýjum liðsmanni, vélmenninu Delta, „incursion“ er nýtt kerfi í leiknum sem á að gera endur spilunar og enda hluta leiksins fjölbreyttari og lengri í spilun. Nýir hlutir fyrir geimskip og brynjur og vopn eru hluti pakkans. Anchorpoint er geimstöð sem er hægt að eignast í gegnum söguna.
Leikurinn styður við PlayStation 5 og PlayStation 5 Pro leikjavélar Sony. Á PS5 Pro er hægt að njóta leiksins í allt að 4K upplausn á 30 römmum á sek, eða 60 römmum með Performance mode og notast bæði við PSSR uppskölunartækni Sony. Leikurinn styður síðan við hluti eins og trophies, SSD tækni Sony og alla helstu möguleika DualSense fjarstýringarinnar

Er þetta Starfield 2.0?
Margir sem höfðu spilað Starfield leikinn voru að vonast til að þessar nýju uppfærslur leiksins myndi endurvekja og betrumbæta hann á sama vegu og t.d. No Man‘s Sky, Halo: Master Chief Collection, Diablo 3, Final Fantasy XIV og Cyberpunk 2077. Þeir gengu í gegnum stórar umbreytingar og náðu að endurvekja traust og áhuga leikmanna á ný eftir oft erfiða útgáfu þar sem ýmis hönnunar- og tæknimál gerðu næstum því út við leikina í byrjun.
Því miður er ekki hægt að segja það sama um Starfield, þessar viðbætur við leikinn hafa án efa gert hann betri og hann er í betra ástandi en hann var við útgáfu hans fyrir tæpum þremur árum síðan. Að hann loksins komin út á PlayStation leikjavélarnar er góðar fréttir fyrir þá sem hafa gaman af sci-fi leikjum og inniheldur leikurinn gríðarlegt efni af hlutum að spila og kanna og er vel þess virði að kíkja á.
En það er ljóst að það þarf meira til ef að leikurinn ætti að taka þeim grundvalla breytingum margir voru að leitast eftir
Það er viðbúið að Creation Engine vélin sem keyrir leikinn sé hans stærsta hindrun að búa til þann opna heim sem bæði leikmönnum og framleiðendum hans dreymir um. Það eru oft margir hleð skjáir og valmyndir sem þarf oft að kljást við sem ná að draga upplifunina niður. Margir sáu örugglega fyrir sér að saumlausa upplifun að fara frá plánetu og upp í geim og fljúga á milli sólkerfa. Í stað þess er heimurinn uppfullur af hleðslusvæðum á milli hluta hans og heimi sem oft virkar tómur og án tilfinninga þar sem mikið af honum er búið til handahófskennt af tækni leiksins í stað smærri og hnitmiðaðri leik.

Er leikurinn þess virði?
Að mínu mati er hann það enn í dag, og hvað þá ef að leikmenn hafa ekki náð að spila leikinn áður og voru ekki með aðgang að PC og Xbox vélum til að spila hann á. Starfield er góð viðbót í PlayStation leikjaflóruna þó að hann sé ekki jafn mikil endurfæðing á leiknum og sumir vonuðust eftir. Við höfum vonandi Starfield 2 einhver tímann í framtíðinni til að ná að gera margt af því sem þessi nær ekki að gera. Efniviðurinn og heimurinn er til staðar og er vonandi að við fáum að sjá meira af þessum heimi.
Fyrir PlayStation 5 og PlayStation 5 Pro eigendur, ég segi bara við ykkur, endilega skoðið þennan leik nánar, hann er langt frá að vera gallalaus, en fáir leikir eru það. En það er eitthvað við hann sem heillar mig þrátt fyrir allt og er búið að vera gaman að spila í gegnum hann aftur á PS5 Pro vélinni minni og þvælast á milli stjarnanna og skoða allt það nýja sem þessi útgáfa hefur uppá að bjóða.
Við erum með ítarlega gagnrýni af leiknum frá að hann kom út sem ég endilega mæli með að fólk skoði nánar, það fer betur í gegnum grunn hluta leiksins, sögu og aðra parta hans og ætti að gefa góða grein að því hvort að leikurinn höfði til fólks.
Eintak var í boði útgefanda
Starfield mætir á PlayStation
Það góða
- Frelsi að spila
- Metnaðarfullur leikur
- Mikil ending
- Hægt að endurspila söguna oft
- Hægt að fara með vissa hluti á milli New Game+
Það slæma
- Stundum tómur heimur
- Adoring Fan
- Ýmsir tæknilegir gallar
- Tapað tækifæri að endurbæta leikinn meira
