Pizzan heimsendir er titill á nýjum smáleik sem Pizzan birti á dögunum. Í leiknum stýrir þú sendli á vegum Pizzunar sem þarf að safna pizzakössum og um leið forðast uppvakninga sem ráfa um Reykjavíkurborg. Markmiðið er að klára heimsendingarnar og safna stigum. Sá spilari sem er með flest stig kl. 23:59 sunnudaginn 1. nóvember vinnur og fær 50.000 kr. inneign hjá Pizzunni.
Spila leik

