Það er alltaf spennandi þegar tölvuleikir þora að fara nýjar leiðir og bjóða upp á eitthvað ferskt. Control Resonant vakti strax áhuga minn með súrrealískri útgáfustiklu og það þurfti ekki mikið til að sannfæra mig um að kaupa leikinn. Hann er þróaður af finnska leikjafyrirtækinu Remedy Entertainment (Max Payne, Alan Wake) og er beint framhald Control frá árinu 2019. Remedy heldur í ýmis sérkenni fyrri leiksins en umbyltir jafnframt nógu miklu til að útkoman verði fersk og áhugaverð.
Ný hetja og nýtt bardagakerfi
Í fyrri leiknum, Control, stjórnaði spilarinn Jesse Faden í leik sem notaði fantasíu-byssur til að berjast gegn óvinum. Í Control Resonant er tekin snörp U-beygja þar sem þú spilar nú sem bróðir Jesse, Dylan Faden, sem notar fantasíu-návígisvopn eins og sverð, ljá og sleggju. Með þessari nálgun nær Remedy að hrista hressilega upp í leiknum sem býður upp á aðra nálgun og annarskonar spilun en fyrri leikurinn.
Í Control Resonant er tekin snörp U-beygja þar sem þú spilar nú sem bróðir Jesse, Dylan Faden, sem notar fantasíu-návígisvopn eins og sverð, ljá og sleggju.
Dylan hefur verið innilokaður hjá Federal Bureau of Control (FBC) í nokkur ár og er notaður sem vopn gegn ofurnáttúrulegum öflum sem hafa tekið yfir Manhattan. Í leiknum ferðast Dylan í gegnum nokkur ólík svæði þar sem ófreskjur og yfirnáttúrlegar ógnir leynast. Sagan er áhugaverð en jafnframt furðuleg og getur verið torskilin á köflum. Eftir því sem á líður á leikinn verður framvindan sífellt súrrealískari og minnir stundum á leik eftir Hideo Kojima, þar sem gengið er að mörkum raunveruleikans.

Brýtur lögmál raunveruleikans
Það tók nokkurn tíma fyrir leikinn að fanga mig. Eftir um tveggja klukkutíma spilun náði leikurinn að halda mér við efnið en heillaði mig þó ekkert sérstaklega. Leikurinn verður betri með tímanum og með uppgötvun nýrra svæða, óvina og hæfileika sem Dylan öðlast í leiknum breyttist Control Resonant úr ágætis leik yfir í mjög góðan leik. Leikjaumhverfið er eitt helsta aðdráttarafl leiksins og verður sífellt áhugaverðara og súrrealískara eftir því sem á líður. Borgin fer að beygja sig og togast í ýmsar áttir og mismunandi víddir líkt og við sáum í Inception eftir Christopher Nolan.
Listræn nálgun er framúrskarandi í leiknum.
Listræn nálgun er framúrskarandi í leiknum. Rauð lýsing setur einkenni sinn á leikinn og samsetning martraðarkenndra vera úr heimi vísindaskáldskaps og hryllings kemur virkilega vel út og skapar sjónræna heild sem vekur athygli.

Ekki fyrir viðkvæma eða óþolinmóða
Leikurinn er í erfiðari kantinum, en þar sem stór hluti hans gerist á opnum svæðum er oft hægt að flýja átök eða laumast fram hjá óvinum. Þannig getur spilarinn komist hjá bardögum sem reynast of erfiðir. Það dugar ekki bara að hamra af handahófi á takkana til að rústa óvinum, heldur þarf spilarinn að beita taktík og réttri tímasetningu. Þetta getur reynst erfitt í mörgum bardögum þar sem óvinirnir eru margir eða öflugir. Leikurinn á að vera í erfiðari kantinum en þar sem stór hluti leiksins gerist á opnum svæðum er hægt að flýja bardaga eða jafnvel fara framhjá óvinum og sleppa þannig algjörlega við bardagana. Í upphafi leiks er ekkert val um erfiðleikastig en í stillingum leiksins er þó blessunarlega hægt að breyta þeim þannig að leikurinn henti betur þínum spilunarstíl.
Samantekt
Remedy tekur ákveðna áhættu með því að breyta Control Resonant svo mikið frá fyrri leiknum, en sú áhætta skilar sér vel. Útkoman er krefjandi hasarleikur með einstakan leikjaheim, eftirminnilegan listrænan stíl og bardagakerfi sem krefst bæði útsjónarsemi og réttrar tímasetningar. Erfiðleikastigið gæti fælt suma frá, en möguleikinn á að breyta því gerir leikinn aðgengilegri. Control Resonant er frábær leikur fyrir þá sem vilja prófa eitthvað ferskt, kunna að meta súrrealíska upplifun og hafa gaman af krefjandi bardögum.
Ítarlegri umfjöllun og leikjarýni má finna á YouTube-síðu Nörd Norðursins og þætti 73 af Leikjavarpinu.
Control Resonant
Krefjandi og súrealískur hasarleikur sem brýtur upp hefðbundnar formúlur og býður upp á einstakan leikjaheim.
Það góða
- Mjög flottur leikjaheimur
- Fersk og fjölbreytt nálgun
- Útlit og listræn framsetning
- Sérkennileg saga
Það slæma
- Einhæfir kaflar
- Hæg byrjun
- Sum verkefni óskýr
