Það tók ekki nema um rétt átta ár – en búið er að staðfesta nafnið á næsta Elder Scrolls leik. Leikurinn mun heita The Elder Scrolls VI: Sentinel og var kynntur á 40 ára afmæli Bethesda Studios
Upprunalega var leikurinn kynntur í stuttu myndbroti á E3 árið 2018, þar kom reyndar lítið fram annað en að þetta væri næsti leikurinn í Elder Scrolls seríunni og sýnt landslag án útskýringa. Síðan þá hefur fólk rýnt mikið í stikluna og þær fáu upplýsingar sem hafa verið gefnar út um leikinn.
Sentinel er nafn á einni af aðalborgum Hammerfell svæðisins og deilir landamærum með Cyrodil (þar sem Oblivion gerist), Skyrim og síðan High Rock. Hingað til hefur bara verið hægt að spila Hammerfell og High Rock í eldri Elder Scrolls leikjunum í seríunni ásamt fjölspilunarleiknum The Elder Scrolls Online.
Þar sem að nafnið er loksins orðið ljóst er von hjá mörgum spilurum að við munum fá meiri upplýsingar um leikinn á næstu mánuðum og árum. Talið er að það sé alveg lágmark tvö ár í að TES VI: Sentinel komi út, en það er engin leið að vita það samt fyrir víst á þessari stundu. Bethesda Softworks hefur síðustu árin haldið aftur af sér höndum við að kynna leikina sína, nema þegar stutt er í útgáfu þeirra.
The Video Game Awards verður haldið í næsta mánuði og kannski fáum við einhverja mola af upplýsingum þá.
Við vonum það besta.
