Fallout 76 er stóri leikurinn frá Bethesda á E3 þetta árið og staðfest að heimurinn í nýja Fallout leiknum mun vera fjórum sinnum stærri en í Fallout 4. Fallout 76 er stóri leikurinn frá Bethesda á E3 þetta árið og staðfest að heimurinn í nýja Fallout leiknum mun vera fjórum sinnum stærri en í Fallout 4. Leikurinn gerist á undan öllum öðrum í seríunni og segir frá þeim sem koma úr Vault 76 í Vestur-Virginíu fylki í Bandaríkjunum. Hvelfingin er nefnd eftir 300 ára afmæli Bandaríkjanna og er tákn um þá endurreisn sem á að eiga sér stað eftir að…
Author: Sveinn A. Gunnarsson
Wolfenstein: Youngblood segir frá tvíburadætrum BJ Blazkowicz og gerist árið 1980 í París. Leikurinn býður upp á einspilun og co-op samvinnuspilun og er væntanlegur í verslanir á næsta ári. Um er að ræða smærri leik í anda Old Blood. Dætur Blazkowicz, Jess og Soph eru að leita að föður sínum í París og meðan borgin er yfirfull af nasistum. Í myndbrotinu sjást stúlkurnar í búningi sem svipar til búningsins sem faðir þeirra notaði í New Colossus. Wolfenstein II: The New Colossus mun koma út fyrir Nintendo Switch, þann 29. júní næsta og kom út á PC, PS4 og Xbox One í…
Fyrir utan Doom, þá er Quake einn af kjarna titlunum sem id Software hafa verið þekktir fyrir. Quake Champions er búin að vera í þróun og prófunum í þó nokkurn tíma á PC og er stefnan að gera leikinn vænlegri fyrir eSports keppnisheiminn. Í viku verður hægt að prufa leikinn frítt til að sjá hvernig fólki líkar við leikinn, og þeir sem sækja leikinn á þessum tíma geta haldið áfram að spila hann eftir að prufuvikunni lýkur. Viltu fleiri fréttir frá E3 2018? Smelltu hér!
Sýndur var blóðug og grimm stikla á E3-kynningu Bethesda, sem getur bara þýtt eitt. Og það er meira af DOOM! Leikurinn frá 2016 var tær snilld og kom mikið á óvart, sérstaklega eftir vandræði tengd framleiðslu hans. Leikurinn kom út fyrir Nintendo Switch í fyrra og kom vel út á þeirri leikjatölvu. Betri vopn, fleiri djöflar, eyðilegging á jörðinni, allt er þetta hluti af nýja leiknum. QuakeCon í ágúst mun verða vetvangurinn fyrir nánari kynningu af leiknum og var þessi stutti hluti bara til að gera fólk spennt. Viltu fleiri fréttir frá E3 2018? Smelltu hér!
Bethesda hefur haldið árlega kynningu undanfarin fjögur ár þar sem fyrirtækið hefur kynnt sína tölvuleikjatitla. Fyrirtækið hefur vaxið mikið síðustu árin með kaupum á fyrirtækjum eins og id Software, Arkane Studios, Tango Gameword og Machine Games og eru 10 fyrirtæki innan vébanda þess í dag. Rage 2 er unnin af sænska fyrirtækinu Avalanche Studios og id Software sem gerðu fyrsta Rage leikinn. Leikurinn lítur út fyrir að vera blanda af Fallout og Mad Max. Heppilegt að Avalanche gerðu Mad Max leikinn árið 2015 sem var mjög góður að okkar mati. Leikurinn virðist vera miklu opnari en Rage 1, en spilarar…
Nýtt sýnishorn úr nýjasta leik CD Project Red, Cyperpunk 2077, var sýnt á E3-kynningu Microsoft. Nýja stiklan gefur góða hugmynd af sögusviði leiksins sem er uppfullur af áhugaverðri tækni. Leikurinn byggir á Cyberpunk D&D hlutverkakerfinu sem svo margir halda upp á. Að fá svona stóran leik í slíkum heimi er mjög spennandi, engin dagsetning var uppgefin. Cyberpunk 2077 ætti að skila sér á PC, Xbox One og PS4 þegar hann verður gefinn út, nema hann færist eitthvað til í átt að næstu kynslóð leikjatölva. Viltu fleiri fréttir frá E3 2018? Smelltu hér!
Gears of War POP fígúrur koma á skjáinn og mæta á iOS og Google PlayStore í nýjum leik sem heitir Gears Pop. Gears Tactics er væntanlegur á PC í herkænsku leik í anda X-Com leikjanna. Rod Ferguson hjá Coallition Studios staðfestir á E3-kynningu Microsoft að fyrirtækið er að vinna að gerð Gears of War 5. Cade, JD Fenix og Marcus Fenix mæta nýrri ógn og kanna ný leyndarmál. Umhverfin eru fjölbreytt og má sjá frumskóga og kalda vetrarheima í nýju sýnishorni. Viltu fleiri fréttir frá E3 2018? Smelltu hér!
Heimurinn er í rústi og þú ert staddur í „nútíma miðöldum“. Nú eiga ákvarðanir leikmanna eftir að hafa áhrif á heiminn sem þú spilar í. Í leiknum er að finna nokkuð djarfa blöndu af Parkour-spilun og RPG-leik. Í Dying Light 2 ráða fylkingar borginni og þurfa leikmenn að eiga við þær. Í einu verkefni sem var sýnt úr þá þarf persónan að hjálpa til við að koma vatni til fólks og þess hóps sem stjórnar. En þínar ákvarðanir munu hafa misgóðar afleiðingar í för með sér fyrir þig og fólkið í borginni. Viltu fleiri fréttir frá E3 2018? Smelltu hér!
Nýtt sýnishorn úr Metro: Exodus var sýnt á E3-kynningu Microsoft þetta árið. Að þessu sinni hefur yfirborð heimsins stærra hlutverki en áður. Ekki leiðinlegt að heyra smá Massive Attack tóna í stiklunni sem hægt er að horfa á hér fyrir neðan. Leikurinn er væntanlegur í verslanir 22. febrúar 2019, sem virðist ætla að verða stór og dýr dagur fyrir veski leikjaunnenda. Hinn eyðilagði heimur Metro er stærri og grimmari en nokkru sinni áður og verður gaman að sjá hvert þessi leikur fer með seríuna. Viltu fleiri fréttir frá E3 2018? Smelltu hér!
The Division 2 færir hasarinn til Washington DC. Bandaríkin eru á barmi borgarastríðs og þurfa leikmenn að berjast til að halda landinu saman aftir atburði fyrsta leiksins og sjúkdómsins sem þurrkaði út svo marga. Það hafa liðið sex mánuðir frá atburðum síðasta leiks og gerist leikurinn núna að sumri til. Co-op samvinna er enn og aftur aðalmálið. The Division 2 verður gefinn út 19. mars 2019. Viltu fleiri fréttir frá E3 2018? Smelltu hér!