Bækur og blöð

Birt þann 5. maí, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Ókeypis myndasögudagurinn 2013 [MYNDIR]

Ljósmyndari frá Nörd Norðursins skellti sér á Ókeypis myndasögudaginn hjá Nexus í gær. Klukkan var orðin eitthvað yfir tvö þegar hann mætti og meira en klukkutíma síðan að viðburðurinn byrjaði, þrátt fyrir það var enn nokkuð löng röð fyrir framan Nexus á Hverfisgötunni. Fréttastofa RÚV og Stöð 2 litu einnig við fyrr um daginn og ræddu við nokkra flotta myndasögunörda.

Að venju fengu allir ókeypis myndasögublöð og var úr mörgum titlum að velja. Þar var m.a. nýjasta tölublaðið af ÓkeiPiss, Súperman myndasaga, Strawberry Shortcake, The Simpsons, The Walking Dead, Mass Effect og fleira.

Við þökkum Nexus fyrir skemmtilegan og vel heppnaðan Ókeypis myndasögudag!

– Bjarki Þór

Tengt efni:
Ókeypis myndasögudagurinn 2011
Ókeypis myndasögudagurinn 2012

 

Deila efni

Tögg: , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑