Íslenski tölvuleikurinn 12 Stacks of Christmas er kominn út. Leikurinn er fáanlegur á Apple App Store fyrir iPad og kostar lítil 99 bandarísk sent. Hjónin Friðrik Magnússon og Guðný Þorsteinsdóttir eru höfundar leiksins, en þau sérhæfa sig í gerð tölvuleikja og markmiðlunarefnis. Það er fyrirtækið Ís-Leikir ehf. sem gefur leikinn út og í fréttatilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í dag, miðvikudaginn 7. desember, er leiknum líst svona: Stacks er eðlisfræðileikur sem gengur út á að stafla jólgjöfum á bakka sem fjölskyldumeðlimir halda á. Ekki má missa of marga pakka og alls ekki má missa bakkana sem pakkarnir eiga að vera…
Author: Nörd Norðursins
Veðrið er nýr íslenskur og ókeypis aukahlutur (widget) í Android snjallsíma. Veðrið er væntanlegt í iPhone á næsta ári en í fyrstu útgáfunni (sem er nú fáanleg) verður hægt að finna upplýsingar um vindátt, meðalvind- og hámarksvindhraða síðastliðnu tíu mínútur, hita, veghita, raka, umferð og fleira. Það eru þeir Guðmundur Hallgrímsson og Ólafur Helgi Haraldsson sem standa á bak við þennan skemmtilega aukahlut. Aukahlutnum er líst á eftirfarandi hátt á Vedrid.com: Veðrið birtir upplýsingar um íslenskt veður á því formi sem flestir þekkja, veðurskiltum Vegagerðarinnar. Þar að auki bíður græjan upp á greiðan aðgang að nánari upplýsingum um vind, vindhviður, hita,…
Flestir nördar fæðast með áhuga á vísindaskáldskap. Í vísindaskáldskap má finna samblöndu af því helsta sem kætir okkur; framtíðin, geimvísindi, geimverur, vélmenni, gervigreind, tímaflakk, geislabyssur, tækni, fjarhrif og yfirnáttúrulegir hlutir. Jóhann Þórsson hefur leitt okkur í gegnum fimm bestu vísindaskáldsögur allra tíma síðastliðnar vikur og mánuði, og nú liggur fyrir hverjar þessar fimm sögur eru: 1. Gateway (1977) eftir Frederik Pohl. 2. 1984 (1949) eftir George Orwell. 3. Neuromancer (1984) eftir William Gibson og Snow Crash (1992) eftir Neal Town Stephenson. 4. Rendezvous With Rama (1973) eftir Arthur C. Clarke. 5. Dune (1965) eftir Frank Herbert. Ert þú…
Jóhann Þórsson fjallar um FIMM BESTU VÍSINDASKÁLDSÖGUR ALLRA TÍMA. Gateway, eftir Frederik Pohl. Mannkynið hefur heimsótt Venus, og fundið þar eitthvað áhugavert. „When men began to poke around on the surface of Venus they found the Heechee diggings.“ Þar finnst kort af sólkerfi okkar, með plánetunum greinilega merktum inná. En að auki er einn hlutur merktur. Smástirni. Það er um tíu kílómetrar að lengd og perulaga. Að utan virðist smástirnið brennt, þó glittir í blátt á stöku stað. Að innan var alheimurinn mönnunum skyndilega aðgengilegur. Smástirnið fékk nafnið Gateway. Þegar Gateway fannst og var skoðað kom í ljós að í því…
George Lucas eyðilagði Star Wars! Plútó er pláneta! Comic Sans er hræðilegt! DC er betra en Marvel! Og Jedi myndi rústa Súperman í slag! UUURRRGGG!!!
Lengi hefur verið deilt um hvort ofbeldi í tölvuleikjum hafi slæm áhrif á spilara þeirra og ýti undir tilhneigingu til ofbeldis. Það má flokka skoðanir manna í tvo hópa; annar heldur því fram að ofbeldisleikir ýti undir árásargirni spilara og hinn hópurinn segir engin tengsl þar á milli. Skiptar skoðanir eru um málefnið og verða báðar hliðar málsins skoðaðar í þessari grein. Dr. Guðbjörg Hildur Kolbeins er doktor í fjölmiðlafræði og kennari við Háskóla Íslands. Í tímaritinu Uppeldi er grein frá 2004 eftir Guðbjörgu sem ber heitið „Eru tölvuleikir skaðvaldur eða saklaus skemmtun?” þar sem hún tekur fyrir ofbeldisleiki og áhrif…
Í þessum skemmtilega fyrirlestri fjallar rithöfundurinn og hugsuðurinn Gabe Zichermann um hvernig leikjahugsun (gamification) getur gagnast við hinar ýmsar aðstæður, hvernig krakkar geta lært af tölvuleikjum, og hina svokallaða G kynslóð. Fyrirlesturinn er hluti af TEDxKids@Brussels. – BÞJ
Eftir langa bið hef ég loksins komist í aðklára seinni greinina um Tinnabækurnar og kynnumst við tveim liðsfélögum Tinna sem allir kannast við; Kaftein Kolbein og Prófessor Vandráð. Meðal annars verður farið í gegnum Tinnabækurnar þrjár sem kvikmynd Spielbergs er byggð á en ég mun ekki spilla þeirri mynd fyrir þeim sem ekki hafa séð hana. Skurðgoðið með skarð í eyra Sjötta og skemmtilegasta Tinnabókin hingað til að mínu mati. Þegar skurðgoði er rænt af safni og skilað aftur, ákveður Tinni að komast til botns í málinu. Í ljós kemur að skurðgoðið, sem skilað var til safnsins, er eftirlíking…
Lego kubbar + Call of Duty Modern Warfare 3! Tengt efni: Lego + GOW
Leikurinn er framleiddur af Rocksteady Studios og byggir á magnþrungnu og dimmu umhverfi forverans, Batman: Arkham Asylum, sem setur spilarann í hörkuna sem er í Arkham City, „heimili“ fanga sem ættu að vera í hámarks öryggisfangelsi. Þar eru hýstir helstu hrottar, mafíósar og illmenni Gotham City. Batman: Arkham City skilar upplifuninni að vera Batman með góðum og djúpum söguþræði, stórum götubardögum, spennandi laumuspili, marghliða kerfi til að safna og kanna sönnunargögn, epískum ofur-illmennum og óvæntri innsýn inn í hugarheim Batman. Spilaðu sem Catwoman Catwoman er spilanleg persóna í Batman: Arkham City og hefur hún sinn eiginn söguþráð sem er…