Primer (2004) Primer er mjög ólík öðrum tímaflakksmyndum. Hún er að hluta til eins og heimildarmynd eða að því leyti að um 95% myndarinnar eru einfaldlega samtöl milli persóna. Allt er útskýrt í gegnum þessar samræður þannig að myndin gerir þær kröfur til áhorfandans að fylgjast vel með og reyna að fylla upp í eyðurnar. Það er engin hefðbundin kynning á persónum; myndin hefst á brainstorming session hjá metnaðarfullum verkfræðingum sem eru að hanna tæki utan vinnutíma og þeir tala eins og verkfræðingar myndu tala saman. Þannig að alveg frá byrjun er áhorfandinn að reyna finna út hvað sé í…
Author: Nörd Norðursins
Vefsíðurnar Film Nerd 2.0: Star Wars | A New Hope | The Empire Strikes Back | The Phantom Menace | Attack of the Clones | Revenge of the Sith | Return of the Jedi | Kvikmyndanördinn Drew McWeeny, betur þekktur sem Moriarty á Ain’t It Cool News, horfir á allar Stjörnustríðsmyndirnar með drengjunum sínum og deilir upplifun sinni og fjölskyldu sinnar um áhorf myndanna. Hann horfði á þær ásamt drengjunum sínum í eftirfarandi röð: A New Hope, The Empire Strikes Back, The Phantom Menace, Attack of the Clones, Revenge of the Sith og að lokum Return of the Jedi. Upplifun drengjanna og…
Það getur leynst ansi mikill viðbjóður í græjunum okkar! – BÞJ Heimild: Mashable
Jóhann Þórsson fjallar um FIMM BESTU VÍSINDASKÁLDSÖGUR ALLRA TÍMA. 1984 1984 er ein af þeim bókum sem ég var skikkaður til að lesa í skóla; settir voru fyrir einn og einn kafli sem síðan voru ræddir í þaula. Þetta er yfirleitt frábær leið til að tryggja það að nemendur fyrirlíti viðkomandi bók og geti ekki heyrt á hana minnst án þess að fá kjánahroll upp í hvirfil. Það átti þó ekki við um 1984, sem mér var sett fyrir þegar ég var 14 ára. Þegar ég var búinn með tvo kafla var ég viss um að einhver mistök hefðu…
Fyrstu tilraunir Í fyrsta tölvuleiknum sem var hannaður árið 1958 var ekkert hljóð. William Higinbotham náði að hanna tölvuleik sem líktist tennisspili á sveiflusjá (tæki til þess að sýna lotubundnar breytingar á rafrænum stærðum t.d. spennu eða straumi). Það var ekki fyrr en 14 árum síðar sem Noland Bushnell fékk í lið með sér tvo félaga sína, Ted Dabney og Allan Alcorn til þess að hanna leikinn Pong. Noland vildi hafa hljóð í leiknum, helst fögnuð áhorfenda þegar maður fékk stig í leiknum. Dabney hafði hugmyndir um að hafa hljóð áhorfenda til að túlka óánægju þegar maður missti stig. Allan…
Nú þegar vetur er að ganga í garð eykst sjónvarpsefni til muna og fyrir þá sem vilja þættina sína með yfirnáttúrulegu ívafi og/eða nördalegum elementum, þá er af nógu að taka. Þetta er stutt samantekt af þeim þáttum sem eru í áhorfun hjá greinarhöfundi eins og er. The Walking Dead Labbandi dauðir fjallar um það sem stundum er kallað Zombocalypse þ.e.a.s. þegar heimurinn er undirlagður af uppvakningum og þeir fáu sem lifa af þurfa að berjast fyrir lífi sínu. Þættirnir komu skemmtilega á óvart á síðasta ári og margir hafa beðið eftir öðru tímabilinu sem hófst nýlega með…
Íslenskt Battlefield 3 myndband hefur náð miklum vinsældum á YouTube. Um hádegi í dag hafði myndbandið verið spilað yfir 270.000 sinnum á aðeins fimm dögum, en myndbandið var sett á YouTube þann 4. nóvember. Birgir Páll, 24 ára gamall Starcraft 2 spilari, setti myndbandið saman og segir að fleiri séu í vinnslu. Hægt er að horfa á myndbandið hér fyrir neðan. – BÞJ Heimild: eSports.is
Siri er þinn persónulegi aðstoðarmaður í iPhone 4S sem kom í verslanir 14. október síðastliðinn. Í stuttu máli getur Siri aðstoðað notandann í gegnum raddskipanir (á ensku, frönsku eða þýsku). Siri getur m.a. stillt vekjaraklukkuna, fundið miða á tónleika, sent og skrifað SMS og gefið þér upplýsingar um nánast hvað sem er. Möguleikar Siris eru þó að einhverju leiti háðir því hvar notandinn er staddur í heiminum. Hér fyrir neðan er að finna nokkur áhugaverð myndbönd sem sýna hvernig Siri virkar – og virkar ekki! Furby og Siri ræða saman Loð- og bullboltinn Furby ræðir við Siri í þessu…
Warhammer 40.000: Space Marine kom í verslanir 6. september síðastliðinn og gerist í hinum geysivinsæla Warhammer 40.000 heimi sem breski spilaframleiðandinn Games Workshop skapaði. Tölvuleikurinn spilast ekki eins og hernaðarspilið Warhammer 40.000, sem er spilað með fígúrum, teningum og öflugu ímyndunarafli, heldur sem þriðju persónu hjakk-og-högg (hack and slash) skotleikur. Sagan Óteljandi orkar hafa ráðist á Imperial Forge World, sem er risavaxin verksmiðja þar sem vopn eru framleidd í varnarskyni fyrir mannkynið. Örlög mannkynsins liggja í höndum spilarans sem spilar sem geimhermaðurinn Titus sem verður að verja verksmiðjuna gegn árásum orka og annara illmenna. Sagan er knúin áfram með stuttum…