Fréttir1

Birt þann 18. janúar, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins

2

Mótmælum SOPA!

Í dag, 18. janúar, mun fjöldi vefsíðna mótmæla SOPA frumvarpinu með því að loka síðunum sínum tímabundið. Wikipedia,  reddit,  Mozilla,  FailBlog, theDailyWhat, Know Your Meme,  MineCraft, RageMaker, Tucows, Destructiod, VanillaForums og WordPress eru meðal þeirra sem styðja og/eða munu taka þátt í mótmæla aðgerðunum.

SOPA (Stop Online Piracy Act) og PIPA (Protect IP Act, eða Preventing Real Online Threats to Economic Creativity and Theft of Intellectual Property Act) eru bandarísk frumvörp um reglur sem eiga að nýtast til þess að stöðva ólöglega dreifingu höfundaréttarvarins efnis á Internetinu, t.d. kvikmyndir, tónlist, sjónvarpsþættir, tölvuleikir og fleira. Það sem gerir SOPA og PIPA fyrst og fremst að umdeildum frumvörpum eru völdin sem fyrirtækjum og bandarísku ríkisstjórninni eru gefin, en  samkvæmt reglunum mega þau meina netverjum í Bandaríkjunum aðgangi að tilteknum vefsíðum sem þau telja að brjóti þessar tilteknu reglur.

Hægt er að lesa nánar um SOPA og PIPA með því að smella hér.

Ritstjórn Nörd Norðursins styður mótmælaaðgerðirnar heilshugar og fordæmir SOPA og PIPA frumvörpin.

Hér fyrir neðan er að finna tvö stutt myndbönd sem útskýra SOPA og PIPA í stuttu máli.

Ritstjórn

Heimild: STRIKE AGAINST SOPA

Deila efni

Tögg: , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



2 Responses to Mótmælum SOPA!

  1. Pingback: Afmælispistill | Nörd Norðursins

  2. Pingback: CISPA: Njósnað um netverja | Nörd Norðursins

Skildu eftir svar

Efst upp ↑