Author: Nörd Norðursins

Birt af ritstjórn

Matt og Asia mynduðu sterk tengsl þegar þau spiluðu tölvuleikinn Minecraft. Þau byggðu hús saman í hinum kubbalaga Minecraft heimi og síðan þá hafa þau verið óaðskiljanleg í leiknum, og utan hans. Matt bað Asia um að giftast sér uppi á sviði á MineCon ráðstefnunni með aðstoð leikjahönnuðanna, þannig að það kom í raun engum á óvart að þau tvö ákváðu að hafa Minecraft þema í brúðkaupinu. Myndir segja meira en þúsund orð. Heimild og myndir: The Goodness – BÞJ

Lesa meira

Wizards of the Coast hafa gefið út lítinn, ókeypis prufupakka sem gerir fólki kleift að spila stutt ævintýri. Ég hef sjálfur rennt létt yfir þennan pakka og sýnist mér að viðkomandi þurfi ekki að vera sérfræðingur í D&D eða spunaspilum yfir höfuð. Í þessum pakka er lítið ævintýri og fimm tilbúnir karakterar, ásamt reglum og upplýsingum um hvernig skuli spila ævintýrið. Það eina sem þarf að gera til þess að taka þátt í ævintýrinu, fyrir utan innihald pakkans, er prentari til að prenta út upplýsingar um karakterana (þ.e.a.s. ef þú kýst að hafa þær útprentaðar) ásamt skriffærum. Einnig þarf D&D…

Lesa meira

Sleepaway Camp er hryllingsmynd frá níunda áratugnum sem fáir hafa heyrt um. Myndin fjallar um frændsystkinin Angelu (Felissa Rose) og Ricky (Jonathan Tierston) sem fara í sumarbúðir. Átta árum áður lenti fjölskylda Angelu í hræðilegu slysi sem varð til þess að hún flutti til frænku sinnar Mörthu (Desiree Gould) og sonar hennar Ricky. Angela er mjög feimin og þögul og er mikið strítt vegna þess; Ricky gerir það sem hann getur til þess að vernda frænku sína. Þegar hver stríðnispúkinn af öðrum lendir í banaslysi beinast spjótin að hinni þöglu Angelu og kjaftfora Ricky. Þegar það færist í aukana skýrast…

Lesa meira

Indie Game: The Movie er heimildarmynd um sjálfstætt starfandi leikjaframleiðendur þar sem áhorfandinn fær að kynnast nokkrum frægum leikjahönnuðum sem hafa búið til vinsæla leiki, eins og t.d. Super Meat Boy, FEZ og Braid. Myndin kemur út 12. júní 2012 og er stefnt á nýstárlegan útgáfumáta því hægt verður að streyma myndina beint af netinu eða kaupa háskerpu útgáfu. Myndin hefur fengið m.a. lent á Critics’ Pick-lista The New York Times og hlotið verðlaun fyrir klippingu á Sundance kvikmyndahátíðinni. Hægt er að forpanta myndina fyrir $9,99 á heimasíðu myndarinnar eða á $8,99 á Steam hér. Já lesandi góður, þú last rétt.…

Lesa meira

Í gær voru vinningshafar Nordic Game Awards 2012 tilkynntir, en tveir íslenskir leikir voru tilnefndir til verðlauna; The Moogies frá Plain Vanilla sem besti norræni barnaleikurinn (Best Nordic Children’s Game) sem sigraði í sínum flokki, en auk þess var W.I.L.D. frá Mindgames tilnefndur fyrir nýjung í tölvuleik (Best Nordic Innovation Award). Nordic Game Awards er hluti af norrænu Nordic Game leikjaráðstefnunni sem stóð yfir dagana 23.-25. maí. Íslensku fyrirtækin CCP, Fancy Pants Global, Clara, Locatify ásamt Promote Iceland voru með sameiginlegan bás á ráðstefnunni merktum Icelandic Gaming Industry (IGI). Mynd af íslenska básnum á Nordic Game ráðstefnunni (myndina tók Jóhannes Sigurðsson).…

Lesa meira

Icelandic Gaming Industry (IGI) stendur fyrir reglulegum hittingum þar sem rætt er um ýmislegt sem við kemur íslenskum tölvuleikjaiðnaði. Næsti hittingur IGI verður haldinn fimmtudaginn 7. júní kl. 20:00 og verður umfjöllunarefni kvöldins „Umfjöllun um tölvuleiki í fjölmiðlum“ þar sem rætt verður hvernig fjölmiðlar greina frá tölvuleikjum og hvernig við getum hjálpað til við að koma umfjölluninni á jákvæðara stig. Aðgangur er ókeypis og við hvetjum áhugasama til þess að mæta og taka þátt í umræðunni. Hittingurinn verður  á staðnum Úrilla Górillan (Austurstræti 12, 2. hæð) og er hægt að staðfesta komu sína á Facebook viðburðinum. Tengt efni: Breivik og byssurnar Tölvuleikir…

Lesa meira

Nú hefur verið opnað fyrir Facebook athugasemdir við allar færslur á vefnum okkar. Þar af leiðandi verður ekki hægt að birta athugasemdir með gömlu aðferðinni (þar sem lesendur þurftu sérstaklega að skrá inn nafn og netfang) í nýjustu færslum okkar. Nauðsynlegt er að vera innskráður á Facebook og mun prófíll viðkomandi tengjast sjálfkrafa við athugasemdakerfið. Líkt og áður er athugasemdakerfið sýnilegt fyrir neðan hverja færslu. – BÞJ

Lesa meira

Þann 5. og 6. júní verður hægt að fylgjast með þvergöngu Venusar. Á Íslandi verður hægt að fylgjast með þvergöngunni fyrir og eftir sólarlag og er það því kjörið tækifæri fyrir stjörnuskoðara og aðra að fylgjast með, en þvergangan mun hefjast rétt áður en sólin sest, eða kl. 22:04 á íslenskum tíma. Sólin mun svo rísa aftur og verður Venus þá enn í þvergöngu sem lýkur kl. 04:54. Til þess að fylgjast með þvergöngunni er nauðsynlegt að nota sólarsíur sem eru settar framan á sjónauka til þess að koma í veg fyrir augnskaða. Einnig er hægt að kaupa sérstök sólskoðunargleraugu…

Lesa meira