Það ríkir mikil þögn yfir framhaldi endurgerðar Star Trek sem kom út árið 2009. Það hefur verið staðfest að tökulið mun taka upp efni fyrir myndina hér á Íslandi. Það verður þó einungis aukatökulið sem sérhæfir sig í myndbrellum og því verða engir leikarar með í för. Hins vegar er lítið vitað um hvað og hvar verður tekið upp. Margar vangaveltur eru á lofti í hvað þessi skot verði notuð en án efa verður það einhver framandi pláneta eða staður. Á undanförnum árum hefur myndast töluverður straumur af kvikmyndatökuliðum til þess að taka upp á Íslandi og fer vaxandi. Það…
Author: Nörd Norðursins
Föstudaginn 18. maí hringdi Mark Zuckerberg, meðstofnandi og stjórnarformaður Facebook, NASDAQ bjöllunni frægu og opnaði þar með fyrir kaup og sölu á hlutabréfum í Facebook. Hver hlutur var metinn á $38 í byrjun dags og fyrirtækið í heild sinni því metið upp á um 104 milljarða Bandaríkjadollara. Hlutabréfin hækkuðu upp í $42, en við lok fyrsta dags viðskipta í NASDAQ, einni stærstu kauphöll Bandaríkjanna, var hver hlutur metinn á $38.23. Facebook hlutabréfin komu hálftíma seinna inn á markaðinn en áætlað var vegna tæknilegra örðugleika sem má rekja til mikillar eftirspurnar, en alls voru 566 milljón hlutabréf keypt og seld á…
Skýrslutæknifélag Ísland (Ský) mun standa fyrir hádegisfundi þann 23. maí 2012 kl. 12 – 14 á Grand hóteli með yfirskriftinni „Reynsla af rafrænum íbúakosningum“. Dagskrá fundarins kemur fram í eftirfarandi tilkynningu frá Ský: Rafrænar íbúakosningar fóru fram í Reykjavík dagana 29. mars til 3. apríl 2012. Á fundinum verður fjallað um aðdraganda og útfærslu kosninganna og þann lærdóm sem draga má af framkvæmd slíkra kosninga. 11:50-12:05 Afhending ráðstefnugagna 12:05-12:20 Hádegisverður borinn fram 12:20-12:30 Rafrænar íbúakosningar í Reykjavík Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík 12:30-12:45 Lagaleg álitaefni við í aðdraganda íbúakosninganna Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar, Reykjavíkurborg 12:45-13:05 Framkvæmd kosninganna Eggert…
Bókaútgáfan Rúnatýr var um þessar mundir að gefa út tvær hrollvekjur á íslensku; Kall Cthulhu og Þoka. Að því tilefni sendi Rúnatýr frá sér eftifarandi fréttatilkynningu: Margir hrollvekjuunnendur þekkja verk H. P. Lovecrafts sem er einn af áhrifamestu höfundum hryllingsbókmennta samtímans. Hann er talinn vera einn af spörgöngumönnum furðusagna og í sögum hans mætast hrollvekjan og fantasían á skemmtilegan hátt. Núna hafa fimm af sögum hans verið þýddar á íslensku og eru fáanlegar, allar saman, í bókinni Kall Cthulhu og fleiri hrollvekjandi smásögur sem gefin var út á dögunum. Áhrif Lovecrafts ótvíræð Í bókinni eru m.a. þýðingar á sögunum Call…
Nördar koma í ýmsum stærðum og gerðum, eins og þessi mynd sýnir á skemmtilegan hátt! Hvaða týpa ert þú? – BÞJ
Norræna leikjaráðstefnan Nordic Game verður haldin 23-25. maí næstkomandi í Malmö í Svíþjóð, en þetta er í níunda skipti sem ráðstefnan verður haldin. Að þessu sinni eru tveir íslenskir leikir tilnefndir til verðlauna; The Moogies frá Plain Vanilla er tilnefndur sem besti norræni barnaleikurinn (Best Nordic Children’s Game) og W.I.L.D. frá Mindgames fyrir nýjung í tölvuleik (Best Nordic Innovation Award). Norrænn leikjaiðnaður virðist enn vera að eflast og stækka með árunum sem líða, en frá því að leikjaráðstefnan var haldin fyrir ári síðan hafa norræn fyrirtæki m.a. hannað leikina Battlefield 3, Minecraft (fullkláruð útgáfa og Xbox 360 útgáfa), Syndicate og…
Í leiknum W.I.L.D.frá íslenska leikjafyrirtækinu Mind Games notar spilarinn hugarorku til að ná stjórn á mismunandi draumum. Með góðri einbeitingu getur spilarinn náð að slökkva elda, beygt skeiðar og skapað nýja heima með hugarorkunni einni, en með því að spila leikinn þjálfar spilarinn slökun og einbeitingu sem nýtast honum innan sem utan leikjaheimsins. Eins og áður sagði er leiknum stjórnað með hugarorku og þarf því að tengja PLX Xwave, sem er sérstakt höfuðtól sem skynar heilabylgjur, við iPhone eða iPad til að spila leikinn. MindGames sendi frá sér stutt myndskeið þar sem sést hvernig leikurinn virkar. Leikurinn er fáanlegur fyrir…
Í liðnum Spurt og spilað forvitnast Nörd Norðursins um tölvuleikjaspilun þjóðþekktra einstaklinga með stuttum spurningum. Að þessu sinni er viðmælandi okkar Sölvi Tryggvason. Sölvi hefur starfað sem fjölmiðlamaður í tæpan áratug og hefur meðal annars starfað sem fréttamaður hjá Stöð 2, fréttalesari og þáttastjórnandi hjá Stöð 2 og Skjá Einum. Sölvi útskrifaðist með BA í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2003 og er hálfnaður með MA nám í blaða- og fréttamennsku í sama skóla. Hverskonar tölvuleiki spilaru helst? – Ég spila ekki marga tölvuleiki og hef á síðari árum eiginlega bara spilað fótboltaleiki, sérstaklega Manager leiki. Uppáhalds tölvuleikur?…
Vel gert myndband þar sem nokkur þekkt „Instakill“ vopn úr tölvuleikum koma við sögu, en slík vopn eru mjög öflug og geta drepið andstæðinga með aðeins einu höggi eða skoti! – BÞJ
Hver er eiginlega munurinn á 720p og 1080i, og fyrir hvað standa bókstafirnir i og p? Svörin er að finna í þessu stutta myndbandi!