Author: Nörd Norðursins

Birt af ritstjórn

Í liðnum Spurt og spilað forvitnast Nörd Norðursins um tölvuleikjaspilun þjóðþekktra einstaklinga með stuttum spurningum. Okkar fjórði viðmælandi er Erpur Eyvindarson, einnig þekktur sem Blaz Roca. Erpur (Blaz Roca) er tónlistar-, útvarps- og sjónvarpsmaður og jafnframt er hann talsmaður og umboðsaðili Johnny NAZ sem er væntanlegur á Skjá Einn í lok september, þar sem hann leysir úr öllum vandamálum íslensku þjóðarinnar frá upphafi landnáms. Blaz Roca hefur gefið frá sér fjölmarga slagar, þar á meðal „Stórasta land í heimi“ og „Stikluvík“. Erpur er einnig liðsmaður rappsveitarinnar XXX Rottweiler hundar sem hafa meðal annars gefið frá sér breiðskífurnar Þú skuldar og XXX Rottweiler hundar, en…

Lesa meira

Ritstjórar Nörd Norðursins fóru á kvikmynda- og teiknimyndasöguhátíðina London Film & Comic-Con sem fór fram 6.-8. júlí síðastliðinn. Gillian Anderson, Hayden Panettiere, Jeri Ryan, Adam Baldwin, Holly Marie Combs og Tom Skerritt ásamt leikurum úr Star Wars og Game of Thrones voru meðal þeirra þekktu andlita sem sáust á hátíðinni. Fjöldi gesta mætti í glæsilegum búningum (cosplay) og var fullur salur af fjölbreyttum básum sem veittu nördum gott úrval af ýmiskonar varningi. Klæddu sig upp sem ofurhetjur Líkt og á MCM Expo London Comic Con voru fjölmargir sem klæddu sig upp í búninga. Mikill metnaðar var lagður í búningana…

Lesa meira

Sumar kvikmyndir hafa þau áhrif á okkur að þær breyta sýn okkar á þeim möguleikum sem vissar kvikmyndagreinar hafa upp á að bjóða. Eftir að hafa horft á endalausar klisjur í hryllingsmyndum getur verið hressandi að sjá myndir sem reyna að fara ótroðnar slóðir og vinna með formið á nýja vegu. Þó að ég hafi gaman af myndum sem spila eftir reglum ákveðinnar kvikmyndagreinar þá eru bestu myndirnar yfirleitt þær sem láta hefðir ekki hamla sér frá því að skapa einstaka upplifun. Kvikmyndin fær þá að njóta sín frekar sem listaverk heldur en afþreying. Ég kann að meta góðar hryllingsmyndir,…

Lesa meira

Activision hefur kynnt nýjan leik sem er byggður á hrollvekju sjónvarpsþáttunum The Walking Dead. Nú þegar er til útgáfa af leik sem byggður er á myndasögublöðunum og er leikurinn í formi sögu þar sem að spilarinn er ekki við stjórnartaumana allan tímann, sá leikur ber sama nafn og er gerður af Telltale Games, en útgáfa Activision verður fyrstu persónu skotleikur. Leikurinn verður framleiddur af Terminal Reality sem þekktir eru fyrir að framleiða leiki á borð við Ghostbusters: The Video Game og Monster Truck Madness. Leikurinn mun koma í verslanir á næsta ári fyrir Xbox 360, PlayStation 3 og PC. …

Lesa meira

Leikurinn Quantum Conundrum er fyrstu persónu þrautaleikur sem fer ótroðnar slóðir. Hann er framleiddur af Airtight Games og gefinn út af Square Enix en var hannaður af Kim Swift, sem eins og margir vita er einn aðalhöfunda þrautaleiksins Portal. Karakter spilarans er tólf ára frændi snarklikkaða en fluggáfaða vísindamannsins Professor Fitz Quadwrangle og fjallar leikurinn um heimsókn drengsins til frænda síns, sem verður fljótt áhugaverð. Í byrjun leiksins verður sprenging og hinir skrýtnustu hlutir fara að gerast í stórsetri Fitz. Húsgögn og allt lauslegt fer að fljóta og hreyfast um herbergin. Eftir stutta stund heyrist í vísindamanninum í gegnum einskonar…

Lesa meira

London Film & Comic-Con 2012 fór fram 6.-8. júlí 2012 og var Nörd Norðursins á staðnum. Gillian Anderson, Hayden Panettiere, Jeri Ryan, Adam Baldwin, Holly Marie Combs og Tom Skerritt ásamt leikurum úr Star Wars og Game of Thrones voru meðal þeirra þekktu andlita sem sáust á hátíðinni. Fjöldi gesta mætti í glæsilegum búningum (cosplay) og var fullur salur af fjölbreyttum básum sem veittu nördum úrval af ýmiskonar varningi. Hér eru myndirnar sem við tókum, en á næstu dögum munum við birta ítarlegri umfjöllun um hátíðina! – BÞJ

Lesa meira

Stærsta LAN-mót landsins, HR-ingurinn, verður haldið 10.-12. ágúst 2012 í Háskólanum í Reykjavík. Tvíund, félag tölvunarfræði-, stærðfræði- og hugbúnaðarverkfræðinema við Háskólann í Reykjavík, stendur fyrir mótinu þar sem keppt verður í League of Legends, StarCraft II og Counter Strike 1.6 og Counter Strike: Source. Verðlaun verða veitt fyrir sigurlið í öllum keppnum en liðin sem keppa í League of Legends þurfa að borga sérstakt 5.000 kr. skráningargjald sem rennur óskipt í verðlaunapott. Samkvæmt upplýsingum eSports.is verða á staðnum Team Fortress 2 og Minecraft netþjónar og það er ekki útilokað að það verði jafnvel enn fleiri netþjónar. Skráning stendur yfir á www.HRingurinn.net og lýkur…

Lesa meira

Skráning er hafin í Nexus á forkynningarmót fyrir Magic 2013, nýjustu seríuna í Magic the Gathering sem er eitt elsta og vinsælasta safnkortaspilið í dag. Mótið verður haldið sunnudaginn 8. júlí kl. 11:00 í spilasal Hugleikjafélag Reykjavíkur og er aðgangseyrir 4.500 kr. og fylgja sex Magic 2013 pakkar með. Skráningu lýkur næstkomandi sunnudag kl. 11:45 og mun fyrsta umferðin í mótin byrja u.þ.b. hálftíma síðar. Reglur mótsins eru útskýrðar á eftirfarandi hátt á spjallborði íslenskra Magic-spilara: Þátttakendur fá 40 mínútur til að setja saman spilastokk úr spilum sínum og síðan eru spilaðar 4-5 umferðir. Efstu átta eftir það, spila útslátt þar til…

Lesa meira