Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Bíó og TV»Kvikmyndarýni: Coherence – „Lítil fersk mynd með stórar hugmyndir“
    Bíó og TV

    Kvikmyndarýni: Coherence – „Lítil fersk mynd með stórar hugmyndir“

    Höf. Nörd Norðursins10. apríl 2016Engar athugasemdir3 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    Ódýr mynd frá 2013 í anda gamals Twilight Zone þáttar

    Undanfarin sirka tíu ár hafa komið út ansi óvæntar og góðar vísindaskáldskapsmyndir úr sjálfstæða geiranum á borð við The Triangle, Another Earth og Time Lapse. Allar þessar myndir eiga það sameiginlegt að vera byggðar á ansi stórum hugmyndum þrátt fyrir að í flestum tilfellum eru þetta sögur um fólk sem ákveður að taka örlögin í sínar eigin hendur þegar ótrúlegir hlutir gerast – og oftar en ekki uppskera það sem þau sáðu eftir hvaða hugarfari þau framkvæmdu sínar ætlanir.

    Coherence er lítil mynd þar sem 8 manneskjur hittast í matarboði til þess að freista þess að sjá halastjörnu um nóttina. Ekki líður á löngu áður en að rafmagnið fer af og þau sjá að aðeins eitt hús í götunni er með rafmagn. Tveir úr hópnum athuga málið og það sem þeir koma með til baka á eftir að draga dilk á eftir sér.

    Þetta er ein af þessum myndum þar sem það er synd að segja of mikið um söguþráðinn svo maður eyðileggi ekki söguna fyrir fólki.

    Þetta er ein af þessum myndum þar sem það er synd að segja of mikið um söguþráðinn svo maður eyðileggi ekki söguna fyrir fólki. En eins og góðar sögur, þá snýst þetta ekki um vísindaskáldskapinn heldur manneskjurnar í veislunni. Oft eru það þessar stóru hugmyndir sem við tengjum okkur við en hér náum við einnig að tengja við persónurnar og það er gleðiefni því oft er frekar einblínt á tæknilegu hliðina í staðinn fyrir sálfræðilegu hliðina.

    Coherence_02

    Hún var tekin á 5 dögum með 2-3 myndavélum og því kemur ekki á óvart að skot eru úr fókus eða á hreyfingu hér og þar.

    Á R2-DVD disknum frá Metrodome er að finna stiklur (sem hægt er að sleppa að horfa á) fyrir myndirnar Upstream Color og The Borderlands, áður en að aðalvalmyndin birtist. Það er nú voðalega lítið hægt að segja um útlit myndarinnar þar sem þetta er frekar ódýr lítil mynd. Hún var tekin á 5 dögum með 2-3 myndavélum og því kemur ekki á óvart að skot eru úr fókus eða á hreyfingu hér og þar. Eina sem kemur á óvart er hversu gul myndin lítur út en þetta hefur meira að gera við lýsinguna innandyra og myndavélarnar sem voru notaðar. Tvær hljóðrásir eru í boði, 5.1 Dolby Digital og 2.0 Stereo; lítill munur er á þeim en 5.1 rásin er náttúrulega opnari en hin. Lítið er um aukaefni en það sem er á boðstólnum dugar alveg, stutt 10 mínútna viðtöl við aðstaðendur myndarinnar og umtal leikstjóra ásamt tveimur leikurum myndarinnar. Þar kemur fram hversu stuttan tíma þau höfðu og stærðin á tökuliðinu var eftir því. Myndin var meira og minna tekin án handrits og hékk þetta því á leikurunum að notast við stikkorð frá leikstjóranum fyrir hvern tökudag.

    Lítil fersk mynd með stórar hugmyndir og nær að halda haus. Litla myndin sem getur.

     

    STIKLA ÚR COHERENCE

    Jósef Karl Gunnarsson

    Coherence kvikmyndarýni
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaMyndband: Grafíkin í Dark Souls 3 – PC vs PS4
    Næsta færsla Myndband: 21 mínútna sýnishorn úr No Man’s Sky
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Secret Level

    10. desember 2024

    RIFF kvikmyndahátíðin 2024

    27. september 2024

    Hvað ef Squid Game leikirnir væru íslenskir?

    13. nóvember 2021

    Austin Powers heimsækir Mass Effect

    19. október 2021

    Íslensk mynd um vináttu í Eve Online hlýtur verðlaun

    14. júní 2019

    Skaparar It’s Always Sunny in Philadelphia búa til þætti um leikjahönnun

    10. júní 2019
    Nýtt á Nörd Norðursins

    The Game Awards í beinni 11.-12. desember

    4. desember 2025

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025

    Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður

    19. nóvember 2025
    Leikjarýni
    8

    Anno 117: Pax Romana

    11. nóvember 2025
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • The Game Awards í beinni 11.-12. desember
    • Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards
    • Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus
    • Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland
    • Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.