Fréttir

Birt þann 25. júní, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Plain Vanilla gefur út Nat Geo Wild QuizUp

Nú á uppsafnaður lestur á National Geographic tímaritinu og heimildarþáttamaraþonum í boði David Attenboroughs eftir að skila sér! Íslenska leikjafyrirtækið Plain Vanilla sendi frá sér nýjan spurningaleik í dag. Leikurinn ber heitið Nat Geo Wild QuizUp og er fáanlegur ókeypis á Android, iPhone og iPad. Í Nat Geo Wild QuizUp þurfa spilarar að svara ýmiskonar spurningum sem tengjast dýralífinu.

Nat Geo Wild QuizUp er hluti af QuizUp spurningaleikjaseríunni sem samanstendur af Twilight QuizUp, Math QuizUp, Movie QuizUp, Video Game QuizUp, Basketball QuizUp – auk Nat Geo Wild QuizUp.

Í QuizUp leikjunum er spilað á móti andstæðingi í rauntíma og tekur hver leikur aðeins örfáar mínútur. Að loknum leik fær eða missir spilarinn stig, allt eftir því hvort hann sigraði eða tapaði leiknum. Í leikjunum er svo að skoða stigatöfluna yfir aðra QuizUp spilara, yfir samlanda sína og Facebook vini.

The Moogies var fyrst leikurinn sem Plain Vanilla gaf út og tryggðri fyrirtækið sér nýlega erlenda fjármögnun upp á tæpan hálfan milljarð króna.

 

Smelltu hér til að skoða leikinn á App Store.

Smelltu hér til að skoða leikinn á Google Play.

-BÞJ
Deila efni

Tögg: ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑