Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Island of Winds demó á Steam
    Fréttir

    Island of Winds demó á Steam

    Höf. Bjarki Þór Jónsson19. júní 2023Uppfært:3. nóvember 2025Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Created with GIMP
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Í seinustu viku sögðum við frá því að sýnishorn úr tölvuleiknum Island of Winds frá íslenska leikjafyrirtækinu Parity Games hefði verið sýnt á stórri Xbox leikjakynningu. Fleiri fréttir berast af leiknum þar sem Island of Winds er einn af hundruðum tölvuleikja sem bjóða nú upp á demó á Steam Nest Fest leikjakynningunni sem hófst í dag. Steam Nest Fest stendur yfir á Steam leikjaveitunni dagana 19.-26. júní og hefur það markmið að kynna væntanlega tölvuleiki fyrir spilurum. Samkvæmt viðtali Parity við Xbox Wire þá er Island of Winds um þessar mundir í lokuðum beta-prófunum og segir stutt sé í að útgáfudagur leiksins verði tilkynntur. Upphaflega átti leikurinn að koma út árið 2022 en útgáfudegi var frestað til ársins 2023 og hefur nákvæm dagsetning ekki verið gefin upp.

    Fleiri fréttir berast af leiknum þar sem Island of Winds er einn af hundruðum tölvuleikja sem bjóða nú upp á demó á Steam Nest Fest leikjakynningunni sem hófst í dag.

    Parity Games hefur unnið að gerð Island of Winds frá árinu 2017. Island of Winds er ævintýra- og þrautaleikur sem gerist á Íslandi á 17. öld og sækir leikurinn innblástur til íslenskrar náttúru, þjóðsagna og sögu. Söguhetja leiksins er – Brynhild the Balance Keeper – sem fer á flakk eftir að ráðist er á býli hennar og lærimeistara rænt. Nörd Norðursins tók viðtal við Maríu Guðmundsdóttur, stofnanda Parity, á Midgard 2019 þar sem hún sagði frá leiknum og fyrirtækinu. Einnig birti fyrirtækið stiklu fyrir leikinn árið 2021 þar sem tröll og íslensk náttúra spila stórt hlutverk – hægt er að skoða stikluna hér.

    ➤ Smelltu hér til að sækja demóið á Steam.

    Mynd: Island of Winds á Steam

    icelandic game industry igi Ísland Island of Winds íslenskir tölvuleikir Parity þjóðsaga
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaSveppir og skrímsli í Necrom
    Næsta færsla The Settled System stiklur kynna heim Starfield
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026

    Leikjadjamm á Húsavík 17.-18. apríl

    12. apríl 2026

    Íslenskur hryllingsleikur sem byggir á norrænni goðafræði í bígerð

    12. apríl 2026

    Pixelwear – samfélagsdrifin vefverslun fyrir íslenskt tölvuleikja- og nördasamfélög

    8. apríl 2026

    Samtal um skapandi ferli tölvuleikja 8. apríl í CCP Games

    7. apríl 2026

    Leikjavarpið #69 – Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia

    26. mars 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026

    Leikjadjamm á Húsavík 17.-18. apríl

    12. apríl 2026

    Íslenskur hryllingsleikur sem byggir á norrænni goðafræði í bígerð

    12. apríl 2026

    Pixelwear – samfélagsdrifin vefverslun fyrir íslenskt tölvuleikja- og nördasamfélög

    8. apríl 2026

    Samtal um skapandi ferli tölvuleikja 8. apríl í CCP Games

    7. apríl 2026
    Leikjarýni
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Starfield mætir á PlayStation
    • Leikjadjamm á Húsavík 17.-18. apríl
    • Íslenskur hryllingsleikur sem byggir á norrænni goðafræði í bígerð
    • Pixelwear – samfélagsdrifin vefverslun fyrir íslenskt tölvuleikja- og nördasamfélög
    • Samtal um skapandi ferli tölvuleikja 8. apríl í CCP Games
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.