Grasrótarhópurinn Game Maker Iceland heldur Isle of Games viðburð dagana 23.-24. maí næstkomandi í Bíó Paradís. Á viðburðinum verður hægt að kynnast leikjum „sem list í gegnum leiki, tónlist, fyrirlestra, sýndarveruleika og hinum sígilda viðburði „Lifandi leikir, lifandi tónlist““ líkt og fram kemur á Facebook-síðu viðburðarins. ⭐ Dagskrá ⭐Laugardagur 23. maí12-18 Fjölskylduvæn dagskrá🎮 Line Wobbler🎮 Jump Stick!🎮 Arcade (mismunandi leikir)🎮 Sýndarveruleikahorn (Fallax, Lichtung, Island of Shells)🎮 Pickupbal !🎮 Waves of Nostalgia🎮 Saurbær (leikur + fyrirlestur með Línus Orra)🎮 Geimdýragarðurinn🎮 Marbles🎮 The Surveyor 18-01 Fullorðins dagskrá🕹️ Art in Games (fyrirlestur með Steingerði Lóu)🕹️ Geimdýragarðurinn (DJ Flugvél og Geimskip)🕹️ Finding the Joy…
Author: Bjarki Þór Jónsson
Stjörnustríðsdagurinn „May the 4th be with you“ er haldinn hátíðlegur um heim allan 4. maí ár hvert. Bókasafnið í Hafnarfirði mun halda upp á daginn í dag, laugardaginn 2. maí, með dagskrá milli kl. 13:00 og 14:30. Illmenni úr 501. hersveit keisaraveldisins á Íslandi verða á svæðinu og eru orðrómar um að sjálfur Svarthöfði muni líta við. Geislasverðafélagið mætir einnig og verður með sýningarbardaga með geislasverðum. Nánari upplýsingar er að finna á viðburðarsíðu á Facebook. Dagskrá í grófum dráttum: Mynd: Bókasafn Hafnarfjarðar (viðburður á Facebook)
Nexus, nördaverslun Íslendinga, heldur Ókeypis myndasögudaginn (Free Comic Book Day) hátíðlegan í dag, laugardaginn 2. maí. Verslunin í Glæsibæ opnar kl. 11:30 og ætti enginn gestur að fara tómhentur heim. Á boðstólnum í ár verður úrval blaða frá helstu útgefendum í Bandaríkjunum auk íslenskrar fríblaða frá Ókeipiss og Íslenska myndasögufélaginu (sem eru við hæfi 12 ára og eldri). Búast má við margmenni og hefur Nexus leyst úr því með því að afhenda öllum sem mæta númerað armband. Gestum er svo hleypt inn eftir númerum og er því hægt að skoða vörur í versluninni á meðan beðið er, í stað þess…
Bardagaleikurinn Starkheim Tournament varð aðgengilegur í snemmbúnri útgáfu (early access) á Steam 24. apríl síðastliðinn. Leikinn var meðal annars hægt að prófa á UTmessunni 2026 og Icelandic Game Fest 2025. Starkheim Tournament er fyrsti leikurinn frá Project MOX sem sér um þróun og útgáfu leiksins. Project MOX er pólskt-íslenskt samvinnuverkefni þeirra Piotr Klich og Egils Hanssonar og sér Piotr um að forrita leikinn og Egill að mestu um grafík og útlit leiksins. Fleiri íslensk nöfn er að finna í kreditlistanum: Jóhannes Már Ragnarsson kemur að grafík og myndlífgun (animation) og Bjarni Freyr Björgvinsson kemur að tónlistarsmíði leiksins. Í Starkheim Tournament…
Kómíski lífhermirinn Walk of Life sem íslenska leikjafyrirtækið Porcelain Fortress hefur verið að þróa undanfarin ár var gefinn út á Steam í gær, fimmtudaginn 30. apríl. Leikurinn hafði áður verið aðgengilegur á þróunarstigi (early access) á Steam frá því 24. október 2025 og hefur síðan þá fengið margar viðbætur og uppfærslur. Um er að ræða partýleik sem spilast líkt og borðspil þar sem allt að sex spilarar keppa í skóla lífsins. Leikurinn byggir á svipaðri hugmynd og No Time to Relax sem Porcelain Fortress gaf út árið 2019 þar sem spilarar þurfa að huga að ýmsum lífsviðburðum eins og ömurlegum…
Leikjadjamm fyrir 15-25 ára verður haldið í Hraðinu miðstöð nýsköpunar á Húsavík dagana 17. og 18. apríl. Leikjadjamm fjallar í grunninn um að búa til nýja leiki á stuttum tíma og þá gjarnan út frá ákveðnum reglum eða þema. Öll sem hafa áhuga á leikjahönnun og leikjagerð og vilja hitta fólk með sömu áhugamál eru hvött til að skrá sig. Boðið verður upp á úrval af fyrirlestrum og vinnustofum sem munu gagnast þátttakendum í leikjadjamminu, þar á meðal útskýring á hvað leikjadjamm er, fjallað um hvaða þema verður unnið út frá og verkfærakista kynnt fyrir þátttakendum svo eitthvað sé nefnt.…
Íslenski leikjahönnuðurinn Ingibjörn Margeir, eða Lillex líkt og hann kallar sig, er að þróa nýjan íslenskan hryllingsleik sem ber heitið Mount Ymir og byggir á norrænni goðafræði. Fyrsti leikur Lillex er Complex 629 sem er súrelískur hryllingsleikur þar sem sögusviðið er Ásbrú. Nörd Norðursins tók viðtal við Lillex vegna útgáfu Complex 629 sem má lesa hér. Mount Ymir er nú sýnilegur á Steam leikjaveitunni og hægt að bæta honum við sinn óskalista (wishlist). Hryllingsleikurinn spilast í fyrstu persónu þar sem spilarinn þarf meðal annars að forðast drauga og hrafna Óðins, Huga og Muninn, sem eru í leit að æti. Miðgarðsormurinn…
Pixelwear er ný samfélagsdrifin vefverslun fyrir íslenskt tölvuleikja- og nördasamfélög. Jónas Davíð Jónassonar er maðurinn á bakvið nýju verslunina og segir að hugmyndin sé „að skapa einn sameiginlegan vettvang þar sem mismunandi samfélög geta boðið upp á sinn eigin varning á einum stað, án þess að þurfa að sjá um framleiðslu, lager eða sölu en fá um leið hluta af hagnaðinum.“ Markmiðið er að byggja upp lifandi vefverslun þar sem nýjar vörur bætast reglulega. Þar á meðal varningur sem tengjast viðburðum, mótum og öðrum augnablikum sem skipta máli í íslensku leikjasenunni. Vefverslunin fór í loftið 1. apríl síðastliðinn og þar…
Miðvikudaginn 8. apríl kl. 10:15 býður Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) í samstarfi við CCP Games upp á samtal um skapandi ferli tölvuleikja. Kanónur úr íslenska leikjabransanum verða með erindi þar sem fjallað verður meðal annars um listræna nálgun á tölvuleikjum og um tengsl tölvuleikja við listir og menningu. Nauðsynlegt er að skrá sig til að mæta í húsakynna CCP Games í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Erindum verður einnig streymt en ekki umræðum sem fram fara í kjölfarið meðal fundargesta. Athugið að erindin fara fram á ensku. Á heimasíðu RSSG er að finna yfirlit yfir dagskrá og…
Þriðjudaginn 17. mars fer fram ráðstefnan Nature Meets Play – Transforming Environmental Education through Games í Háskólanum í Reykjavík. Ráðstefnan fer fram á ensku og er skipulögð af BuildAsNature í tengslum við Erasmus-verkefni. Dagskráin hefst kl. 13:00 og verður meðal annars fjallað um gerð námsleikja með áherslu á umhverfismál. Hér fyrir neðan er að finna dagskrá ráðstefnunnar sem er opin öllum. Einnig verður hægt að fylgjast með í beinni útsendingu á Zoom. Nánari upplýsingar er að finna hér á síðu Háskólans í Reykjavík. 13:00-13:10Opening, project introduction13:10-13:30Olivier Heidmann game presentation13:30-13:55Jennifer Tiede & Daniel Heßler: Competency development through serious games: experts’ expectations…