Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Tröll og íslensk náttúra í nýrri stiklu úr Island of Winds
    Fréttir

    Tröll og íslensk náttúra í nýrri stiklu úr Island of Winds

    Höf. Bjarki Þór Jónsson16. september 2021Uppfært:3. nóvember 2025Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Created with GIMP
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Parity sendi frá sér nýja stiklu úr tölvuleiknum Island of Winds sem hefur verið í þróun hjá fyrirtækinu í nokkur ár. Island of Winds er ævintýraleikur sem gerist á Íslandi á 17. öld og sækir leikurinn innblástur til íslenskrar náttúru, þjóðsagna og sögu. Söguhetja leiksins er – Brynhild the Balance Keeper – sem fer á flakk eftir að ráðist er á býli hennar og lærimeistara rænt.

    Island of Winds er ævintýraleikur sem gerist á Íslandi á 17. öld og sækir leikurinn innblástur til íslenskrar náttúru, þjóðsagna og sögu.

    Parity segir að áhersla er lögð á söguríka nálgun í leiknum, fróðleik og áhugaverðar þrautir þar sem sérstök áhersla verður lögð á samkennd. Í leiknum koma galdrar og þjóðsagnaverur einnig við sögu.

    Hingað til hefur útgáfudagur eða útgáfuár ekki verið staðfest en með stiklunni var staðfest að leikurinn er væntanlegur á næsta ári, árið 2022, á PC og PlayStation 5. Hægt er að skoða fleiri skjáskot úr leiknum og kynnast baksögu Brynhildar, lærimeistarans og hlutverk Balance Keepers á heimasíðu Island of Winds.

    … horft hefur verið á stikluna yfir 28.000 sinnum á fyrstu fjóru klukkutímum eftir birtingu.

    Hægt er að horfa á stikluna hér fyrir neðan og til gamans má geta er hún öll á íslensku. Stiklan var birt á YouTube-rás Parity og á YouTube-rás tölvuleikjasíðunnar IGN þar sem horft hefur verið á stikluna yfir 28.000 sinnum á fyrstu fjóru klukkutímum eftir birtingu. Nörd Norðursins fékk að prófa leikinn á Midgard 2019 og tók viðtal við Maríu Guðmundsdóttur hjá Parity þar sem hún sagði frá leiknum.

    icelandic game industry igi Ísland Island of Winds íslenska íslenskir tölvuleikir Parity
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færsla„Virðum vilja gamera!“ – Frambjóðendur sem tölvuleikjaspilarar
    Næsta færsla Leikjavarpið #29 – Deathloop, Nintendo Direct og NBA2K22
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time

    17. nóvember 2026

    Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko

    13. nóvember 2026

    GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember

    12. nóvember 2026

    Elder Scrolls 6 fær nafn

    3. nóvember 2026

    Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni

    31. október 2026

    Elko með GTA VI kvöldviðburð 12. nóvember

    31. október 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time

    17. nóvember 2026

    Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko

    13. nóvember 2026

    GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember

    12. nóvember 2026

    Elder Scrolls 6 fær nafn

    3. nóvember 2026

    Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni

    31. október 2026
    Leikjarýni
    8.5

    Control Resonant brýtur lögmál raunveruleikans

    29. október 2026
    7

    Marvel’s Wolverine – Blóðugt ævintýri

    30. september 2026
    8

    AC Black Flag Resynced – Svarti fáninn rís á ný

    8. júlí 2026
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time
    • Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko
    • GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember
    • Elder Scrolls 6 fær nafn
    • Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.