Author: Nörd Norðursins

Birt af ritstjórn

Warhammer 40.000: Space Marine kom í verslanir 6. september síðastliðinn og gerist í hinum geysivinsæla Warhammer 40.000 heimi sem breski spilaframleiðandinn Games Workshop skapaði. Tölvuleikurinn spilast ekki eins og hernaðarspilið Warhammer 40.000, sem er spilað með fígúrum, teningum og öflugu ímyndunarafli, heldur sem þriðju persónu hjakk-og-högg (hack and slash) skotleikur. Sagan Óteljandi orkar hafa ráðist á Imperial Forge World, sem er risavaxin verksmiðja þar sem vopn eru framleidd í varnarskyni fyrir mannkynið. Örlög mannkynsins liggja í höndum spilarans sem spilar sem geimhermaðurinn Titus sem verður að verja verksmiðjuna gegn árásum orka og annara illmenna. Sagan er knúin áfram með stuttum…

Lesa meira

The Moogies er leikur ætlaður börnum á aldrinum 2-6 ára og foreldrum þeirra frá íslenska tölvuleikjafyrirtækinu Plain Vanilla. Í leiknum velur spilarinn sér milli níu karaktera kallaðir Moogies, til að hringja í og skemmta sér með. Leikurinn er einfaldur í spilun og útlit hans mjög vandað og skemmtilegt. Leikurinn hefur verið fáanlegur í iPhone, iPad og iPod Touch í gegnum App Store frá 3. nóvember 2011 og kostar litlar $1,99. – BÞJ

Lesa meira

Hver kannast ekki við að spila leik sem virðist vera ansi óspennandi – nema keyptir séu nokkrir aukapakkar sem kosta svipaða upphæð og leikurinn sjálfur? Þessu kynntist ég persónulega í Mafía 2, þar sem mér þótti leikurinn aaaalltof stuttur en gat keypt mér aukapakka um leið og ég var búinn með leikinn. Sem ég gerði ekki, það var búið að svindla nóg á mér! Í dag er fjöldi leikja sem byggir mikið upp á DLC efni. DLC stendur fyrir downloadable content, eða niðurhalanlegt efni, sem er aukaefni fyrir leikinn sem spilarinn þarf í lang flestum tilfellum að borga fyrir. Í…

Lesa meira

TEDxReykjavík verður haldið 14. nóvember 2011 í Hörpu og verður þemað tækni, kennsla og hönnun. TED fyrirlestrar (sem hægt er að nálgast á TED.com) þykja afar góðir og vandaðir en TEDx eru sjálfstætt skipulagðir viðburðir. Staðfestir frummælendur eru Ari Kristinn Jónsson rektor HR, Ingibjörg Gréta Gunnarsdóttir stofnandi Reykjavik Runway og Guðrún Pétursdóttir formaður stjórnlaganefndar. Miðaverð er 3.000 kr. og fer ráðstefnan fram á íslensku og ensku. Á heimasíðu Hörpu eru eftirfarandi upplýsingar gefnar upp um ráðstefnuna: TEDxReykjavík verður haldið í annað sinn mánudaginn 14. nóvember í Kaldalóni í Hörpu klukkan 12.30 – 17.00 og síðan léttar veitingar og skemmtilegt spjall. Miðaverð er 3000…

Lesa meira

Það helsta í nóvember 2011! 2. nóvember – Uncharted 3: Drake’s Deception 4. nóvember – Sonic Generations 8. nóvember – Call of Duty: Modern Warfare 3 11. nóvember – The Elder Scrolls V: Skyrim 15. nóvember – Assassin’s Creed: Revelations 15. nóvember – Halo: Combat Evolved Anniversary 15. nóvember – Jurassic Park: The Game 18. nóvember – Need for Speed: The Run 18. nóvember – The Legend of Zelda: Skyward Sword 18. nóvember – Saints Row: The Third 18. nóvember – LEGO Harry Potter: Years 5-7 18. nóvember – Minecraft („fullkláruð“ útgáfa) 25. nóvember – Rayman Origins

Lesa meira

Hvað einkennir harða nagla?  Er það að láta aldrei tala niður til sín, láta ekkert stöðva sig, hafa alltaf trú á sjálfum sér og fylgja sínum markmiðum til hins ýtrasta? Er það að fara eins langt og fara þarf til að ná sínu fram? Eða er það að drepa eins marga gríska guði og hægt er að koma höndum á? Sama hvað það er þá á allt þetta við eina persónu, Kratos, og hér er hann kominn enn á ný og er aftur reiðubúinn að fara til heljar og til baka til að fá sínu framgengt. God of War serían…

Lesa meira

Í tilefni hrekkjavöku ákvað ég að gera hrekkjavöku cupcakes. Ég notaði uppáhalds uppskriftina mína af gulri köku, en það er svo auðvelt að bæta litum útí til að gera svona rainbow effect. Því miður er ég ekki með neitt af kökudótinu mínu með mér hér í Englandi svo þetta varð ekki eins flott og ég vildi, en hey svona er lífið! Ég ákvað að hafa bleikan, bláan (kom út meira eins og blágrænn), grænan, fjólubláan og svartan lit og hellti til skiptist úr skálunum í muffins form til að fá litaskiptinguna. Það er hægt að nota hvaða liti sem er…

Lesa meira

Það eru enn tæpar tvær vikur þar til einn stærsti tölvuleikur ársins kemur út; Elder Scrolls V: Skyrim, en hann mun koma út föstudaginn 11. nóvermber 2011 (11.11.11). Þrátt fyrir að leikurinn sé ekki enn fáanlegur í verslunum lak myndband úr leiknum á netið sem sýnir fyrstu 23 mínútur leiksins. Myndbandið birtist fyrst á vef YouTube í boði notandans Twelve Dogs Dancing, en því var fljótt eytt. Aftur á móti náðu nokkrir að hlaða niður myndbandinu og hefur það dreyfst um netið líkt og sinueldur. Ef þú vilt ekki spilla neinu fyrir útgáfu leiksins skalltu sleppa því að horfa á þetta…

Lesa meira

Ég vill byrja á því að taka fram að það er til heill frumskógur af góðum hryllingsleikjum sem komu út fyrir síðustu aldamót og sem þeir sem eru af gamla skólanum þekkja til. Aftur á móti hafa miklar framfarir í grafík, hljóði og fleira í tölvuleikjum gert það að verkum að okkur finnst pixlað blóð og 8 bita öskur ekkert voðalega ógnvekjandi í dag. Hér er listi yfir leiki sem ættu að fá þig, kæri spilari, til að spila með kveikt ljósin, öskra svo hátt að jarðfræðingar hræðast að Hekla muni gjósa, eða lengja daginn verulega með sveittum andvökunóttum. …

Lesa meira