Author: Nörd Norðursins

Birt af ritstjórn

Áður en ég byrja ætla ég að biðja ykkur um að pæla ekkert í einkunnargjöf myndarinnar, það er ómögulegt að dæma þessa mynd á okkar skala því hún er framleidd fyrir allt aðra menningu með gjörólíkri kvikmyndagerð en við erum vön. Þetta var í fyrsta sinn sem ég horfði á Bollywood-mynd (Slumdog Millionare telst ekki vera Bollywood-mynd) og ég hafði sáralítið til að miða við áður en ég fór á hana; svona kvikmyndir sýna aldrei beinan koss og oft bresta leikararnir í söng, sama hvaða kvikmyndaflokki hún tilheyrir. En Enthiran tilheyrir nefninlega ekki einum flokki, hún tilheyrir kryddblönduflokkinum þar sem…

Lesa meira

Í kjölfar þess að Skinna.is opnaði nýja íslenska rafbókabúð ákváðum við hjá Nörd Norðursins að gera verðkönnun á völdum verkum sem eru einnig fáanleg í bóka formi. Bókaverðið miðum við út frá skráðu verði þann 15. apríl 2012 á heimasíðu Eymundssonar annars vegar og Skinnu.is hins vegar. TITILL EYMUNDSSON SKINNA Gamlinginn sem skreið út… 2.699 (kilja) / 3.999 (innbundin) 2.790 Svartur á leik 2.699 (kilja) 2.690 Hungurleikarnir 1.999 (innbundin) / 2.299 (kilja) 2.200 Einvígið 2.499 (innbundin) / 2.699 (kilja) 3.790 Brakið 2.699 (innbundin/kilja) 3.790 Falskur fugl 999 (kilja*) 1.890 Hausaveiðararnir 2.699 (kilja) / 2.999 (innbundin) 2.490 Myrkfælni – Smásögur 2.499 (kilja) 1.490 Sjöundi…

Lesa meira

Skinna, íslenska rafbókabúðin, opnaði vefsvæði sitt í gær. Bókabúðin býður upp á þokkalegt úrval af bókum úr ýmsum flokkum, allt frá skáldsögum til fræðibóka, íslenskum sem erlendum. Forlagið Útgáfa, Bjartur Bókaforlag, Rúnatýr, Urður bókafélag og Ugla eru meðal þeirra forlaga sem selja bækur hjá Skinnu og er markmið þeirra einfalt; Markmið okkar er að allar rafbækur sem gefnar eru út á Íslandi séu aðgengilegar til kaups hjá okkur á einfaldan og hagkvæman hátt lesendum rafbóka til ánægju og íslensku ritverki til framdráttar. Smelltu hér til að heimsækja Skinna.is Kaupir þú þínar bækur rafrænt? – BÞJ

Lesa meira

Battleship er tröllvaxinn bandarískur ostborgari – safaríkur, bragðgóður, og vel grillaður ostborgari sem þú gæðir þér á í góðum félagsskap á fínum degi. Myndin er ein stór klisja og gerir sér grein fyrir því án þess að draga fram skopstælingarspilið, hún vinnur með það sem hún hefur og mótar STÓRA og skemmtilega sumarmynd úr því. Hún veit hvað hún vill og tekst að fá því framgengt með stæl. Battleship grípur þig með kímnigáfu sinni, viðkunnanlegum persónum og loforðum um heilmikið hávært sjónarspil sem hún stendur svo sannarlega við. Hugmyndin er einföld og spilar (híhí) aldrei langt út fyrir þægindamörk sín,…

Lesa meira

Í síðastliðinni viku tilkynntu DC Comics  útgáfu sex blaða míníseríu um vöðvatröllið He-Man sem mun koma út í byrjun júlí. James Robinson mun skrifa sögurnar og munu þeir Philip Tan og Ruy Jose sjá um myndskreytinguna. Fyrsta forsíðan hefur nú þegar litið dagsins ljós (smelltu á myndina hér til hægri til að sjá hana í fullri stærð) og verður að segjast að hún lítur ansi vel út. Robinson mun kynna lesendum fyrir Meisturum alheimsins, eða Masters of the Universe eins og þeir eru betur þekktir. Þeir hafa misst minnið og muna þar af leiðandi ekki eftir fyrri hetju árum sínum…

Lesa meira

Fyrr á þessu ári kom hin marg umrædda PlayStation Vita leikjavél út. Vita er þriðja handhelda leikjatölvan sem Sony gefur út. Eftir vel heppnaða frumraun (PSP) áttu þeir þó brattann að sækja því enginn vafi liggur á um að PSP Go frá árinu 2009, var í einu og öllu misheppnaðasta leikjavél Sony til þessa. Sony menn voru þó ekki tilbúnir að gefast upp og gerðu sitt besta til þess að vinna neytendur aftur á sitt band. Loks eftir þriggja ára framleiðslu leit PS Vita dagsins ljós, en hefur hún það sem til þarf til að koma Sony aftur á strik…

Lesa meira

Í það minnsta er hægt að segja að Iron Sky sé uppskera mikillar ástar aðstandenda og áhugamanna sem fjármögnuðu og framleiddu myndina. Hún var framleidd fyrir sjúklega lítinn pening og afraksturinn borgar sig fimmfalt í framsetningu og skemmtanagildi. Hafið engar áhyggjur, myndin er ekki bara einn stór nasistabrandari, heldur er hún samansafn af nasistabröndurum sem tekst fáránlega oft að kitla hláturtaugarnar, sérstaklega miðað við hvað hugmyndin virkar einhæf á blaði. Myndin er í svipuðum dúr og gamanmyndir Mel Brooks og nýtir hugmyndsína til fulls, í bakgrunni jafnt og forgrunni er heilmikið sjónrænt grín sem sparar hvergi höggin. Myndin byrjar sterk, heldur…

Lesa meira

Í tilefni af eins árs afmæli Nörd Norðursins ætlum við að gefa nokkrum heppnum lesendum miða fyrir 2 á myndina Iron Sky. Það eina sem þú þarft að gera til þess að eiga möguleika á að vinna er að fara á Facebook síðuna okkar og skrifa athugasemd (comment) við Iron Sky stöðuna (status) á veggnum okkar, og segja hver þín uppáhalds vísindaskáldsaga er! Uppfærsla: Búið er að draga í leiknum okkar. Vinningshafar eru; Védís Ragnheiðardóttir, Sveinn Dal Björnsson, Bárður Bergsson, Axel Paul Gunnarsson, Sigurður B. Jökulsson, Oddur Sigurjónsson, Kristján S. Einarsson, Lína Klaufi Knútsdóttir, Anton Logi Sverrisson. Bíó Paradís…

Lesa meira

Nýi afþreyingarvefurinn gedveikt.com skorar á Sinfóníuhljómsveit Íslands til að halda sérstaka tónleika tileinkuðum tölvuleikjatónlist, en slíkir tónleikar hafa notið mikilla vinsælda erlendis. Sinfóníuhljómsveitin hefur nú þegar haldið nokkra tónleika tileinkuðum kvikmyndatónlist og tími til kominn að heyra stafræna tölvuleikjatóna lifna við í Hörpunni. Látum þetta gerast! Smelltu á Like takkann við þessa frétt á gedveikt.com til að skrifa undir áskorunina. Okkar hugmynd að góðri dagskrá; Super Mario Bros, þemalag The Legend of Zelda, Overworld Mega Man syrpa (Dr. Wily’s Castle, MM3 Intro og Snakeman Stage (Intro)) Ducktales syrpa (The Moon, The Amazon og The Himalayas) Sonic syrpa (Green Hill,…

Lesa meira