Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Greinar»Tölvuleikir breyta þér ekki í skrímsli
    Greinar

    Tölvuleikir breyta þér ekki í skrímsli

    Höf. Nörd Norðursins28. apríl 2012Uppfært:27. ágúst 2013Ein athugasemd4 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    Pistill frá ritstjóra.

    Í síðustu viku rakst ég á forsíðufrétt á Mbl.is með fyrirsögninni „Spilaði tölvuleik í heilt ár.“ Ég var ekki viss um við hverju ég átti að búast, en við nánari athugun kom í ljós að um var að ræða stutta frétt þar sem stiklað var á stóru í lífi norska fjöldamorðingjans á tímabilinu 1995 til 2006, en samkvæmt fréttinni spilaði hann meðal annars tölvuleikinn World of Warcraft daglega í heilt ár. Svo virðist sem tölvuleikjaspilun fjöldamorðingjans hafi stungið meira í augu fréttamannsins en stjórnmálaþátttaka hans, kynni við öfgahópa á borð við alþjóðlegu riddararegluna eða aðrir þættir. Aðrir fjölmiðlar birtu sambærilega grein með svipaðri fyrirsögn, til dæmis notað Huffington Post í Bretlandi fyrirsögnina „Anders Breivik Played World Of Warcraft ‘Full-Time’ For A Year“ og fjölmiðlar virðast ekki draga það í efa að Breivik hafi æft skotmiðið með aðstoð fyrstu-persónu skotleiksins Call of Duty: Modern Warfare, líkt og hann segir sjálfur.

    Þetta er ekki í fyrsta (og ekki síðasta) sinn sem tölvuleikir hafa verið tengdir með beinum eða óbeinum hætti við ofbeldisverk. Of margir fjölmiðlar falla í þá gryfju (viljandi eða óviljandi) að tengja tölvuleikjaspilun beint við ofbeldisfulla hegðun, líkt og ofangreind fyrirsögn fréttinnar gerir. Hefði ekki verið réttara að benda á öfgafullar skoðanir fjöldamorðingjans í fyrirsögninni í stað þess að minnast á tölvuleikjaspilun hans. Hvað með sjónvarpsefni? Lítil sem engin umfjöllun hefur verið um hvaða sjónvarpsefni hann horfði á, hvaða íþróttir hann var hrifnastur af eða hvernig tónlist hann hlustaði á. Á heildina litið skipta þessir þættir litlu sem engu máli og hjálpa ekki til við að útskýra ofbeldisverkin.

    Fjöldi tölvuleikjaspilara er gífurlegur, líkt og fjöldi þeirra sem horfa á hryllingsmyndir eða lesa glæpasögur, en í lang flestum tilfellum beina fjölmiðlar spjótum sínum eingöngu að einum miðli; tölvuleikjum.

    En hvers vegna tengja fjölmiðlar tölvuleikjaspilun oft við ofbeldisfulla hegðun? Má kalla það áróður,  fordóma eða einfaldlega vanþekkingu fréttamanna á tölvuleikjum? Fjöldi tölvuleikjaspilara er gífurlegur, líkt og fjöldi þeirra sem horfa á hryllingsmyndir eða lesa glæpasögur, en í lang flestum tilfellum beina fjölmiðlar spjótum sínum eingöngu að einum miðli; tölvuleikjum.

    Samkvæmt tölum frá Entertainment Software Association (ESA) frá því í fyrra eru tölvuleikir spilaðir á 72% bandarískra heimila, Interactive Software Federtation of Europe (ISFE) segir að þriðji hver Evrópubúi spili tölvuleiki og samkvæmt tölum frá Hagstofu Ísland eru leikjatölvur til staðar á 40% íslenskra heimila. Ef ofbeldisfullir tölvuleikir myndu breyta fólki í ofbeldismenn ætti tíðni líkamsárása og morða að hækka í takt við aukna tölvuleikjaspilun, en hver sem er getur heimsótt heimasíðu Hagstofu Íslands og séð að engin tengsl er að finna þar á milli. Ofbeldisfullir tölvuleikir breyta fólki hreinlega ekki í morðingja.

    Ofbeldisfullir tölvuleikir breyta fólki hreinlega ekki í morðingja.

    Nánast undantekningarlaust eru það ofbeldisfullir tölvuleikir sem eru tengdir við glæpi. En hvað með aðrar tegundir tölvuleikja? Hvað með þá sem spila smáleikinn Angry Birds? Eru þeir að safna saman dauðum fuglum í poka og henda þeim í svínin í Húsdýragarðinum og ásaka þau um eggjastuld? Eða breytast þeir sem hafa spilað bónda- og garðyrkjuleikinn FarmVille á Facebook í sérfræðingar í garðyrkjumálum og eru nú loksins færir um að sinna búskap? Og geta skákmenn ekki hætt að hugsa um hvað þá langar ógurlega að drepa kónga?

    Þegar ódæðisverk eru framin stökkva fjölmiðlar á tölvuleikjaspilun líkt og hundur á bein. Tölvuleikjaspilun ódæðismannsins skiptir meira máli en sálræn vandamál hans, kvikmynda- og bókmenntasmekkur, lífsviðhorf, erfið æska eða eitthvað annað – og ekki má gleyma að þetta bíður upp á krassandi fyrirsögn fyrir fréttina; “Breivik þjálfaði miðið í tölvuleikjum.” Með slíkum fyrirsögnum og órökstuddum tengslum tölvuleikja við ofbeldi fá þeir sem spila ekki tölvuleiki ranghugmyndir um tölvuleiki sem hefur neikvæð áhrif á ímynd tölvuleikjaspilara og tölvuleikjaiðnaðins í heild sinni. Það er ávallt hægt að finna svarta sauði sama á hvaða hóp er litið.

    Heilbrigt fólk gerir greinarmun á tölvuleik og raunveruleika. Líkt og þegar skákmaður finnur leiðir til að drepa kóng andstæðingsins eða þegar fótboltamaður reynir að koma boltanum í markið, að þá breytast reglurnar. Það sama á við þegar tölvuleikjaspilarinn spilar tölvuleik. Spilarar gera sér grein fyrir því hvar mörkin liggja og vita vel að þó þeir drepi óvini á tölvuskjánum að þá gilda aðrar reglur í leiknum en raunveruleikanum. Vissulega eru til ofbeldisfullir leikir sem ekki eru ætlaðir börnum en slíkir leikir eru merktir í bak og fyrir.

    Nú þegar 40 ár eru liðin frá því að fyrsta leikjatölvan, Magnavox Oddyssey, leit dagsins ljós getum við hreinlega litið á fullorðna tölvuleikjaspilara, sem eru  lifandi dæmi þess að leikir breyta fólki ekki í ofbeldisfull skrímsli.

     

    Mynd: Link úr Zelda (tengist fréttinni ekki beint).

    Bjarki Þór Jónsson
    ritstjóri Nörd Norðursins

    Bjarki Þór Jónsson ofbeldi og tölvuleikir ofbeldisfullur tölvuleiki
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaStikla úr The Avengers frá 1978
    Næsta færsla The Avengers augnskuggar [MYNDIR]
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025

    Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður

    19. nóvember 2025

    Leikjafyrirtækin á Íslandi aldrei fleiri en nú

    19. nóvember 2025

    Leikjavarpið #62 – Steam Machine og GTA VI seinkað

    17. nóvember 2025
    Nýtt á Nörd Norðursins

    The Game Awards í beinni 11.-12. desember

    4. desember 2025

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025

    Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður

    19. nóvember 2025
    Leikjarýni
    8

    Anno 117: Pax Romana

    11. nóvember 2025
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    Nýjast á Youtube
    Myndbandsspilari
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ
    00:00
    00:00
    32:02
    Notaðu upp/niður örvahnappana til að auka eða minnka hljóðstyrkinn.

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • The Game Awards í beinni 11.-12. desember
    • Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards
    • Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus
    • Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland
    • Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.