Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Greinar»Íslenskir leikir á afslætti á Steam haustútsölunni
    Greinar

    Íslenskir leikir á afslætti á Steam haustútsölunni

    Höf. Bjarki Þór Jónsson4. október 2026Uppfært:4. október 2026Engar athugasemdir5 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Haustútsala Steam er hafin og stendur yfir til 8. október. Á útsölunni er að finna fjölmarga tölvuleiki á betra verði, þar á meðal It Takes Two, Stray, Unpacking, Cyberpunk 2077 og Kingdom Come: Deliverance II. Á útsölunni er einnig að finna nokkuð marga leiki frá íslenskum leikjafyrirtækjum sem við tókum saman. Kjörið tækifæri til að næla sér í leik á betra verði og um leið styrkja við íslenska tölvuleikjagerð!

    Til að hoppa beint yfir á Steam-síður leikjanna er hægt að smella á rauða textann sem segir til um hve góð afsláttarkjörin eru á haustútsölu Steam.


    Echoes of the End

    Echoes of the End er á 80% afslætti á Steam

    Ævintýra- og hasarleikur frá Myrkur Games. Í leiknum stýrir spilarinn Ryn sem er með galdramátt sem hún er enn að læra að nota. Snemma í leiknum hverfur bróðir hennar og í kjölfarið fer hún af stað í björgunarleiðangur um Aema, sem er nafnið á ævintýraheiminum í Echoes of the End. Trúlega stærsti sögudrifni einspilunarleikurinn sem hefur verið framleiddur á Íslandi. Íslenskir leikarar fara með aðalhlutverkin í leiknum auk þess sem leikurinn inniheldur íslenska tónlist og íslenska náttúru svo eitthvað sé nefnt. Við gáfum leiknum 8 af 10 mögulegum í okkar leikjarýni.


    Walk of Life

    Walk of Life er á 40% afslætti á Steam

    Partýleikur sem er troðfullur af húmor og spilast líkt og borðspil þar sem allt að sex spilarar keppa í skóla lífsins. Leikurinn byggir á No Time to Relax sem Porcelain Fortress gaf út árið 2019 þar sem spilarar þurfa að huga að ýmsum lífsviðburðum eins og ömurlegum helgarboðum, að muna eftir því að borða, mennta sig, skella sér á vinnumarkaðinn og græ-græ-græða peninginn.


    No Time to Relax

    No Time to Relax er á 70% afslætti á Steam

    Ef þú hafðir gaman af Walk of Life munt þú alveg örugglega líka hafa gaman af No Time to Relax. Kómískur lífshermileikur þar sem allt að fjórir leikmenn, annaðhvort á netinu eða í sama rými, keppast sín á milli í leik lífsins. Leikurinn er gerður af Porcelain Fortress, sem er líklega með eitt flottasta lógóið í leikjabransanum á Íslandi. Trúið mér ekki? Skoðið þá heimasíðuna þeirra.


    Phantom Spark

    Phantom Spark er á 65% afslætti á Steam

    Hraður sæfæ-kappakstursleikur frá árinu 2025 sem inniheldur eftirminnilegt útlit og geggjaða tónlist. Þú flakkar á milli mismunandi keppnisbrauta og keppir við tímann, minnstu mistök geta orðið til þess að þú klikkar á brautinni. Ég man vel eftir því að þegar ég spilaði Phantom Spark átti ég það til að gleyma því að anda þegar einbeitingin náði hámarki og flæðið var algjört.


    NUTS

    NUTS er á 90% afslætti á Steam

    NUTS er fyrstu persónu ráðgátuleikur sem gerist í fjarlægum skógi. Þú færð það verkefni í hendurnar að njósna um íkorna í skóginum og skrá niður ferðir þeirra og þínar uppgötvanir. Fallegur og róandi leikur með grípandi listrænan stíl. NUTS hlaut verðlaun sem besti leikurinn á litlum skjá á Nordic Game Awards 2022 og hefur vakið athygli erlendis. Gaman að segja frá því að þegar ég streymdi leiknum á Twitch-síðu Nörd Norðursins þá kíkti Joon, sem er einn af höfundum leiksins, við og fylgdist aðeins með spiluninni. Leikurinn var einnig spilaður í Leikjaklúbb Nörd Norðursins árið 2021.


    Retro Gadgets

    Retro Gadges er á 15% afslætti á Steam

    Leikurinn er enn í þróun og aðgengilegur í svoköllluðum snemmbúnum aðgangi, eða early access. Retro Gadgets er sandkassaleikur þar sem þú smíðar, forritar og sérsníðar græjur sem eru innblásnar af gömlum retró rafmagnsgræjum. Þú situr við vinnubekk og dundar þér við að setja hlutina saman. Við eigum eftir að prófa leikinn en hann virkar fyrir að vera mjög áhugaverður.


    Pax Dei

    Pax Dei er á 50% afslætti á Steam

    Stór sandkassa-MMO-leikur sem sækir innblástur í þjóðsögur og goðsagnir miðalda. Hér eru goðsagnir raunverulegar, draugar eru til og enginn efast um tilvist galdra. Slástu í hóp með öðrum spilurum og kannaðu landið, byggðu þitt eigið heimili, skapaðu þér orðspor og skrifaðu þínar eigin sögur. Leikurinn er þróaður of Mainframe Studios sem er með skrifstofur á Íslandi, Finnlandi og Frakklandi og var stofnað af miklum reynsluboltum úr tölvuleikjabransanum.


    Q-UP

    Q-UP er á 45% afslætti á Steam

    Leikurinn var þróaður af teymum í Bandaríkjunum og á Íslandi. Q-UP er íþróttaleikur þar sem allt ræðst af krónu eða skjaldarmerki. Hann er að hluta smellileikur, að hluta fjölspilunarstefnuleikur, að hluta kapítalískur hermir og er svo auk þess líka algjörlega tilviljanakenndur.


    Starborn Frontiers

    Starborn Frontiers aukapakkar eru á 50% afslætti á Steam

    Leikurinn sjálfur er ókeypis (free to play) en á Steam haustútsölunni er aukaefni fyrir leikinn á 50% afslætti, alls fjórir mismunandi aukapakkar. Starborne er fjölspilunarleikur þar sem spilarar kanna heima og geima og fá frjálsar hendur til að mynda bandalög, taka þátt í pólitík, og hugsa taktísk um sitt og annara manna yfirráðasvæði í risavöxnum heimi.


    Mynd (myndblöndun): No Time to Relax og Echoes of the End

    Echoes of the End igi No Time to Relax NUTS Pax Dei Phantom Spark Q-UP Retro Gadgets Starborne Walk of Life
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaMarvel’s Wolverine – Blóðugt ævintýri
    Næsta færsla Leikjavarpið #73 – Gervigreind, leikjaútgáfan og meira af Control Resonant
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time

    17. nóvember 2026

    Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko

    13. nóvember 2026

    GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember

    12. nóvember 2026

    Elder Scrolls 6 fær nafn

    3. nóvember 2026

    Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni

    31. október 2026

    Elko með GTA VI kvöldviðburð 12. nóvember

    31. október 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time

    17. nóvember 2026

    Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko

    13. nóvember 2026

    GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember

    12. nóvember 2026

    Elder Scrolls 6 fær nafn

    3. nóvember 2026

    Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni

    31. október 2026
    Leikjarýni
    8.5

    Control Resonant brýtur lögmál raunveruleikans

    29. október 2026
    7

    Marvel’s Wolverine – Blóðugt ævintýri

    30. september 2026
    8

    AC Black Flag Resynced – Svarti fáninn rís á ný

    8. júlí 2026
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time
    • Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko
    • GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember
    • Elder Scrolls 6 fær nafn
    • Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.