Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Stofnaði hóp fyrir kvenkyns tölvuleikjaspilara – „Móttökurnar hafa verið frábærar!“
    Fréttir

    Stofnaði hóp fyrir kvenkyns tölvuleikjaspilara – „Móttökurnar hafa verið frábærar!“

    Höf. Bjarki Þór Jónsson11. júní 2017Uppfært:11. júní 2017Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Stofnaður hefur verið hópur á Facebook sérstaklega fyrir kvenkyns spilara. Hópurinn kallast GG | Girl Gamers og var nýlega stofnaður af Melínu Kolku. Hún vakti athygli á hópnum á Facebook-hópnum Tölvuleikjasamfélagið og segir að viðbrögðin hafa verið gríðarlega jákvæð. Ætlunin með nýja hópnum sé ekki að ýta karlmönnum í burt, heldur einfaldlega að gefa stelpum tækifæri á að tengjast.

    „Móttökurnar hafa verið frábærar! Bæði frá strákum og stelpum. Það kom mér á óvart hversu margir strákar hafa sent mér skilaboð um hvað þetta sé „flott framtak“ og fleiri jákvæða hluti. Svo er þessi grúppa líka að stækka svo hratt sem er snilld! Þegar ég bjó hana til var ég að búast við kannski 10 stelpum en á tveimur dögum voru 100 stelpur komnar í hana sem er snilld!“

    Melína segist hafa stofnað hópinn bæði til að kynnast öðrum stelpum sem hafa sömu áhugamál og hún og vildi hún auk þess búa til gott umhverfi fyrir stelpur sem að spila tölvuleiki til að tala saman.

    „Stelpurnar sem eru í henni eru á fullu að post-a spurningum, ráðum og það sem er best að leita eftir öðrum stelpum til að spila með. Ég hef nú þegar kynnst helling af flottum og áhugaverðum stelpum sem hafa sömu áhugamál sem er æðislegt.“

    Melína Kolka starfa á Gzero netcafé og ákvað að halda sérstakt „ladies night“ á Gzero að tilefni stofnunar Facebook-hópsins og var þetta í fyrsta sinn sem slíkt kvöld var haldið á Gzero. „Og mætingin var mjög góð! Við náðum að fylla heilan sal hjá okkur af stelpum sem að voru að spila saman og spjalla og kynnast eina kvöldstund.” segir Melína.

    Að lokum spurðum við Melínu hvaða leiki hún væri helst að spila

    „… ég [er] sjálf helst að spila Hearthstone, Overwatch, League of Legends og CS:GO. Þetta eru leikirnir sem ég spila mest en tek svona tímabil í hverjum þeirra. Eins og er er ég mest í Overwatch þar sem að flestar stelpurnar í grúppunni eru að spila hann.“

    Nörd Norðursins fagnar þessu flotta framtaki hjá Melínu! Við hvetjum kvenkyns spilara á öllum aldri til að kynna sér GG | Girl Gamers hópinn á Facebook en nú þegar inniheldur hópurinn í kringum 130 meðlimi.

     

    LADIES NIGHT Á GZERO

     

    Myndir: Melína Kolka / FB / Overwatch / Ladies Night á Gzero (birt með leyfi höf.)

    Facebook GG Girl Gamers Gzero íslenskt Ladies Night Melína Kolka spilarar viðtal
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaE3 2017: Kitla úr Anthem frá Bioware
    Næsta færsla E3 2017: Sýnishorn úr Metro Exodus og Shadow of War
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time

    17. nóvember 2026

    Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko

    13. nóvember 2026

    GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember

    12. nóvember 2026

    Elder Scrolls 6 fær nafn

    3. nóvember 2026

    Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni

    31. október 2026

    Elko með GTA VI kvöldviðburð 12. nóvember

    31. október 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time

    17. nóvember 2026

    Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko

    13. nóvember 2026

    GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember

    12. nóvember 2026

    Elder Scrolls 6 fær nafn

    3. nóvember 2026

    Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni

    31. október 2026
    Leikjarýni
    8.5

    Control Resonant brýtur lögmál raunveruleikans

    29. október 2026
    7

    Marvel’s Wolverine – Blóðugt ævintýri

    30. september 2026
    8

    AC Black Flag Resynced – Svarti fáninn rís á ný

    8. júlí 2026
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time
    • Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko
    • GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember
    • Elder Scrolls 6 fær nafn
    • Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.