Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Bíó og TV»Kvikmyndarýni: Grafir og bein
    Bíó og TV

    Kvikmyndarýni: Grafir og bein

    Höf. Nörd Norðursins22. nóvember 2014Uppfært:28. mars 2016Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Bjarki Þór Jónsson skrifar:

    Grafir og bein er ný íslensk draugamynd sem Anton Sigurðsson leikstýrir. Með aðalhlutverk fara Björn Hlynur Haraldsson (Hraunið, Borgríki og Sveitabrúðkaup), Nína Dögg Filippusdóttir (Heimsendir, Kóngavegur og Börn) og Elva María Birgisdóttir.

    Grafir og bein fjallar í stuttu máli um hjónin Gunnar og Sonju sem lifðu draumalífi. Það breyttist snögglega þegar Dagbjört, dóttir þeirra, deyr og til að gera hlutina enn erfiðari er Gunnar sakaður um ólöglega viðskiptahætti í góðærinu. Þegar Sigurður, bróðir Gunnars, deyr ákveða hjónin að taka dóttur hans í fóstur og sækja hana í afskektu húsi sem Sigurður bjó í ásamt fjölskyldu sinni. Húsið á sér drungalega sögu og fara undarlegir hlutir fljótt að eiga sér stað…

    Myndin byrjar ágætlega með áhugaverða og trúverðuga sögu sem nær að draga áhorfandann í myndina. Ekki er vottur af reynsluleysi þeirra sem komu að gerð myndarinnar þar sem kvikmyndatakan og leikurinn eru til fyrirmyndar, en þetta er fyrsta myndin í fullri lengd sem Anton Sigurðsson leikstýrir. Samtölin í myndinni eru vel skrifuð og leikurinn trúverðugur. Myndin er aftur á móti veik sem hrollvekja og draugamynd. Strax í upphafi myndarinnar er reynt að vekja upp óhug áhorfandans með stuðandi hljóðum án þess að hafa náð að byggja upp einhvern ótta. Myndin fókusar á sálrænan hrylling sem því miður nær ekki alveg að virka. Það er ekki nóg að koma með stuðandi hljóð og einstök bregðuatriði þar sem alla dulúð vantar í myndina og því nær hún ekki að vekja upp almennilegan ótta.

    Grafir_og_bein_03

    Aðra sögu er að segja um drama-hluta myndarinnar. Hann er nokkuð grípandi og er leikurinn til fyrirmyndar. Myndin er aldrei leiðinleg þó vissulega hafi vantað nánast allan hryllingin í hana, en myndin nær samt sem áður að toppa Reykjavik Whale Watching Massacre og Frost í minni íslensku-hrollvekju-bók. Þó svo að almennilegan hryllingin vanti í myndina eru nokkur skot sem ná að láta mann hoppa úr sætinu og lætur kalt vatn renna milli skinns og hörunds. Sömuleiðis eru nokkur skot sem eru virkilega flott tekin með áhugaverðum sjónarhornum sem gerir myndina skemmtilegri að horfa á.

    Á heildina litið er myndin ágæt skemmtun. Grafir og bein er heldur væg draugasaga sem nær ekki að vekja upp óhug en nær að koma áhorfandanum á óvart með góðum köflum. Myndina skortir dulúð. Kvikmyndatakan og leikurinn eru til fyrirmyndar og verður áhugavert að fylgjast með Antoni Sigurðssyni, leikstjóra myndarinnar, í framtíðinni.

    Anton Sigurðsson Bjarki Þór Jónsson Grafir og bein hrollvekja kvikmyndarýni
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaTHIS IS EVE – Spilarar í aðalhlutverki í nýrri stiklu úr EVE Online
    Næsta færsla Myndband CCP skekur tölvuleikjaiðnaðinn
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko

    13. nóvember 2026

    GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember

    12. nóvember 2026

    Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni

    31. október 2026

    Elko með GTA VI kvöldviðburð 12. nóvember

    31. október 2026

    Tölvuleikjaspjallið með sinn 300. þátt á NLG 6. nóvember

    27. október 2026

    RÚV með klukkutíma langan þátt um Grand Theft Auto

    17. október 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time

    17. nóvember 2026

    Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko

    13. nóvember 2026

    GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember

    12. nóvember 2026

    Elder Scrolls 6 fær nafn

    3. nóvember 2026

    Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni

    31. október 2026
    Leikjarýni
    8.5

    Control Resonant brýtur lögmál raunveruleikans

    29. október 2026
    7

    Marvel’s Wolverine – Blóðugt ævintýri

    30. september 2026
    8

    AC Black Flag Resynced – Svarti fáninn rís á ný

    8. júlí 2026
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time
    • Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko
    • GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember
    • Elder Scrolls 6 fær nafn
    • Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.