Íslenski leikjahönnuðurinn Ingibjörn Margeir, eða Lillex líkt og hann kallar sig, er að þróa nýjan íslenskan hryllingsleik sem ber heitið Mount Ymir og byggir á norrænni goðafræði. Fyrsti leikur Lillex er Complex 629 sem er súrelískur hryllingsleikur þar sem sögusviðið er Ásbrú. Nörd Norðursins tók viðtal við Lillex vegna útgáfu Complex 629 sem má lesa hér.
Mount Ymir er nú sýnilegur á Steam leikjaveitunni og hægt að bæta honum við sinn óskalista (wishlist). Hryllingsleikurinn spilast í fyrstu persónu þar sem spilarinn þarf meðal annars að forðast drauga og hrafna Óðins, Huga og Muninn, sem eru í leit að æti. Miðgarðsormurinn gefur þér það verkefni að reisa goðið Baldur upp frá dauðum til að koma í veg fyrir endalok heimsins.
Hægt er finna nánari upplýsingar um leikinn á Steam-síðu Mount Ymir.
