Pixelwear er ný samfélagsdrifin vefverslun fyrir íslenskt tölvuleikja- og nördasamfélög. Jónas Davíð Jónassonar er maðurinn á bakvið nýju verslunina og segir að hugmyndin sé „að skapa einn sameiginlegan vettvang þar sem mismunandi samfélög geta boðið upp á sinn eigin varning á einum stað, án þess að þurfa að sjá um framleiðslu, lager eða sölu en fá um leið hluta af hagnaðinum.“
Markmiðið er að byggja upp lifandi vefverslun þar sem nýjar vörur bætast reglulega. Þar á meðal varningur sem tengjast viðburðum, mótum og öðrum augnablikum sem skipta máli í íslensku leikjasenunni.
Vefverslunin fór í loftið 1. apríl síðastliðinn og þar er að finna fatnað sem ere merktur Gametíví, Tölvuleikjaspjallinu, Gran Turismo samfélaginu og Tölvuleikjasamtökum íslenskra kvenna (TÍK). Gert er ráð fyrir því að fleiri samfélög bætist svo við í framtíðinni.
