Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Leikjadjamm á Húsavík 17.-18. apríl
    Fréttir

    Leikjadjamm á Húsavík 17.-18. apríl

    Höf. Bjarki Þór Jónsson12. apríl 2026Uppfært:12. apríl 2026Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Leikjadjamm fyrir 15-25 ára verður haldið í Hraðinu miðstöð nýsköpunar á Húsavík dagana 17. og 18. apríl. Leikjadjamm fjallar í grunninn um að búa til nýja leiki á stuttum tíma og þá gjarnan út frá ákveðnum reglum eða þema. Öll sem hafa áhuga á leikjahönnun og leikjagerð og vilja hitta fólk með sömu áhugamál eru hvött til að skrá sig.

    Boðið verður upp á úrval af fyrirlestrum og vinnustofum sem munu gagnast þátttakendum í leikjadjamminu, þar á meðal útskýring á hvað leikjadjamm er, fjallað um hvaða þema verður unnið út frá og verkfærakista kynnt fyrir þátttakendum svo eitthvað sé nefnt.

    Dagskrá

    Föstudagur 17. apríl

    • 12:30 Mæting í Hraðið á Húsavík
      • Hvað er leikjadjamm? – Ávarp frá stofnanda Game Makers Iceland
      • Sett í gang: Húsavík leikjadjamm 2026 – Steingerður Lóa
      • Þema leikjadjammsins kynnt: Hvalir, hafið og Húsavík – TBD
    • 13:30 – 16:00 Leikjadjamm – vinnustofa, hluti 1
      • Leikjafræði 101
      • Verkfærakista leikjadjammsins
      • Hugarflug og hönnunarvinna
    • 16:00 – 18:00 Ör-erindi og pizzapartý
      • Örerindi frá frumkvöðlum

    Laugardagur 18. apríl

    • 9:00 – 12:00 Leikjadjamm – vinnustofa, hluti 2
      • Leikjafræði 101 frh.
      • Unnið að útfærslum og prototýpum undir handleiðslu mentora
    • 12:00 – 13:00 – hádegishlé
    • 13:00-16:00 – Leikjadjamm – vinnustofa, hluti 3
      • Leikjafræði 101 frh
      • Klárum leikinn okkar, útbúum kynningu
    • 16:00 – 17:00 – hlé
    • 17:00 – 19:00 – takk og þangað til næst!
      • Kynningar á uppskeru helgarinnar
      • Loka erindi – Leikjaheimurinn á Íslandi, Halldór Snær Kristjánsson

    Leikjadjammið á Húsavík er unnið í samstarfi við Hraðið miðstöð nýsköpunar, Háskóla Íslands, Game Makers Iceland, STEM Ísland og Interreg. Nánari upplýsingar má finna á Hraðið miðstöð nýsköpunar og á viðburðarsíðu á Facebook.

    Mynd: Leikjadjamm á Húsavík á Facebook

    Game Makers Iceland Háskóli Íslands Hraðið Húsavík Interreg Leikjadjamm STEM Ísland
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaÍslenskur hryllingsleikur sem byggir á norrænni goðafræði í bígerð
    Næsta færsla Starfield mætir á PlayStation
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí

    2. maí 2026

    Ókeypis myndasögudagurinn í dag!

    2. maí 2026

    Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam

    1. maí 2026

    Walk of Life kominn út!

    1. maí 2026

    CLIMB leikjaþróunarvinnustofa 25-26 apríl

    21. apríl 2026

    Ubisoft opinberar loksins AC Black Flag Resynced

    21. apríl 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí

    2. maí 2026

    Ókeypis myndasögudagurinn í dag!

    2. maí 2026

    Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam

    1. maí 2026

    Walk of Life kominn út!

    1. maí 2026

    CLIMB leikjaþróunarvinnustofa 25-26 apríl

    21. apríl 2026
    Leikjarýni
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Stjörnustríðsdagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði 2. maí
    • Ókeypis myndasögudagurinn í dag!
    • Bardagaleikurinn Starkheim Tournament aðgengilegur á Steam
    • Walk of Life kominn út!
    • CLIMB leikjaþróunarvinnustofa 25-26 apríl
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.