Leikjarýni

Birt þann 29. september, 2021 | Höfundur: Sveinn A. Gunnarsson

Ef þú hefur gaman af Dishonored ættir þú að tjékka á Deathloop

Ef þú hefur gaman af Dishonored ættir þú að tjékka á Deathloop Sveinn A. Gunnarsson

Samantekt: Leikur fyrir þá sem hafa gaman af kanna leikjaheima, sökkva sér í sögu og valda usla með litríkum dauða óvina.

4

Mjög góður


Fyrir nokkrum vikum kom út leikurinn Deathloop frá Arkane Lyon sem er gefinn út af Bethesda Softworks. Leikurinn er með talsvert mikið DNA úr eldri leikjum fyrirtækisins eins og Dishonored, Prey (2017) ásamt því að vera undir áhrifum leikja eins og Dark Souls, Hitman, rogue-lite leikja o.fl. Það má einnig sjá áhrif kvikmynda og þátta frá sjöunda áratug síðustu aldar eins og The Prisoner, The Avengers og að lokum með slettu af Austin Powers ásamt stílnum hans Quentin Tarantino.

Blackreef er nefnilega föst í tímalykkju þar sem dagurinn endurtekur sig endalaust og það er endalaust partý hjá þeim sem þar eru staddir. Til að brjóta lykkjuna og sleppa úr henni þarf Colt að drepa 8 hugsjónarmenn áður en dagurinn endar, ef ekki þá er hann dæmdur til að byrja þetta á ný.

Sagan er á þann hátt að leikmenn fara í fótspor Colt (Jason E. Kelley) sem vaknar þunnur á strönd á eyjunni Blackreef. Colt man lítið eftir því hvernig hann endaði á eyjunni og hefur gleymt hver hann er. Hann kemst fljótt að því frá Julianna (Ozioma Akagha) að hann var einu sinni yfir öryggismálum eyjunnar og endaði það klárlega ekki vel fyrir hann. Nú er Julianna í hans starfi og hennar takmark er að stöðva Colt og viðhalda ástandi eyjunnar. Blackreef er nefnilega föst í tímalykkju þar sem dagurinn endurtekur sig endalaust og það er endalaust partý hjá þeim sem þar eru staddir. Til að brjóta lykkjuna og sleppa úr henni þarf Colt að drepa 8 hugsjónarmenn áður en dagurinn endar, ef ekki þá er hann dæmdur til að byrja þetta á ný. Julianna stefnir á að stöðva Colt og notar hvert tækifæri til að reyna að drepa hann ásamt því að hafa reglulega samband við Colt í gegnum talstöð og fylla í eyðurnar á minninu hans. Hún, eins og Colt, man nefnilega hlutina á milli lykkjanna. Þetta minni er einmitt hluti af því sem þú þarft á að halda til að ná að sleppa loksins út, með því að kanna mismunandi tímabil og hverfi í leiknum er Colt að fylla upp í söguna og átta sig á því hvernig eyjan lenti í þessari stöðu og hvað hugsjónarmennirnir gerðu við hana.

Þetta er leikur sem er best að fara inn í pínu blint með söguna. Best er að upplifa hana með því að spila leikinn og kanna þau fjögur svæði sem leikurinn hefur upp á að bjóða í gegnum fjögur mismunandi tímabil. Ekki öll skotmörkin eru stödd á sama stað eða yfir höfuð á svæðinu, svo trixið verður að átta sig hvernig er best að ná þeim í einni umferð og raða upp aðstæðum þannig að persónur verði á vissum stöðum, helst saman, svo að Colt nái að ná sem flestum í einu.

Fyrir þá sem hafa gaman af kanna leikjaheima, sökkva sér í sögu og valda usla með litríkum dauða óvina þá er auðvelt að mæla með Deathloop á PC og PlayStation 5.

Í 29. þætti af Leikjavarpinu er fjallað nánar um Deathloop.

Deila efni

Tögg: , , ,


Upplýsingar um höfund:



Efst upp ↑