Bíó og TV

Birt þann 28. september, 2018 | Höfundur: Nörd Norðursins

Kvikmyndahátíðin RIFF hafin í Reykjavík

Í gær, fimmtudaginn 27. september, hófst RIFF, alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík. Klukkan 19:00 í gærkvöld var Donbass eftir Sergei Loznitsa frumsýnd í Bíó Paradís. Að því loknu var opnunarteiti í Iðnó þar sem menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, veitti Loznitsa heiðursverðlaun RIFF.

RIFF er að evrópufrumsýna og norðurlandafrumsýna margar myndir á hátíðinni en henni lýkur 7. október.

RIFF er að evrópufrumsýna og norðurlandafrumsýna margar myndir á hátíðinni en henni lýkur 7. október.

Margar eru sjóðheitar frá vor- og hausthátíðunum í Cannes, Toronto og Feneyjum. Flokkurinn Vitranir er stolt hátíðarinnar en þar keppa níu leikstjórar með sínar myndir um aðalverðlaunin, Gullna lundann.

En auk þess er Sixties sviðið í New York á áhugasviði RIFF þannig eru myndir eftir Jonas Mekas en ein myndanna fjallar um vin hans Andy Warhol, önnur um annan vin hans John Lennon og enn önnur um gjörningalistamanninn George Maciunas auk þess verða á hátíðinni nokkrar aðrar myndir tengdar þessu magnaða tímabili í listsköpun í Bandaríkjunum eins og heimildarmynd um Stúdíó 54.

Svo verða ljúfar heimildarmyndir eins og hin heillandi Carmine Street Guitars þar sem við kynnumst sölumanni gítartónlistarinnar, manni sem hefur helgað líf sitt góðum gítörum.

Myndin Nothing like a Dame er jafn ljúf þar sem dömurnar Eileen Atkins, Judi Dench, Joan Plowright og Maggie Smith hleypa kvikmyndagerðarmönnum inn í líf sitt til að skrásetja vináttu þeirra. Minding the gap er enn ein fallega myndin um vináttu ungs fólks sem hefur ástríðu fyrir brimbrettum. Að ekki sé talað um ævintýramyndina frá Indlandi, Tumbbad.

Í dag, föstudaginn 28. september, var Mads Mikkelsen svo verðlaunaður með RIFF verðlaunum fyrir framúrskarandi framlag sitt til leiklistarinnar í Höfða í Reykjavík. Það var Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, sem afhenti honum verðlaunin. Menningin á RÚV tók skemmtilegt viðtal við Mads á dögunum sem hægt er að horfa á hér á heimasíðu RÚV.

Hægt er að skoða dagskrá RIFF í heild sinni á riff.is.

Heimild: Fréttatilkynning frá RIFF

Deila efni

Tögg: , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Efst upp ↑