Stjörnustríðsdagurinn „May the 4th be with you“ er haldinn hátíðlegur um heim allan 4. maí ár hvert. Bókasafnið í Hafnarfirði mun halda upp á daginn í dag, laugardaginn 2. maí, með dagskrá milli kl. 13:00 og 14:30.
Illmenni úr 501. hersveit keisaraveldisins á Íslandi verða á svæðinu og eru orðrómar um að sjálfur Svarthöfði muni líta við. Geislasverðafélagið mætir einnig og verður með sýningarbardaga með geislasverðum. Nánari upplýsingar er að finna á viðburðarsíðu á Facebook.
Dagskrá í grófum dráttum:
- 13:00 – 501st herdeildin og Geislasverðafélagið mæta og sýnir sig. Barmmerkjum dreift til krakka
- 13:30 – Stjörnustríðssögustund
- 14:00 – Sýningarbardagi frá Geislasverðafélaginu
- 14:30 – Myndataka með herdeildinni úti
