Menning

Birt þann 29. maí, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Tropes vs Women in Video Games – Damsel in Distress (2. hluti)

Fyrsti þátturinn í vefseríunni Tropes vs Women in Video Games var settur á netið í mars síðastliðinn. Þættirnir voru fjármagnaðir á Kickstarter og fékk verkefnið gríðarlega athygli – jákvæða og neikvæða. Margir fjárfestu í þessu rannsóknarverkefni á meðan aðrir litu á hana sem ógn við nútíma tölvuleiki (nánar um haturinn hér: TEDxWomen).

Tropes vs Women in Video Games er í umsjón fjölmiðlagagnrýnandans og femínistans Anitu Sarkeesian sem heldur uppi síðunni Feminist Frequency. Þættirnir fjalla um birtingarmynd kvenna í tölvuleikjum og öðrum vinsælum miðlum og eru margir þekktir tölvuleikir og tölvuleikjapersónur gagnrýndar. Í þessum fyrsta þætti fjallar Anita um hvernig konur eru hlutgerðar og gjarnan sýndar sem hjálparvana og ósjálfstæðar kynverur sem eru algjörlega háðar söghetjunni, sem er nánast alltaf karlkyns. Í fyrsta þættinum voru dæmi eru tekin úr eldri leikjum á borð við Super Mario Bros. og The Legend of Zelda. Að þessu sinni eru dæmi úr Duke Nukem Forever, IcoMax Payne 3Asura’s WrathThe Darkness IIDishonored, God of War og fleiri nýlegum leikjum.

Sama hvaða skoðun fólk hefur á feminískri nálgun tölvuleikjaþá kemur Anita með nokkra góða og gilda punka sem eiga eftir að skapa áhugaverðar umræður í leikjasamfélaginu.

Viðvörun: Inniheldur spilla!

 

-BÞJ
Deila efni

Tögg: , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑