Á Calgary Comic Expo sem haldið var í lok apríl síðastliðinn var Wil Wheaton beðinn um að útskýra fyrir nýfæddri dóttur spyrjandans hvers vegna það er svona æðislegt að vera nörd. Hér eru skilaboð Wil Wheaton til hennar: Mynd: Wikipedia – BÞJ
Author: Nörd Norðursins
Tölvuorðasafn orðanefndar Skýrslutæknifélags Íslands kemur nú út í fimmta sinn. Að þessu sinni er orðasafnið eingöngu gefið út á veraldarvefnum á vefsetrinu http://tos.sky.is. Í fimmtu útgáfunni sem hér birtist hefur hugtökum fjölgað um 3,8% frá fjórðu útgáfu sem var gefin út sem prentuð bók árið 2005 og gerð leitarbær á sama vefsetri árið 2006. Fyrsta útgáfa Tölvuorðasafns kom út árið 1983 og hafði þá að geyma íslensk og ensk heiti á rösklega 700 hugtökum um tölvu- og upplýsingatækni. Frá og með annarri útgáfu frá 1986 hafa skilgreiningar og skýringar fylgt hugtökum í bókinni og í 5. útgáfu eru íslensk og…
Ljósmyndari frá Nörd Norðursins skellti sér á Ókeypis myndasögudaginn hjá Nexus í gær. Klukkan var orðin eitthvað yfir tvö þegar hann mætti og meira en klukkutíma síðan að viðburðurinn byrjaði, þrátt fyrir það var enn nokkuð löng röð fyrir framan Nexus á Hverfisgötunni. Fréttastofa RÚV og Stöð 2 litu einnig við fyrr um daginn og ræddu við nokkra flotta myndasögunörda. Að venju fengu allir ókeypis myndasögublöð og var úr mörgum titlum að velja. Þar var m.a. nýjasta tölublaðið af ÓkeiPiss, Súperman myndasaga, Strawberry Shortcake, The Simpsons, The Walking Dead, Mass Effect og fleira. Við þökkum Nexus fyrir skemmtilegan og vel heppnaðan Ókeypis…
Myndasögur frá DC Comic hafa oft slegið í gegn um heim allan og eru enn að. Það hafa allir heyrt um Superman, lesið um Batman eða séð myndir af Wonder Woman. Hér er hins vegar smá brot af þeim persónum sem fæstir hafa kannski heyrt um, sem urðu ekki eins vinsælar og margar hetjur innan DC Comics. Spurning af hverju. Matter-Eater Lad Eins sést á meðfylgjandi mynd og nafnið gefur pínu til kynna, þá eru kraftarnir hjá þessari ágætu ofurhetju að geta borðað allt. Þessi hetja koma fyrst fram í Adventure Comics númer 303 sem var gefið út af…
Gleðilegan föstudag kæru nördar, nær og fjær! Á föstudögum hitum við upp fyrir helgina með því að birta syrpu af nokkrum vel völdum myndböndum. Kimmell kynnir Íslendingabókar appið Spilað Super Mario Bros. á eiginkonu Óli í GameTíví að nördast á sínum yngri árum Smelltu hér til að skoða fleiri Föstudagssyrpur – BÞJ
Ert þú ein/n af þeim sem ert alltaf að drukkna í verkefnum og hefur aldrei tíma til að slaka á eða sinna áhugamálunum? Hugsar þú stundum hvað það væri nú gott að eiga tæki sem gæti stoppað tímann og gefið þér tækifæri til að klára öll verkefni og nýta svo afgangstímann til að leika þér? Þannig var lífið hjá aðstandendum Ís-Leikja ehf. smáforritahönnuðunum Fidda og Guðnýju. Endalausar hugmyndir að nýjum og nýjum forritum en takmarkaður tími til að vinna í þeim. Allt í einu áttuðu þau sig á því hvað þurfti að gera, í dag er hægt að fá smáforrit…
EVE Fanfest 2013 fór fram í Hörpunni 25.-27. apríl og fylgdist Nörd Norðursins grannt með hátíðinni. Bjarki og Kristinn voru á staðnum og birtu heitustu fréttirnar frá hátíðinni jafnóðum á heimasíðu okkar. Í tilefni þess að EVE Fanfest 2013 er lokið höfum við tekið saman allar þær fréttir sem birtust á síðunni okkar í tengslum við hátíðina. NÝ DUST UPPFÆRSLA Á DUST 514 Keynote fór CCP yfir fortíð, nútíð og framtíð DUST 514. Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, steig fyrstur á svið og bauð alla gesti hátíðarinnar velkomna. Tíu ár eru liðin frá útgáfu EVE Online og var hátíðin í…
Ókeypis myndasögudagurinn er árlegur viðburður þar sem útgefendur myndasagna reyna að lokka til sín nýja lesendur. Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur árlega frá 2002, en hann er haldinn fyrsta laugardaginn í maí. Á Ókeypis myndasögudeginum er hægt að nálgast, eins og nafnið gefur til kynna, ókeypis myndasögur. Það taka þó ekki allar verslanir þátt í þessum degi, heldur eru það aðallega sérhæfðar myndasöguverslanir (á borð við Nexus) sem taka þátt í deginum og gefa myndasögur. Að venju mun Nexus halda daginn hátíðlegan í ár. Viðburðinn hefst kl. 13 laugardaginn 4. maí fyrir framan Nexus og verða gefin blöð á meðan…
Leikjafyrirtækið CCP sendi frá sér tilkynningu fyrir nokkru þar sem þeir óska eftir sönnum sögum frá spilurum EVE Online leiksins. Spilarar geta sent inn eina að fleiri sögu þar sem aðrir spilarar geta kommentað á sögurnar og tekið fram hvort þeim líkaði við hana eða ekki. CCP hyggst varðveita sögurnar, ekki aðeins á tölvuskjánum eða í lokaðri geymslu, heldur koma sögunum áleiðis í gegnum aðra miðla. Á laugardaginn greindum við frá því að Baltasar Kormákur mun gera sjónvarpsþætti sem byggja á þessum sögum. CCP hefur einnig fengið Dark Horse Comics til að gera teiknimyndasögu sem byggja á sögum frá spilurum,…
Költ mynda hópurinn Svartir sunnudagar ætla að kveðja veturinn með glæsibrag um næstu helgi, 4. og 5. maí í Bíó Paradís. Laugardaginn 4. maí verður opnuð yfirlitssýning veggspjalda sem hönnuð voru á liðnum vetri fyrir sýningar Svartra sunnudaga. Ýmsir listamenn lögðu hönd á plóginn, þar á meðal Ómar Örn Hauksson, Hugleikur Dagsson, Solveig Pálsdóttir, Þrándur Þórarinsson, Bobby Breiðholt, Sara Riel og margir fleiri. Hér er um að ræða sölusýningu og er hvert veggspjald sérprentað fyrir viðkiptavininn. Sýningin fer fram í anddyri Bíó Paradísar. Allir eru velkomnir á opnunina sem hefst klukkan 16:00. Sýningin mun standa frameftir vori. Lokasýning Svartra sunnudaga…