Bíó og TV

Birt þann 2. maí, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Svartir sunnudagar kveðja veturinn

Költ mynda hópurinn Svartir sunnudagar ætla að kveðja veturinn með glæsibrag um næstu helgi, 4. og 5. maí í Bíó Paradís.

Laugardaginn 4. maí verður opnuð yfirlitssýning veggspjalda sem hönnuð voru á liðnum vetri fyrir sýningar Svartra sunnudaga. Ýmsir listamenn lögðu hönd á plóginn, þar á meðal Ómar Örn Hauksson, Hugleikur Dagsson, Solveig Pálsdóttir, Þrándur Þórarinsson, Bobby Breiðholt, Sara Riel og margir fleiri. Hér er um að ræða sölusýningu og er hvert veggspjald sérprentað fyrir viðkiptavininn. Sýningin fer fram í anddyri Bíó Paradísar. Allir eru velkomnir á opnunina sem hefst klukkan 16:00. Sýningin mun standa frameftir vori.

Lokasýning Svartra sunnudaga fer fram sunnudagskvöldið 5. maí þar sem verða sýndar hvorki meira né minna en tvær myndir á einni sýningu sem hefst klukkan 20:00 í Bíó Paradís. Á þessari Bíó-tvennu munu verða sýndar myndirnar Jómfrúarvorið (Jomfrukällan/The Virgin Spring) eftir Ingmar Bergman frá árinu 1960 og The Last House on the Left eftir hryllingsmeistarann Wes Craven frá 1972. Þessi samsuða kann að virðast einkennileg við fyrstu sýn, en staðreyndin er sú að þessar tvær myndir byggja á sömu sögu, þ.e. seinni myndin er í raun endurgerð á þeirri fyrri, sem byggð er á gömlu sænsku miðaldarljóði.

Mynd Bergmans gerist í sænskri sveit á miðöldum og skartar meðal annara Max Von Sydow í aðalhlutverki. Hún segir frá ungri konu sem er nauðgað og myrt af flækingum sem síðan verða svo óheppnir að leita húsaskjóls á heimili syrgjandi foreldra fórnarlambsins.

Í Last House on the Left færir Wes Craven þessa sögu til nútímans (1972) og óhætt er að segja að sagan sé öllu blóðugri í meðförum hrollvekjumeistarans. The Last House on the Left var frumraun Cravens, framleidd af öðrum hrollvekjumeistara, Sean S. Cunningham (Friday the 13th).

Sagan sem myndirnar tvær segja veltir upp spurningum um hefndina og siðferðislegt réttmæti hennar. Því skal lofað að áhorfendur koma ekki ósnortnir útaf þessum magnaða kvikmynda-kokteil Svartra sunnudaga.

Í kjölfar helgarinnar munu svo Svartir sunnudagar draga sig í hlé yfir sumartímann en áætla svo að koma tvíelfdir inn í Paradísina á komandi hausti með glæsilega dagskrá költ-mynda af öllum stærðum og gerðum. Aðstandendur Svartra sunnudaga, Hugleikur Dagsson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Sigurjón Kjartansson og Sjón þakka öllum sem mætt hafa í vetur, enda hefur aðsóknin verið mjög góð á þær 30 myndir sem sýndar hafa verið undir merkjum hópsins.

– Fréttatilkynning, Bíó Paradís

Deila efni

Tögg: ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑