Leikjadjamm fyrir 15-25 ára verður haldið í Hraðinu miðstöð nýsköpunar á Húsavík dagana 17. og 18. apríl. Leikjadjamm fjallar í grunninn um að búa til nýja leiki á stuttum tíma og þá gjarnan út frá ákveðnum reglum eða þema. Öll sem hafa áhuga á leikjahönnun og leikjagerð og vilja hitta fólk með sömu áhugamál eru hvött til að skrá sig.
Boðið verður upp á úrval af fyrirlestrum og vinnustofum sem munu gagnast þátttakendum í leikjadjamminu, þar á meðal útskýring á hvað leikjadjamm er, fjallað um hvaða þema verður unnið út frá og verkfærakista kynnt fyrir þátttakendum svo eitthvað sé nefnt.
Dagskrá
Föstudagur 17. apríl
- 12:30 Mæting í Hraðið á Húsavík
- Hvað er leikjadjamm? – Ávarp frá stofnanda Game Makers Iceland
- Sett í gang: Húsavík leikjadjamm 2026 – Steingerður Lóa
- Þema leikjadjammsins kynnt: Hvalir, hafið og Húsavík – TBD
- 13:30 – 16:00 Leikjadjamm – vinnustofa, hluti 1
- Leikjafræði 101
- Verkfærakista leikjadjammsins
- Hugarflug og hönnunarvinna
- 16:00 – 18:00 Ör-erindi og pizzapartý
- Örerindi frá frumkvöðlum
Laugardagur 18. apríl
- 9:00 – 12:00 Leikjadjamm – vinnustofa, hluti 2
- Leikjafræði 101 frh.
- Unnið að útfærslum og prototýpum undir handleiðslu mentora
- 12:00 – 13:00 – hádegishlé
- 13:00-16:00 – Leikjadjamm – vinnustofa, hluti 3
- Leikjafræði 101 frh
- Klárum leikinn okkar, útbúum kynningu
- 16:00 – 17:00 – hlé
- 17:00 – 19:00 – takk og þangað til næst!
- Kynningar á uppskeru helgarinnar
- Loka erindi – Leikjaheimurinn á Íslandi, Halldór Snær Kristjánsson
Leikjadjammið á Húsavík er unnið í samstarfi við Hraðið miðstöð nýsköpunar, Háskóla Íslands, Game Makers Iceland, STEM Ísland og Interreg. Nánari upplýsingar má finna á Hraðið miðstöð nýsköpunar og á viðburðarsíðu á Facebook.
