Birt þann 3. maí, 2022 | Höfundur: Sveinn A. Gunnarsson
Square Enix selur Embracer Group vestræna leikjadeild sína
Japanski útgefandinn Square Enix hefur selt stóran hluta af leikjafyrirtækjum sínum á Vesturlöndum ásamt yfir 50 hugverksréttum til Embracer Group fyrir rétt um $300 milljón dollara eða um 39 milljarða króna.
Salan, sem ætti að ganga í gegn í september á þessu ári, mun gera Embracer að eigendum leikjaframleiðenda á borð við Crystal Dynamix, Eidos Montreal og Square Enix Montreal, ásamt því að eiga réttinn af leikjaseríum eins og Tomb Raider, Deus Ex, Thief og Legacy of Kain. Með kaupunum fylgja um 1100 starfsmenn fyrirtækjanna.
Crystal Dynamix er nú þegar búið að staðfesta að fyrirtækið sé að vinna að gerð á nýjum Tomb Raider leik sem notast við Unreal Engine 5 leikjavélina.
Embracer sagði í tilkynningu um kaupinn að „þeir sjá tækifæri að fjárfesta í þessum seríum“ (Tomb Raider og Deus Ex), „ásamt öðrum eldri hugverkum og nýjum titlum.“
Leikir eins og Life is Strange, Just Cause og Outriders eru ekki hluti af þessum kaupum né framleiðendur þeirra leikja.
Það er athyglisvert að sjá hve lágt lágt kaupverðið er á þessum fyrirtækum sérstaklega í ljósi þess að bæði Microsoft og Sony hafa verið að kaupa leikjafyrirtæki fyrir talsvert hærri upphæðir. Sony borgaði til að mynda $3.6 biljón dollara fyrir Bungie og Embracer sjálfir borguðu $1.3 biljón dollara fyrir Gearbox Software hönnuði Borderlands leikjanna. Reyndar er Embracer ekki að kaupa allt Square Enix svo það útskýrir trúlegast verðið á kaupunum.
Líklegt hafa vonbrigði Square Enix með árangur Tomb Raider, Deus Ex og Thief leikja síðustu ára haft eitthvað að segja með kaupverðið. Square Enix hefur sett mikið út á að þessir leikir hafa verið að valda þeim vonbrigðum á meðan farsímaleikir og MMO-leikir hafa verið að skila þeim meiri tekjum síðustu árin.
Það þarf ekki að horfa lengra til baka en til febrúar á þessu ári með leikinn Guardians of the Galaxy frá Eidos Montreal sem fékk fína dóma en náði ekki að seljast í þeim tölum sem Square Enix vildi, sama má segja um Rise of the Tomb Raider og Deus Ex: Mankind Divided. Hvað þá blessaði Marvel Avengers leikurinn sem fyrirtækið virðist hafa veðjast stórt á og engan vegin náð að ganga upp.
Embracer Group er orðið risa batterí í dag með höfuðstöðvar í Karslstad í Svíþjóð og á fyrirtækið meðal annars Koch Media/Deep Silver, THQ Nordic, Coffee Stain, Saber Interactive, Gearbox Entertainment en alls 119 fyrirtæki eru undir hatti Embracer Group.
Hvernig þessi samþjöppun síðustu ára í leikjabransanum mun reynast þegar líður á mun koma í ljós og vonandi halda áfram að færa okkur spennandi leiki.
Heimild: Eurogamer og Embracer Group