Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Spil»Fréttir»CMON tilkynna nýtt tindátaspil byggt á A Song of Ice and Fire
    Fréttir

    CMON tilkynna nýtt tindátaspil byggt á A Song of Ice and Fire

    Höf. Magnús Gunnlaugsson15. mars 2017Uppfært:17. mars 2017Engar athugasemdir3 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    CMON hafa tekið höndum saman við Dark Sword Miniatures Inc. og ætla að gefa út nýtt tindátaspil (e. miniatures game) byggt á A Song of Ice and Fire eftir George R.R. Martin eða Game of Thrones eins og bækurnar er kallaðar í daglegu tali vegna samnefndra þátta frá HBO.

    A Song of Ice and Fire tindátaspilið mun birtast á þriðja ársfjórðungi 2017 á Kickstarter og má því búast við því í verslunum árið 2018 skv. tilkynningu frá CMON. Í spilinu munu leikmenn hverfa inní sögusvið bókana, taka þátt í stórfenglegum styrjöldum og stýra hetjum og hermönnum til sigurs gegn andstæðingum sínum.

    Í spilinu munu leikmenn hverfa inní sögusvið bókana, taka þátt í stórfenglegum styrjöldum og stýra hetjum og hermönnum til sigurs gegn andstæðingum sínum.

    Síðan 1996 hafa lesendur og aðdáendur bókanna orðið ástfangnir af heimi Westeros og Essos og þeim persónum sem fylla þennan söguheim. Hið nýja spil mun gera leikmönnum kleift að taka þátt í þeirri valdabaráttu sem á sér stað og leiða sínar uppáhalds hetjur til enn frekari dáða. Lögð verður áhersla á einfaldar reglur en mikla herkænsku svo leikmenn ættu að geta hellt sér út í herbröltið sem fyrst!

    Jim Ludwig, stofnandi og forstjóri Dark Sword tjáði sig um samstarfið sem varð til þess að hönnun fór af stað. „Ég hef verið mikill aðdáandi CMON síðan 2004. Sérþekking þeirra í hönnun og framleiðslu tindáta er framúrskarandi og reynsla þeirra úr bæði borðspilum og tindátaleikjum tala sínu máli. Ekki aðeins eru tindátarnir augnakonfekt heldur er einnig gaman að leika sér með þá svo það auðveldaði valið þegar kom að vali samstarfsaðila.“

    Stjórnandi og stofnandi CMON, David Douster útskýrir: „Samstaf CMON og Dark Sword nær aftur um áratug. Við höfðum íhugað nánara samstarf í mjög langan tíma. Þetta verkefni gerði okkur kleift að kafa dýpra í hugarheim George R.R Martin og endurskapa þá epísku bardaga, úr hans margverðlaunuðu bókum, í borðspilaformi“

    Spilið kemur með fyrifram samsettum tindátum úr hágæða plasti sem tákna hinar ýmsu ættir úr bókunum og munu leikmenn geta stjórnað hetjum eins og Robb Stark og Jamie Lannister. Auk þess get leikmenn endurskapað ýmsa bardaga úr bókunum eða skapað sína eigin sögu. Hvað ef hið Rauða Brúðkaup (e.Red Wedding) hefði aldrei átt sér stað? Eða ef Robb Stark hefði skyndilega marserað til King’s Landing? Það er undir leikmönnum að komast að!

    Bardagarnir geta verið allt frá epískum bardögum með hundruðum tindáta eða niðrí smærri viðureignir, allt án þess að flækja reglurnar. Spilið mun innihalda ýmiskonar kerfi sem munu halda leikmönnum á tánum s.s Goggunarkerfi (e. Rank system) sem breytir hæfileikum hermanna eftir því sem líður á bardagann, herkænskukerfi (e.Tactics system) sem krefst þess að leikmenn nýti sér takmarkaðar auðlindir til að hafa áhrif á framvindu bardagans og sjálfsögðu hetjur eins og Robb Stark og Jamie Lannister sem geta haft áhrif innan sem utan vallar!

    Nánari upplýsinga má vænta um A Song of Ice and Fire: Tabletop Miniatures Game: Starks vs. Lannisters Starter Set síðla árs 2017 á Kickstarter!

    Bætt við 17. mars 2017 kl. 7:24:

    Rodney Smith sem sér um „Watch it Played“ streymisrásina á YouTube var staddur á GAMA Trade Show þar sem hann kynnti sér spilið nánar og birti rúmlega fjögurra mínútna myndband þar sem betur er farið í saumana á spilinu.

    A Song of Ice and Fire CMON Game of Thrones
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaEric M. Lang ráðinn til CMON
    Næsta færsla Myndband: Gerð The Legend of Zelda: Breath of the Wild
    Magnús Gunnlaugsson
    • Facebook

    Svipaðar færslur

    George R.R. Martin áritar í Nexus 15. nóvember

    12. nóvember 2025

    Skottulæknar í Quacks of Quedlinburg: The Duel

    2. nóvember 2024

    Pest – Spil með sjúklega flott þema

    6. október 2024

    Eldur – Strangheiðarlegt létt samvinnuspil

    23. september 2024

    VAHÚÚ! Lego Super Mario grunnpakkinn prófaður

    30. september 2020

    Game of Thrones viskíflöskurnar fást í fríhöfninni

    27. maí 2019
    Nýtt á Nörd Norðursins

    The Game Awards í beinni 11.-12. desember

    4. desember 2025

    Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards

    2. desember 2025

    Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus

    23. nóvember 2025

    Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland

    20. nóvember 2025

    Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður

    19. nóvember 2025
    Leikjarýni
    8

    Anno 117: Pax Romana

    11. nóvember 2025
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    Nýjast á Youtube
    Myndbandsspilari
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ
    00:00
    00:00
    32:02
    Notaðu upp/niður örvahnappana til að auka eða minnka hljóðstyrkinn.

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • The Game Awards í beinni 11.-12. desember
    • Leikjavarpið #63 – Icelandic Game Fest og The Game Awards
    • Durtar og yfirnáttúruleg öfl í IKEA og Nexus
    • Fyrsti hálftíminn í Master Lemon: The Quest for Iceland
    • Vefur Samtaka leikjaframleiðenda uppfærður
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.