Birt þann 19. apríl, 2016 | Höfundur: Bjarki Þór Jónsson
CCP óskar eftir sjálfboðaliðum á EVE Fanfest 2016
Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP óskar eftir sjálfboðaliðum á EVE Fanfest sem fer fram dagana 21.-23. apríl í Hörpu. Óskað er eftir aðilum til að aðstoða gesti til að prófa nýjustu leiki fyrirtæksins, VR-leikina EVE Gunjack og EVE Valkyrie. Sjálfboðaliðar fá ókeypis mat og drykk auk þess sem þeir fá miða í lokapartíið sem heldur verður í Hörpu á laugardagskvöldið.
Steinþór Helgi hjá CCP (og eflaust margir þekkja sem dómara og spurningarhöfund í Gettu Betur) birti eftirfarandi auglýsinguna á Twitter-síðu sinni.
Hey fellow kids, langar ykkur ekki að vera með mér á EVE Fanfest í Hörpu? Er að bóka sjálfboðaliða… pic.twitter.com/fqc4YOifQk
— Steinþór Helgi (@StationHelgi) April 14, 2016