Ókeypis myndasögudagurinn er árlegur viðburður þar sem útgefendur myndasagna reyna að lokka til sín nýja lesendur. Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur árlega frá 2002, en hann er haldinn fyrsta laugardaginn í maí.
Á Ókeypis myndasögudeginum er hægt að nálgast, eins og nafnið gefur til kynna, ókeypis myndasögur. Það taka þó ekki allar verslanir þátt í þessum degi, heldur eru það aðallega sérhæfðar myndasöguverslanir (á borð við Nexus) sem taka þátt í deginum og gefa myndasögur.
Að venju mun Nexus halda daginn hátíðlegan í ár. Viðburðinn hefst kl. 13 laugardaginn 4. maí fyrir framan Nexus og verða gefin blöð á meðan birgðir endast. Nexus og Ókei-bækur gefa íslenska myndasögublaðið ÓkeiPiss, þriðja árið í röð.
Nexus hvetur svo búningaáhugafólk til að mæta í búningum!
>> Viðburðurinn á Facebook
Tengt efni:
• Ókeypis myndasögudagurinn 2011
• Ókeypis myndasögudagurinn 2012
– BÞJ
