Leikjavarpið

Birt þann 18. október, 2021 | Höfundur: Nörd Norðursins

Leikjavarpið #31 – Nintendo fréttir, Metroid Dread og SSD diskar í PS5

Daníel Rósinkrans og Sveinn hjá Nörd Norðursins og Bjössi hjá Gamestöðinni eru mættir til að fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er ákveðið Nintendo þema þar sem fjallað er um væntanlega Animal Crossing viðbót, Nintendo Online viðbótaráskrift sem gerir áskrifendum kleift að spila gamla N64 og Sega Genesis leiki á Switch og að lokum rýnir Rósinkrans í Metroid Dread sem margir Nintendo-spilarar hafa beðið spenntir eftir.

Auk þess fjalla þremenningarnir um Gotham Knights, Suicide Squad og Back 4 Blood sem kom út í seinustu viku. Tölvuleiknum var streymt á Twitch-rás Nörd Norðursins fyrir nokkrum dögum þar sem nördarnir börðust hetjulega gegn óðum zombískrímslum. Tæknimál koma einnig við sögu þar sem Sveinn upplýsir hlustendur um hvað ber að hafa í huga þegar verið er að uppfæra geymsluplássið á PS5 leikjatölvunni. Umræðuefnið tengist grein sem var nýlega birt á heimasíðu Nörd Norðursins þar sem verð og framboð á SSD diskum fyrir PS5 hér á landi var sérstaklega skoðað. Samhliða þeirri umfjöllun birti Nörd Norðursins nýlega leiðbeiningar þar sem sýnt er hvernig hægt er að bæta SSD diski við PS5 tölvuna.

Allt þetta og meira til í nýjasta þætti Leikjavarpsins!

Efni þáttar:

  • Back 4 Blood
  • Animal Crossing viðbót
  • SSD ævintýri Sveins
  • Nintendo Online viðbótaráskrift
  • Gotham Knights og Suicide Squad á DC Fandome
  • Metroid Dread
Deila efni

Tögg: , , , , , , , , , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Efst upp ↑