Fréttir

Birt þann 7. júlí, 2021 | Höfundur: Bjarki Þór Jónsson

Nintendo kynnir nýja OLED útgáfu af Switch

Í gær kynnti Nintendo uppfærða útgáfu af Nintendo Switch leikjatölvunni, Nintendo Switch OLED. Líkt og nafnið gefur til kynna er um að ræða OLED útgáfu af Nintendo Switch en OLED skjáir bjóða oftar en ekki upp á meiri litadýpt en hefðbundnir LCD skjáir, líkt og þeim sem finnst á upprunalega Nintendo Switch. Skjáupplausnin helst óbreytt í 1280×720 en skjárinn verður aðeins stærri í OLED útgáfunni, eða 7 tommur í stað 6,2 tommu skjá á upprunalega Nintendo Switch og 5,5 tommu á Nintendo Switch Lite.

Auk uppfærslu á skjánum hefur hljóðið verið bætt í OLED útgáfunni og bakstandurinn verið breikkaður verulega. Harði diskurinn hefur einnig verið stækkaður úr 32 GB upp í 64 GB. Vélbúnaðurinn er að mestu leyti sá sami og á upprunalega Nintendo Switch og keyrir hún leiki því á sama hraða og kafti og upprunalega útgáfan af Switch sem kom á markað árið 2017. Með þessari viðbót verða alls þrjár gerðir af Switch í boði: Switch OLED, Switch og Switch Lite.

Nintendo Switch OLED kemur í verslanir 8. október á þessu ári og mun kosta 349,99 Bandaríkjadali eða í kringum 46.000 íslenskar krónur á núverandi gengi. Ef gengið er frá sömu verðlagningu og er hér á landi þegar litið er til Nintendo Switch og Nintendo Switch Lite (160-170% af uppgefnu verði í Bandaríkjunum) má gera ráð fyrir því að Nintendo Switch OLED muni kosta tæpar 80.000 kr. á Íslandi. Tekið skal fram að ekki er búið að staðfesta hvað tölvan mun kosta hér á landi.

Heimildir: Nintendo og Nintendo Life

Deila efni

Tögg: , , , ,


Upplýsingar um höfund:



Efst upp ↑