Fréttir

Birt þann 21. nóvember, 2020 | Höfundur: Bjarki Þór Jónsson

Ólafur Jóhann rifjar upp PlayStation-árin í nýju viðtali

Tuttugu og fimm ár eru liðin frá útgáfu fyrstu PlayStation leikjatölvunnar. Tölvan kom á markað haustið 1995 og náði strax miklum vinsældum og varð fljótt ein vinsælasta leikjatölva allra tíma. Flestir Íslendingar ættu að þekkja PlayStation leikjatölvurnar en undanfarna daga hefur mikið verið fjallað um PlayStation 5, nýjustu PlayStation leikjatölvuna, í fjölmiðlum sem var gefin út á Íslandi og víðar þann 19. nóvember síðastliðinn. Það eru aftur á móti kannski ekki margir sem vita að Íslendingurinn Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og fyrrum yfirmaður hjá Time Warner fjölmiðlasamsteypunni, var einn af lykilmönnum til að koma fyrstu PlayStation leikjatölvunni á markað.

Það eru aftur á móti kannski ekki margir sem vita að Íslendingurinn Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og fyrrum yfirmaður hjá Time Warner fjölmiðlasamsteypunni, var einn af lykilmönnum til að koma fyrstu PlayStation leikjatölvunni á markað.

Í nýju viðtali við Jóhann í útvarpsþættinum Lestin á Rás 1 fer hann yfir þetta tímabil og segir meðal annars frá samningi Sony og Nintendo, upphafi PlayStation tölvunnar, stofnun Sony Computer Entertainment (í dag Sony Interactive Entertainment), deilum innan fyrirtækisins og markaðsáætlun PlayStation en Ólafur lagði áherslu á að tölvan yrði seld á kostnaðarverði og hagnaðurinn kæmi frá tölvuleikjasölu.

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér á Spotify sem hefst á fertugustu og sjöundu mínútu. Samhliða viðtalinu bætir Kristján Guðjónsson, þáttastjórnandi Lestarinnar, fróðleiksmolum sem tengjast sögu PlayStation við og tvinnar saman við viðtalið.

Mynd: Wikimedia Commons

Deila efni

Tögg: , , , ,


Upplýsingar um höfund:



Efst upp ↑