Fréttir

Birt þann 2. ágúst, 2018 | Höfundur: Bjarki Þór Jónsson

PlayStation VR pakkinn aldrei ódýrari á Íslandi

Undanfarið eitt og hálft ár hafa PlayStation VR sýndarveruleikagleraugun lækkað verulega í verði hér á landi. Upphaflega kostaði græjan í kringum 65-70.000 krónur í íslenskum verslunum en verðið lækkaði fljótlega niður í 50.000 kr, í kjölfar tollalækkana hér á landi árið 2017. Í dag eru verslanir farnar að bjóða upp á sérstaka PlayStation VR pakka sem innihalda sýndarveruleikagleraugun ásamt PlayStation myndavél, tölvuleiknum VR Worlds og í sumum tilfellum PlayStation Move pinna sem eru nauðsynlegir til að spila suma PlayStation VR leiki.

Pakkarnir kosta í kringum 55-60.000 kr. og má því segja að sýndarveruleikagleruaugun sjálf hafi lækkað eitthvað í verði þar sem fleiri hlutir fylgja með pakkatilboðum. PlayStation myndavélin (önnur útgáfa) ein og sér kostar til dæmis í dag 7.995 kr. í Elko þegar þessi frétt er skrifuð, par af PlayStation Move stýrpinnum kosta 11.995 kr. og VR Worlds selst á 5.999 kr. í sömu verslun.

PlayStation VR sýndarveruleikapakkinn sem inniheldur PlayStation VR sýndarveruleikagleraugu, PlayStation myndavél og tölvuleikinn VR Worlds kostar nú 42.999 kr. í Costco.

Elko býður upp á pakka sem inniheldur PlayStation VR, PlayStation myndavél og VR Worlds á 54.995 kr. Tölvutek býður upp á sama pakka en hjá þeim er hann tvö þúsund krónum ódýrari og kostar 52.990 kr. Tölvutek býður einnig upp á pakka sem inniheldur áðurnefnda hluti auk PlayStation Move stýrpinna á 59.990 kr. PlayStation VR sýndarveruleikagleraugun eru uppseld hjá Gamestöðinni þegar þessi frétt eru skrifuð en þar kostuðu gleraugun ein og sér 49.999 kr., en pakki hjá þeim sem innihélt PlayStation VR, PlayStation myndavél, PlayStation Move og VR Worlds er einnig skráður á sama verði, eða 49.999 kr. Þar sem varan er uppseld hjá Gamestöðinni var verðið ekki tekið með í súluritinu hér fyrir neðan.

Costco býður nú viðskiptavinum sínum upp á pakka sem inniheldur PlayStation VR sýndarveruleikagleraugun, PlayStation myndavél ásamt VR Worlds á aðeins 42.999 kr…

Costco býður nú viðskiptavinum sínum upp á pakka sem inniheldur PlayStation VR sýndarveruleikagleraugun, PlayStation myndavél ásamt VR Worlds á aðeins 42.999 kr., sem er u.þ.b. 10-12.000 kr. ódýrara en þekkist í öðrum verslunum hér landi. Breska Amazon vefverslunin býður upp á sama VR pakka á 229.99 pund, sem gera í kringum 31.000 íslenskar krónur á núverandi gengi, og þá á eftir að bætast við sendingarkostnaður, tollur og virðisaukaskattur, svo verðið hjá Costco gerist varla hagstæðara fyrir nörda á norðurslóðum.

ELKO

 

TÖLVUTEK

 

COSTCO

Þess má geta að þá er þetta ekki í fyrsta sinn sem Costco hefur áður boðið upp á kröftuga verðlækkun, til dæmis stórlækkaði PlayStation 4 Pro leikjatölvan í verði í fyrra með tilkomu Costco þar sem almennt verð á tölvunni lækkaði snögglega úr u.þ.b. 60.000 kr. í u.þ.b. 45.000 kr. Verðið hækkaði svo aftur stuttu eftir að Costco hætti að bjóða upp á tölvuna.

Deila efni

Tögg: , , , , , , , , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:



Efst upp ↑