Fréttir

Birt þann 14. mars, 2016 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

YamaYama fær grænt ljós á Steam Greenlight

Í september sögðum við frá því að íslenska tölvuleikjafyrirtækið Lumenox Games væri byrjað að vinna í gerð á nýjum partýleik. Fyrir stuttu setti fyrirtækið leikinn á Steam Greenlight í þeirri von um að koma leiknum áfram inn á Steam leikjasíðuna. Það tókst hjá Lumenox og hefur leikurinn nú fengið grænt ljós frá Greenlight samfélaginu sem hefur sýnt leiknum mikinn áhuga. Leikurinn heitir YamaYama og er væntanlegur síðar á þessu ári.

Lumenox Games komust á kortið með fyrsta leiknum sínum, Aaru’s Awakening, sem kom út í fyrra. Útlit leiksins þykir einstaklega fallegt og áhugavert þar sem stór hluti hans er handteiknaður ólíkt svo mörgum öðrum tölvuleikjum í dag. Aaru’s Awakening náði til PlayStation spilara þegar leikurinn var settur í gjafapakka yfir ókeypis tölvuleiki fyrir PlayStation Plús í apríl á seinasta ári. Steinar Logi gagnrýndi leikinn fyrir Nörd Norðursins og er hægt að lesa gagnrýnina hér.

YamaYama_01

YamaYama_02YamaYama er ólíkur Aaru’s Awakening að mörgu leyti en báðir leikirnir eiga það þó sameiginlegt að bjóða upp á grípandi og áhugavert útlit. Í YamaYama partýleiknum keppa spilarar á móti hvor öðrum í nokkrum míní-leikjum og safna stigum. Sá sem nær að safna flestum stigum stendur uppi í lok leiks sem sigurvegari. Leikirnir, karakterarnir og umhverfi leiksins er skemmtilega súrealíst sem passar mjög vel við stemningu leiksins.

Karakterar leiksins eru klæddir „fatsuit“ (sem er uppblásanlegur galli) og nota hann til að hrinda andstæðingum frá sér í míní-leikjunum. Eins og er inniheldur leikurinn 21 míní-leik og 5 karaktera og geta 2-4 spilað leikinn lókal en verið er að vinna í netspilun, fleiri karakterum og fleiru. Til gamans má geta að þá hefur heimasíða Lumenox Games verið tekin í gegn samhliða birtingu YamaYama á Greenlight

En nóg blaður! Sjón er sögu ríkari. Hér er stiklan úr YamaYama!

 

STIKLA ÚR YAMAYAMA

Heimild: Steam Greenlight og Lumenox á Facebook

 

Höfundur er Bjarki Þór Jónsson

Deila efni

Tögg: , , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑