Fréttir

Birt þann 19. maí, 2015 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Spilarar EVE Online styrkja hjálparstarf í Nepal

Spilarar EVE Online tölvuleiks CCP hafa safnað 68.340 Bandaríkjadollurum, eða rúmlega 8,9 milljónum íslenskra króna, í neyðaraðstoð fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Nepal frá því söfnun meðal þeirra hófst um síðustu mánaðarmót. Söfnunin fer alfarið fram í leiknum sjálfum og lýkur á miðnætti þann 24. maí. Söfnunarféð rennur óskipt til Rauði krossins á Íslandi, sem nú stendur fyrir víðtækri söfnun fyrir hjálparstarfi í Nepal.

Söfnin fer þannig fram að spilarar EVE Online geta látið fé af hendi rakna til hjálparstafsins í Nepal með gjaldmiðlinum PLEX (Pilot Licence Extension), sem er annar af tveim gjaldmiðlum EVE heimsins sem spilarar leiksins nota (hinn ber nafnið ISK). Raunvirði hvers PLEX er um 15 Bandaríkjadollarar og sér CCP um að koma því fé sem spilarar leiksins safna yfir í Bandaríkjadollara og síðan til Rauði krossins á Íslandi, sem stendur fyrir neyðaraðstoð í Nepal og styður alþjóðlegt hjálparstarf á svæðinu.

Þetta er í sjötta sinn sem CCP í samstarfi við spilara EVE Online ýtir úr vör söfnunarátaki til mannúðarmála undir slagorðinu PLEX for Good. Áður hafa spilarar leiksins stutt við fórnarlömb flóða í Pakistan, jarðskjálftana á Haítí, fellibylsins Katrina í Bandaríkjunum, jarðskjálfta og flóða í Japan og fellibylsins sem skók Filipseyjar fyrir tveimur árum um alls 45 milljónir króna (yfir 340.000 bandaríkjadala). Met var slegið í síðustu söfnun fyrir íbúa Filipseyjar þegar rúmlega 22 milljónir króna söfnuðust.

Það er átakanlegt að þurfa að horfa upp á innviði samfélags, sem var einkar viðkvæmt fyrir, vera slegna niður af náttúruöflunum með jafn afgerandi hætti og í Nepal. Alþjóðahreyfing Rauða krossins gaf út neyðarkall til allra landsfélaga í kjölfar risaskjálftans 25. apríl og hafa síðan sjálfboðaliðar og sendifulltrúar unnið dag og nótt að hjálparstarfi við einkar erfiðar aðstæður í torfæru landi. Samgönguæðar hafa rofnað og fjarskiptasamband er stopult. Fyrsta og síðasta skylda Rauða krossins er að hlúa að slösuðum og öllum þeim sem eru berskjaldaðir í kjölfar skjálftans. Sjá fólki fyrir húsaskjóli, heilbrigðisþjónustu, hreinu vatni og hreinlætisvörum til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma. Verkefnin í Nepal eru krefjandi og verða viðfangsefni alþjóðasamfélagsins næstu ár og áratugi. En í öllu þessu myrkri er sem betur fer ljóstýra. Heimurinn hefur ekki gleymt Nepal og það er einmitt með aðstoð almennings sem er aflögufært sem tryggir og flýtir fyrir endurhæfingu heils samfélags. Þakklætið fyrir viðleitni CCP og samfélags EVE Online er ólýsanlegt. Rauði krossinn á Íslandi er stoltur að eiga slíka bakhjarla sem CCP. Slíkt samstarf er ómetanlegt í neyðarástandi á borð við það sem ríkir nú í Nepal.

– Hermann Ottósson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi

 

Við höfum fylgst með eyðileggingunni og hörmungunum sem dunið hafa yfir Nepal í kjölfar jarðskjálftana, og bæði við og spilarar EVE Online vildum reyna gera eitthvað til að hjálpa. Við erum auðvitað afskaplega ánægð með að geta tekið þátt í að styðja við gríðarlega mikilvægt hjálparstarf Rauða krossins á svæðinu og geta búið til þennan vettvang fyrir spilara EVE Online til að láta gott af sér leiða. En við erum fyrst og fremst stolt af spilurum leiksins fyrir að rétta íbúum Nepal hjálparhönd með þessum hætti. Þótt starfsfólk okkar taki virkan þátt í söfnuninni, erum við hjá CCP í raun aðeins skapa umgörðina sem gerir spilurum EVE Online kleift að leggja þessu brýna málefni lið. Þeir hafa nú þegar gefið hátt í 9 milljónir króna til hjálparstafsins sem er hreint ótrúlegt, og líklegt að sú tali hækki á næstu dögum. Hér sannast það sem oft er sagt um þann samhug sem ríkir meðal spilara EVE Online, þó það ríki vissulega mikil samkeppni í leiknum sjálfum og þar séu háð stríð og orustur, þá er samvinna og samstarf eitt af lykilatriðum leiksins – sem og í því samfélagi sem í kringum hann þrífst.

– Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP

Deila efni

Tögg: ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑