Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Íslenskt»UTmessan haldin í Hörpu 7. og 8. febrúar
    Íslenskt

    UTmessan haldin í Hörpu 7. og 8. febrúar

    Höf. Nörd Norðursins3. febrúar 2014Uppfært:3. febrúar 2014Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook Twitter LinkedIn Reddit WhatsApp Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk

    UTmessan, einn stærsti viðburður ársins í tölvugeiranum, verður haldin í fjórða sinn dagana 7. og 8. febrúar í Hörpu. Tilgangur UTmessunnar  er ekki síst til að sýna almenningi hversu stór og umfangsmikill þessi grein er orðin hér á landi en þar mæta mörg helstu og stærstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins, sem og erlendir gestir,  og taka þátt með einum eða öðrum hætti og hvetja þannig fólk til að kynna sér um hvað tölvuiðnaðurinn snýst.

    Hvernig vakta skal heilt þjóðfélag, ábyrgð Íslendinga á netinu, persónuleg notkun samfélagsmiðla eins og Facebook í vinnunni, Bitcoin og þrívíddarprentarar koma við sögu, ásamt fjölda áhugaverðra fyrirlestra, sýninga, keppna, kennslu og afhendingu verðlauna setja auk þess mark sitt á UTmessuna 2014 sem er tvískipt sem fyrr.

    Föstudaginn 7. febrúar er ráðstefna sem ætluð er fagfólki en laugardaginn 8. febrúar er Harpa opin almenningi þar sem öll helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins sýna hvað þau hafa fram að færa. Getraunir, leikir, sýningar, kynningar og uppákomur verða þá í gangi þar sem fjölskyldan getur komið og séð með eigin augum hvað framtíðin ber í skauti sér.

    Mikill skortur er á tölvumenntuðu fólki hér á landi sem annars staðar í heiminum og er átak í gangi í fjölmörgum ríkjum Evrópu þar sem fólk er hvatt til að mennta sig í tölvunarfræðum. UTmessan er stærsti liðurinn í því átaki á Íslandi.  Enn örlar á þeim misskilningi að þetta sé karlageiri og að góð stærðfræðikunnátta sé nauðsynleg til að fara í tölvunarfræði. Þeim misskilningi þarf að eyða enda er um hálaunastörf að ræða sem fara vel með hefðbundnu fjölskyldulífi.

    Gríðarlegur áhugi hefur verið á UTmessunni síðustu ár og er óhætt að segja að dagskráin í ár sé glæsilegri en nokkru sinni fyrr.

    Smelltu hér til að skoða heimasíðu UTmessunnar.

    – Fréttatilkynning, Skýrslutæknifélag Íslands
    Harpa UTmessan UTmessan 2014
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaJapanshátíð og cosplay 1. febrúar
    Næsta færsla Hver verður Ofurnördinn 2014?
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Echoes of the End í endurbættri útgáfu

    8. nóvember 2025

    Reykjavík Game Summit – málþing fyrir fagfólk í leikjabransanum

    4. nóvember 2025

    Prófaðu EVE Vanguard á Arena 18. september

    5. september 2025

    Echoes of the End er kominn út – sjáðu útgáfustikluna

    12. ágúst 2025

    Echoes of the End – nýr metnaðarfullur ævintýraleikur frá íslensku leikjafyrirtæki

    7. júní 2025

    Myrkur Games á Future Games Show

    7. júní 2025
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Echoes of the End í endurbættri útgáfu

    8. nóvember 2025

    GTA 6 seinkað um hálft ár

    6. nóvember 2025

    Reykjavík Game Summit – málþing fyrir fagfólk í leikjabransanum

    4. nóvember 2025

    Nörd Norðursins fær nýtt útlit

    3. nóvember 2025

    FM 26 betan byrjar 23. október

    20. október 2025
    Nýjast á Youtube
    https://www.youtube.com/watch?v=IFFXC7lrzlo
    Leikjarýni
    9

    Áttum við að tengjast?

    15. júlí 2025
    8

    Skemmtilegt nostalgíu ferðalag í nýjum búningi

    7. maí 2025
    8

    Indiana Jones and the Great Circle: Enn betri á PlayStation 5 og PS5 Pro

    2. maí 2025
    6

    Krúttleikurinn Hello Kitty Island Adventure dalar hratt

    21. mars 2025
    8

    Ljós og skuggar Japans

    18. mars 2025

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Echoes of the End í endurbættri útgáfu
    • GTA 6 seinkað um hálft ár
    • Reykjavík Game Summit – málþing fyrir fagfólk í leikjabransanum
    • Nörd Norðursins fær nýtt útlit
    • FM 26 betan byrjar 23. október
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2025 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.