Menning

Birt þann 24. nóvember, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Tónleikarýni: Tölvuleikjatónleikar Lúðrasveitarinnar Svans

Síðastliðið þriðjudagskvöld spilaði Lúðrasveitin Svanur tölvuleikjatónlist í Norðurljósasal Hörpu. Salurinn var þétt setinn þrátt fyrir að mikilvægur fótboltaleikur væri í gangi á sama tíma (Ísland – Króatía) og greinilega mikill áhugi fyrir tónleikunum.

Yfirskrift tónleikana var Tónlist tölvuleikja og stjórnaði Brjánn Ingason lúðrasveitinni. Efnisskráin  samanstóð af gullmolum úr ýmsum áttum. Spiluð voru lög úr Halo, Civilisation IV, Kingdom Hearts, The Legend of Zelda, World of Warcraft, EVE OnlinePokémon, Elder Scrolls, Castlevania, Donkey Kong, Super Mario, Final Fantasy, Myst og Advent Rising. Lúðrasveitin tók tvö aukalög í lokin og spilaði lög úr Battlefield og hið klassíska stef úr Super Mario.

Samhliða tónlistinni voru sýnd myndbönd á stóru hvítu tjaldi úr öllum áðurnefndum tölvuleikjum, sem náði að mynda enn skemmtilegri stemningu. Tónleikarnir voru einstaklega vel heppnaðir og sem tölvuleikjaspilari þótti mér afsakaplega gaman að heyra þessa kunnuglegu tóna i Hörpu. Eflaust hefur það verið mikill höfuðverkur að velja hvaða lög yrðu spiluð og hvaða lögum ætti að sleppa, en lúðrasveitin náði að fara yfir fjölbreytt svið þar sem flestir tölvuleikjaspilarar ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Lúðrasveitin SvanurLúðrasveitin gerði tölvuleikjatónlistinni góð skil, tónleikarnir voru í heild sinni stórskemmtilegir. Lúðrasveitin hafði augljóslega lagt mikla vinnu í verkefnið og náðist að mynda skemmtilega stemningu með myndbandavalinu. Flest myndböndin voru mjög viðeigandi en í einstaka tilfellum hefði mátt vanda valið aðeins betur, til dæmis þegar að langur kreditlisti úr tölvuleik varð fyrir valinu í staðinn fyrir hefðbundið sýnishorn (að minnsta kosti finnst mér ekkert sérlega skemmtilegt að horfa á kreditlista rúlla). En þetta eru smámunir. Alltaf má finna eitthvað.

Það var stórkostlega að fá að heyra allt frá ævintýralegum tölvuleikjatónum Zelda yfir í yfirþyrmandi geimtónlist EVE Online og hið epíska stef Sephiroth úr Final Fantasy lifna við í Hörpu. Ég tek pixlaða tölvuleikjahattinn ofan fyrir lúðrasveitinni og þakka fyrir frábæra tónleika og króníska gæsahúð!

 

Höfundur er Bjarki Þór Jónsson,
ritstjóri Nörd Norðursins.

 

Deila efni

Tögg: , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑