Fréttir

Birt þann 6. júní, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Godsrule: War of Mortals kominn á iPad

Apríl síðastliðinn var tölvuleikurinn Godsrule: War of Mortals frá íslenska leikjafyrirtækinu Gogogic gefinn út á vafra. Í dag var leiknum bætt við á leikjalista App Store og er nú einnig spilanlegur á iPad.

Leikurinn var í vinnslu í u.þ.b. eitt og hálft ár og er gerður af íslenska leikjafyrirtækinu Gogogic en gefinn út af leikjarisanum SEGA. Gogogic hefur fært okkur leiki á borð við Vikings of Thule og Amazing Napoleon’s Great Escape from Tiny Places.

Í stuttu máli er Godsrule fantasíu fjölspilunarleikur sem spilast í gegnum vafra eða iPad. Í leiknum stjórnar spilarinn her í bardaga og þarf að sigra andstæðinga, þjálfa hermenn, læra galdra og taka yfir og stjórna landsvæðum.

Hægt er að spila Godsrule ókeypis í gegnum vafra hér, eða sækja hann hér á App Store fyrir iPad.

-BÞJ
Deila efni

Tögg: ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑