Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Menning»Bækur og blöð»Bækur»Flóttinn til skýjanna – fyrsta íslenska gufupönkssagan
    Bækur

    Flóttinn til skýjanna – fyrsta íslenska gufupönkssagan

    Höf. Nörd Norðursins16. apríl 2013Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Flóttinn til skýjanna er ný íslensk gufupönkssaga eftir Kristján Már Gunnarsson sem kemur út í rafbókaformi í dag. Til gamans má geta að þá hefur Kristján nýlega birt efni á heimasíðu Nörd Norðursins, m.a. kynningu á ofurhetjuliðinu The Authority. Í tilefni útgáfunnar sendi bókaútgáfan Rúnatýr eftirfarandi fréttatilkynningu frá sér í dag:

     

    Fyrsta skáldsaga Kristjáns Más Gunnarssonar segir frá ævintýralegum flótta, gufuvélum og sjóræningjum. Íslenskt gufupönk ryður sér til rúms.

    Rómverska heimsveldið féll aldrei heldur óx og dafnaði. Flugskip svífa um himininn og landamæri veldisins þenjast út. Umsátursástand myndast  um borgina Bushehr sem hrindir af stað atburðum sem munu skekja stoðir veldisins.

    Segir sagan frá Trinius, sem er rómverskur og endar sem strandaglópur í borginni þegar umsátrið hefst. Hann tekur höndum saman við Júlíu, skipstjóra sjóræningjaskipsins Ariadne. Saman hrinda þau af stað flóttaáætlun sem er bæði stórhættuleg og snarbrjáluð.

    En þegar hið mögulega þrýtur, reynirðu hið ómögulega.

    Flóttinn til skýjanna er fyrsta bók í Rómarþríleiknum, þar sem loftskipssjóræningjar og leynifélög berjast um völd og áhrif. Leyndarmál úr fortíð veldisins koma í ljós og munu móta framtíð þess.

    Gufupönk er vaxandi bókmenntagrein, þar sem vísindaskáldskapur rennur saman við fantasíu. Eins og nafnið gefur til kynna má finna þar vélar knúnar áfram af gufu og ævintýralega atburði. Sem dæmi um gufupönk mætti nefna bókina The Anubis Gates eftir Tim Powers, teiknimyndasöguna League of Extraordinary Gentlemen og tölvuleikinn Bioshock.

    Kristján Már Gunnarsson

    Sagan verður fáanleg í rafbókarformi í öllum helstu rafbókaverslunum landsins.

    Kristján Már Gunnarsson er fæddur á Akranesi 1988 og útskrifaðist frá Háskóla íslands Með B.A í sagnfræði og B.A í ritlist 2012. Hann hefur skrifað smásögur og handrit frá því að hann man eftir sér og er staðráðinn í að gera það að ævistarfi sínu. Flóttinn til Skýjanna er fyrsta skáldsaga hans en eftir hann liggja sögur í nokkrum smásagnasöfnum.

    – Fréttatilkynning frá Rúnatý

    Flóttinn til skýjanna gufupönk Kristjan Mar Gunnarsson rafbok Rómarþríleikurinn Rúnatýr steampunk
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaSpotify komið til Íslands
    Næsta færsla Vísindaskáldsögur fyrir byrjendur
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko

    13. nóvember 2026

    GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember

    12. nóvember 2026

    Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni

    31. október 2026

    Elko með GTA VI kvöldviðburð 12. nóvember

    31. október 2026

    Tölvuleikjaspjallið með sinn 300. þátt á NLG 6. nóvember

    27. október 2026

    RÚV með klukkutíma langan þátt um Grand Theft Auto

    17. október 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time

    17. nóvember 2026

    Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko

    13. nóvember 2026

    GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember

    12. nóvember 2026

    Elder Scrolls 6 fær nafn

    3. nóvember 2026

    Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni

    31. október 2026
    Leikjarýni
    8.5

    Control Resonant brýtur lögmál raunveruleikans

    29. október 2026
    7

    Marvel’s Wolverine – Blóðugt ævintýri

    30. september 2026
    8

    AC Black Flag Resynced – Svarti fáninn rís á ný

    8. júlí 2026
    8

    Starfield mætir á PlayStation

    14. apríl 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time
    • Myndir frá GTA VI kvöldopnun Elko
    • GTA VI foreldrafræðsla 12. nóvember
    • Elder Scrolls 6 fær nafn
    • Pizzan heimsendir – nýr tölvuleikur frá Pizzunni
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.