Author: Sveinn A. Gunnarsson

Fyrir um tveimur árum kom leikurinn Horizon: Forbidden West út á PlayStation 4 og PlayStation 5 og fjölluðum við um hann hérna á Nörd Norðursins og okkar eigin Bjarki gaf honum 4,5 stjörnur af 5 mögulegum. „Horizon Forbidden West er beint framhald af Horizon Zero Dawn þar sem spilarinn stjórnar hetjunni og bardagakonunni Aloy, sem er vel vopnuð og alveg sérlega fim með boga og spjót. Þar sem rík áhersla er lögð á söguríka upplifun í leiknum er æskilegt að spila fyrri leikinn fyrst, eða ef hoppað er beint í Forbidden West að minnsta kosti finna vel valið YouTube-myndband þar…

Lesa meira

Bethesda hefur gefið út talsvert af nýjum upplýsingum í kringum „Next-Gen“ uppfærslu leiksins fyrir PlayStation 5 og Xbox Series X|S. Upprunalega voru þessar upplýsingar staðfestar árið 2022 en töfðust útaf alheimsfaraldrinum og öðrum ástæðum. Þessi uppfærsla fyrir leikinn er frí og mun koma út þann 25. Apríl næst komandi. Þessi uppgáfa færir leikmönnum útgáfu leiksins sem hönnuð er sérstaklega fyrir nýjum leikjavélarnar og til að nýta möguleika þeirra betur. Hægt verður að spila í Performance eða Quality stillingum í leiknum, nákvæmlega hvernig það mun virka hefur ekki verið staðfest, en Bethesda hefur þó sagt að „hægt verður að upplifa leikinn…

Lesa meira

Fyrir stuttu kom út forvitnileg græja frá Japanska tæknirisanum Sony, PlayStation Portal. PS Portal er „Remote Play“ tækni sem leyfir þér að spila PS4 eða PS5 leiki streymt frá PlayStation 5 tölvu yfir á Portal-tækið þó að sjónvarpið eða tölvuskjárinn sé í notkun af öðrum á heimilinu. Það eina sem þarf er að PS5 og Portal séu á sama Wi-Fi netinu og með sæmilegan hraða, upp á samskiptin á milli vélanna. Það er mælt með lágmarki 5Mbps en helst 15Mbps til að fá sem besta upplifun. Spekkar: Skjár: 8 tommu LCD snertiskjár með 1920×1080 upplausn og 60Hz endurnýjunartíðni.DualSense möguleikar á…

Lesa meira

Eftir rólega byrjun á árinu, þá er leikjaiðnaðurinn að vakna til lífsins á ný. Sony hefur tilkynnt fyrsta State of Play viðburðinn fyrir árið, hann er á morgun þann 31. Janúar um 22:00 að Íslenskum og Breskum tíma. Sony hefur sagt að þetta verður um 40 mín streymi þar sem um 15 leikir koma við sögu. Leikirnir Stellar Blade og Rise of the Ronin fá lengri kynningu. Síðasta State of Play sem var í September í fyrra, einblýndi á leiki eins og, Avatar: Frontiers of Pandora, Baby Steps frá hönnuði Getting over it og nánari kynningu á Helldivers 2. Síðan…

Lesa meira

Einn frægasti skotleikur fyrr og síðar, Half-Life fagnar um helgina 25 afmæli sínu og framleiðandi leiksins Valve er að halda halda upp á það með að gefa út uppfærslu fyrir leikinn, nýtt og eldra efni, ásamt að gefa leikinn frítt á Steam í vissan tíma. Half-Life kynnti fólk fyrir vísindamanninum Gordon Freeman og uppáhalds kúbeininu hans þann 19. Nóvember 1998. Sum ykkar voru ekki einu sinni fædd þá og önnur eiga erfiðara að átta sig á hve mikill tími er liðin síðan að leikurinn kom fyrst út. Leikurinn fékk nokkrar viðbætur til að gera hann þægilegri fyrir nútíma vélbúnað. Viðmót…

Lesa meira

Árið 1987 kom út blóðug og umdeild hasar- og vísindaskáldsögu mynd sem hét RoboCop og var leikstýrð af Paul Verhoeven. Hann leikstýrði einnig Total Recall, Starship Troopers, Basic Instinct og Black Book. Í fyrstu virkaði þetta bara sem enn ein hasarmyndin sem skyldi lítið eftir sig, með tímanum jukust vinsældir hennar og fólk byrjaði að sjá meira í henni en bara hefðbundna hasarmynd, en dag er RoboCop nafnið vel þekkt. Í myndinni var skoðað hvað það er að vera mennskur, græðgi fyrirtækja á kostnað almennings, spilling, einkavæðing löggæslunnar og ádeila á stefnu Ronald Reagan forseta Bandaríkjanna, á þeim tíma þar…

Lesa meira

Football Manager leikjaserían er fótboltaunnendum vel kunnug og er FM 24 sá tuttugasti frá Sports Interactive síðan að Championship Manager serían leið undir lok. Við hjá Nördinum höfum fjallað um leikina síðustu árin, bæði á PC og síðan leikjavélum Microsoft og Sony. Hérna má lesa okkar umfjallanir um þá leiki FM19 FM21 Xbox Edition FM22 FM23 og FM23 console Hvað er nýtt í FM 24? Hegðun, kaup og sölur leikmanna ásamt breytingu á spilun eins og aukaspyrnur og horn er það helsta sem stendur upp úr þetta árið. Hægt er að halda áfram með FM 23 vistun í FM 24…

Lesa meira

Í kringum árið 1200 f. kr á bronsöldinni þá er Egyptaland í vanda. Faraóinn Merneptah þarf að velja hver mun taka við af honum og leiða landið í gegnum þá erfiðu tíma sem fram undan eru. Þeir sem berjast um að taka við af honum eru: Ramesses III eða „stríðs Faraóinn“, er einn af bestu herforingjum Egyptalands og vill skáka Ramesses II nafna sínum á alla vegu.Seti er útnefndur arftaki Merneptah. Verst að hann er bilaður og miskunnarlaus og sér lítinn tilgang í pólitískum leikjum.Tausret eiginkona Seti sem er jafn metnaðarfull og hann ef ekki meira. Hún er oft vanmetinn…

Lesa meira

Það er ótrúlegt að hugsa til þess að það séu liðin 15 ár síðan að fyrsti Assassin’s Creed leikurinn kom út frá Ubisoft. AC: Mirage er þrettándi leikurinn í seríunni og sá fyrsti í þrjú ár eða síðan að AC: Valhalla kom út. Þessi nýjasti leikur byrjaði einmitt líf sitt sem aukaefni fyrir þann leik. Áður höfðu komin út aukapakkarnir; Wrath of the Druids, The Siege of Paris og síðan Dawn of Ragnarök. Þessar viðbætur við AC: Valhalla stækkuðu söguheiminn ásamt að kafa dýpra í baksögu margra aðalpersóna leiksins Eivör, Sigurð fóstbróður hennar og Basim Ibn Is’haq sem hann kynntist…

Lesa meira

Eftir að ýmsar fréttir höfðu lekið út á síðustu vikum, þá hefur Japanski tæknirisinn Sony staðfest að það sé á leiðinni straumlínulagaðri útgáfa af PlayStation 5. Uppfærða útgáfan mun koma út í nóvember á heimsvísu og vera með sömu vélbúnaðar „spekka“ og núverandi vélar bara í smærra formi. Þessi smærri útgáfa mun verða fáanleg í tveimur útgáfum eins og er í boði í dag. PlayStation 5 sjálf með diska drifi og stafræna útgáfu vélarinnar. Þessar munu taka pláss eldri véla þegar þær eru uppseldar á markaðnum. Í Bandaríkjunum mun diskadrifs vélin kosta $499 Dollara eða um 70 Þúsund krónur. Þá…

Lesa meira